Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1993, Side 10

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1993, Side 10
í sambandi við húðsjúkdóma sem menn gera sér almennt ekki grein fyrir. Við getum nefnt hann andlega fötlun. Hér er átt við vanmáttarkennd, óöryggi, sem lýsir sér þannig að sjúklingnum finnst hann óvelkominn, óæskilegur félagsskapur, óhreinn, útskúfaður. Allir skilja þessa tilfinn- ingu hjágeðsjúklingum, en hún liggur ekki eins ljós fyrir hjá húðsjúklingum, nema þá meðal holdsveikra. Það er erfitt að skilgreina þessa tilfinningu og mæla áhrif hennar því að í henni felst ekki aðeins að sjúklingurinn sé í raun óvelkominn, heldur líka það að hann ímyndar sér að hann sé óvelkom- inn. Þannig er að mörgu að hyggja og margs að spyrja þegar meta skal fötlun. En það er ljóst að mælikvarði á fötlun af völdum húðsjúkdóma er nauðsyn- legur, og skilgreining hans á erindi í kennslubækur hjúkrunarfólks og félagsfræðinga. Helga Ingólfsdóttir. HLERAÐí HORNUM Mikill hægrimaður notaði oft það ráð til að þagga niður í vini sínum, sem í senn var mikill vinstrimaður og biblíu- fróður vel, að vitna í þessi orð úr biblí- unni: Hjarta viturs manns slær til hægri, en heimskingjans til vinstri. Þetta tók sá biblíufróði nærri sér, en einn góðan veðurdag kom hann sigri hrósandi með nýja þýðingu á biblíunni þar sem nú stóð: Hjarta viturs manns slær á heillabraut en heimskingjans til ógæfu. Hægrimaðurinn horfði orðlaus á ósköpin. * Prestur einn kom í heimsókn á bæ þar sem sagt var, að bóndi berði konu sína ótæpilega. Svo vildi til að bóndi og kona hans voru fyrir dyrum úti og bóndi með hnefann á lofti. Þegar hann sá prest, brá honum, en greip í konu sína og mælti stundarhátt: „Nú hefð- irðu dottið hjartað mitt, ef ég hefði ekki stutt við þig“. * Þennan skemmtilega orðaleik heyrði ritstjóri hjá Gísla Helgasyni: „Veiztu hvað mamma Evitu Peron sagði við hana þegar hún var lítil?“ „Borðaðu E-vítamín — Evíta mín“. TMF Tölvumiðstöð fatlaðra Kynning á verkefni á vegum Tölvumiðstöðvar fatlaðra. „Tölvuver fyrir fötluð börn og unglinga“ Tölvumiðstöð fatlaðra hyggst, ef fjármögnun fæst, setja í gang tilraunaverkefnið„Tölvuverfyrirbörn og unglinga“. Aætlað er að hefja verkefnið í október 1993 og að það standi fram í marslok 1994, þ.e. í sex mánuði. Verkefnið verður síðan endurskoðað að afloknumreynslutíma. Meginmarkmið tölvuversins er að gera fötluðum börnum og unglingum kleift að nýta sér þá möguleika sem tölvutæknin býður upp á og að miðla þekkingu um þá möguleika sem tölvan veitir fötluðum. Tölva sem tæki til að efla þroska og sjálfstæði barna Börn byrja ung að sýna tölvu með tilheyrandi hugbúnaði mikinn áhuga, tölva er því miðill sem höfðar vel til barna og unglinga. Tölvan er mörgum hjálpartæki til skrifta og boðskipta, en hún getur einnig verið tæki til leikja. Ekki má vanmeta gildi leiksins því að í gegnum leik þroskast börn, þau þroska hreyfifæmi, sjálfstæði, mál og hugtakanotkun. Leikurinn er því öllum börnum mikilvægur. Fötluð börn sem gera margar misheppnaðar tilraunir í leik missa gjarnan móðinn og þar með áhugann á frekari tilraunum. Því þarf að aðlaga leikinn að þörfum barnsins. Góður hugbúnaður og stýribúnaður tölvu er ein leið til þess. Tölvan er tæki til að upplifa „ég get sjálf“- tilfinningu sem öllum er mikil væg á þroskabrautinni. Að kynnast tölvum í gegnum leik auðveldar þeim seinna meir að nýta sér þær í námi og starfi. T öl vu verið, hvað verður í boði? I tölvuverinu verði helstu tölvumerkin (PC, Machintosh, Archimedes), ásamt sérbúnaði s.s. snertiborð, snertiskjár, rofar og tengibox. Sérbúnaður eins og snertiborð og snertiskjár eru tæki til að nota tölvuna á annan hátt en með venjulegu lyklaborði. Sem dæmi um sérbúnað má nefna snertiskjá með tilheyrandi hugbúnaði sem nýtist m.a. sjónskertum börnum. Gerð hugbúnaðar hefur mikla þýðingu, leitast verður við að hafa hugbúnað sem hentar til leiks, þjálfunar og náms. Foreldrar, kennarar og aðrir geta pantað tíma í tölvuverinu, tekið barnið með og prófað hugbúnað og sérbúnað. S tarfsmenn töl vuversins munu leitast við að fylgjast með nýjungum, miðla þeim og aðstoða fólk við að útvega sér búnað. Sannfæring mín er sú að tölvutæknin veitir okkur ýmsa nýja möguleika sem við Islendingar ættum að nýta og aðlaga að okkar aðstæðum. Því er von mín að Tölvumiðstöð fatlaðra muni stuðla að framgangi tölvunotkunar hjá ungu kynslóðinni og leggja þar með grunninn að þróun tölvumála fatlaðra á Islandi. I sept.byrjun '93. Sigrún Jóhannsdóttir forstöðumaður.

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.