Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1993, Blaðsíða 44

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1993, Blaðsíða 44
Þjónustumiðstöðin á Egilsstöðum. félaginu og það að hafa eðlilegt félagslegt hlutverk sé skilyrði fyrir velferð og lífsgæðum fólks. Aðgrein- ing frá venjulegu samfélagslífi hefur í för með sér minni lífsgæði. Þegartalað er um lífsgæði fatlaðra verður ekki hjá því komist að fjalla um leið um hug- takið “normalisering’' því þessi hugtök eru násky ld a. m.k. þegar fj allað er um aðstæður greindarfatlaðra einstakl- inga. Stangvik vísar til Krobben sem skilgreinir “normaliseringu” út frá eftirfarandi þáttum: 1) Líkamleg “normalisering” er að fullnægja líkamlegum og efnisleg- um þörfum í samræmi við aldur (t.d hafa eigið herbergi og föt, hafa fjár- hagslega möguleika á sjálfstæðu lífi, eiga samskipti við aðra, njóta um- hyggju o.fl.) 2) Starfsræn “normalisering” að hafa möguleika á að notfæra sér þá þjónustu og þau úrræði sem eru í boði, fá kennslu/þjálfun við að auka boð- skipti sín, hafa möguleika á frístunda- tilboðum. 3) Félagsleg “normalisering” að hafa regluleg samskipti við nánasta umhverfi og tilheyra einhverjum t.d samskipti við fjölskyldu, vini, vinnu- félaga og starfsfólk. 4) Samfélagsleg “normalisering” að vera virkur þátttakandi í samfélag- inu, hafa áhrif og njóta trausts. (Stang- vik) Hugtakið “normalisering” gerir ráð fyrir að eðlileg lífsgæði séu mik- ilvæg fyrir fatlaða, en fötlunin gerir það að verkum að erfitt er að ná þess- um markmiðum. Þess í stað verður hinn fatlaði líkamlega og félagslega einangraður og fær minna hlutverk í samfélagi manna heldur en tilefni er til. “Normalisering” þýðir því að þátt- taka í venjulegu lífi í samfélaginu og það að hafa eðlilegt félagslegt hlutverk sé skilyrði fyrir velferð og lífsgæðum. Aðgreining frá venjulegu samfélags- lífi hefur í för með sér minni lífsgæði. (Stangvik) Norrænt samstarfsverkefni í málefnum fatlaðra. Árið 1991 fór af stað norrænt sam- starfsverkefni í málefnum fatlaðra sem hefur það markmið m.a. að byggja upp einskonar tenginet á Norðurlönd- unum, þar sem hægt er að miðla reynslu og niðurstöðum af árangurs- ríkum þróunarverkefnum í málefnum fatlaðra. Ennfremur að hvetj a til nýrra verkefna og rannsókna, gera yfirlit og samanburð á stjórnsýslu, áætlunum og rannsóknarstörfum á þessum vett- vangi. Þetta samnorræna rannsókna- verkefni er byggt upp í kringum eft- irfarandi þrjú svið; hinn fatlaði í átthagasamfélaginu, lífsgæði og sjálfsákvörðun og loks boðskipti. Svæðisskrifstofa Austurlands tekur þátt í þessari samvinnu með það rann- sóknarverkefni sem hér hefur verið ky nnt, og tengist þeim hluta verkefnis- ins sem fjallar um hinn fatlaða í átt- hagasamfélaginu. Þetta svið tekur til verkefna sem tengjast þjónustu sveit- arfélaga, brotthvarf frá stofnunum, til nýrra búsetuhátta, atvinnumála og tómstundastarfa. Einnigaðkomaupp þverfaglegum áætlunum þar sem gert er ráð fyrir að samtvinna og samhæfa alla aðstoð við fatlaða. Lokaorð. Ákvörðun um þessa rannsóknar- vinnu var gerð í ljósi þeirrar stefnu- mörkunar sem Svæðisskrifstofa Austurlands hefur í málefnum fatlaðra en landfræðilegar aðstæður Austur- lands hafa haft áhrif í þá átt að snúið var frá því að halda áfram að safna saman fötluðufólki víðsvegarúrfjórð- ungnum og setja á fót sérþjónustu. Landfræðilegaraðstæðurfjórðungsins og fámennið kallaði á annars konar þjónustuuppbyggingu en áður hafði tíðkast á Austurlandi sem annarsstaðar á Islandi. Hin nýju lög um málefni fatlaðra og um félagsþjónustu sveitarfélaga kveða skýrt á um rétt fatlaðra til að sækja almenna þjónustu. I lögum um málefni fatlaðra er kveðið á um að við endurskoðun þeirra skuli miða að auknu hlutverki og aukinni ábyrgð sveitarfélaga í þjónustu við fatlaða. Sú rannsóknarvinna sem S væðisskrif- stofan hefur hug á að framkvæma er í anda þessara stefnu og ef vel tekst til getur þessi vinna hvatt og undirbúið sveitarfélög á Austurlandi til að taka aukna ábyrgð og/eða yfirtaka þjónustu við fatlaða. S væðisskrifstofa Austurlands hef- ur nú þegar fengið styrk frá Landssam- tökunum Þroskahjálp og Öryrkja- bandalagi Islands til að sinna þessari rannsókn. Ljóst er að mikil en spenn- andi og vonandi gagnleg vinna er fy rir höndum hjá starfsmönnum Svæðis- skrifstofu. Styrkurinn frá hagsmuna- samtökunum gerir það mögulegt að rannsóknin sé framkvæmanleg og eiga þessir aðilar bestu þakkir skilið. Guðbjörg Gunnarsdóttir forstöðumaður leikfanga- og ráðgjafarþjónustu Svæðisskrifstofu Austurlands. Heimildir: Berit Johnsen. 1990. Þróun mið- stýringar og valddreifingar í málefnum fatlaðra. Sveitarstiórnarmál '92. Margrét Margeirsdóttir. 1993. Norrænt samstarfsverkefni í mál- efnum fatlaðra. Morgunblaðið. 20. maí. StangvikGunnar: Livskvalitetfor funksjonshemmede. Oslo, 1987.

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.