Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1993, Síða 25
í huga í þeirri ævarandi baráttu sem
réttindabarátta fatlaðra er og rétt að
allir, jafnt þeir sem samfélagsþjónust-
unnar njóta og ekki síður þeir sem eru
svo lánsamir að þurfa ekki á henni að
halda, geri sér ljóst.
*
Þegar kreppir að í samfélaginu og
dagskipan stjórnvaldaerað spara
á sem flestum sviðum, þá er ekki
óeðlilegt að fyrst sé litið til útgjalda-
frekustu málaflokkanna, heilbrigðis-
og tryggingamála auk menntamála.
En þar verður að fara að með mikilli
gát s vo ekki sé kastað fyrir róða margra
áratuga starfi heldur verður að leita
spamaðar fyrst og fremst með því að
gæta að hvemig hátti skipan og fyrir-
komulagi mála sem verður að vera í
stöðugri endurskoðun.
r
Aðurnefndar tækniframfarir auka
i ekki aðeins á kostnað heldur
hljóta þær einnig að stuðla að sparnaði
með því að leysa af hólmi þjónustu og
búnað sem áður var veittur af hinu
opinbera, sem þá er ekki ástæða til að
veita lengur. Framfarir á þessu sviði
þurfa því ekki að þýða stöðuga aukn-
ingu útgj alda fyrir samfélagið. Fy llsta
ástæða er fyrir ráðamenn að staldra
við með reglulegu millibili og gæta
betur að hvort því fé sem samfélagið
ráðstafar til sameiginlegra þarfa sé
varið með skynsamlegum hætti og
hvort það megi nýta betur, þó megin-
markmiðið hljóti að vera að koma í
veg fyrir að sóun geti nokkurs staðar
átt sér stað án þess að við því sé brugð-
ist.
Það á hins vegar ekki að vera neitt
feimnismál að viðurkenna að öll
samfélagsþj ónusta h vort sem er á sviði
heilbrigðis- eða félagsmála kostar
mikla peninga, peninga sem verða
ekki teknir annars staðar en af þeim
skattpeningum sem allur almenningur
greiðir til samfélagsins. Þessa stað-
reynd er alltof oft reynt að fara í kring-
um og hana reynt að fela. En slíkur
feluleikur er engum til góðs, hvorki
þeim sem að samfélagsþjónustunni
starfa, þeim semnjótahennarné heldur
skattborgurunum, sem þjónustuna
greiða.
Bolli Héðinsson.
Höfundur er hagfræðingur og á sœti í
tryggingaráði.
Framkvæmdasj óður
fatlaðra
Úthlutun 1993:
Viðfangsefni:
Þús.kr.
1. Til viðhalds á stofnunum fatlaðra.................54.100
2. Leikfangasöfn......................................3.500
3. Svæðisskrifstofur, öryggisbúnaður brunavarnir......8.000
4. Atvinnumál fatlaðra................................2.500
5. Styrkur vegna félagslegra íbúða....................7.645
6. Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins................750
7. Til kannana og áætlana.............................4.500
8. Til hönnunar á hús f. Starfsþjálfun fatlaðra.......1.500
9. Kostnaður vegna aðgengismála......................13.000
10. Byggingar (sambýli og vinnustofa) Hólabergi 86.....11.000
11. Bygging heimilis f. fjölfötluð böm Árlandi.........25.000
12. Styrkur til MS-félagsins vegna byggingar dagstofnunar ...5.000
13. Skammtímavistun Reykjavík-Reykjanes................25.000
14. Styrkurtil Blindrafélagsins v/viðbyggingar Hamrahlíð ....6.000
15. Stofnkostnaður vegna sambýla Fannafold og Tindaseli ....4.000
16. Hæfingarstöð Keflavík...............................7.000
17. Kaup á sambýli Kópavogi............................18.000
18. Verndaður vinnustaður Akranesi......................1.320
19. Vemdaður vinnustaður Borgarnesi.......................170
20. Kaup á áfangastað fyrir geðfatlaða - ísafirði.......8.000
21. Bygging heimilis fyrir fjölfatlaða Sauðárkróki.....28.000
22. Sambýli Blönduósi - útskrift af Sólborg............15.500
23. Sambýli Húsavík - útskrift af Sólborg..............15.500
24. Bygging sambýlis fyrir fjölfatlaða á Akureyri.......5.000
25. Bygging vistheimilis fyrir börn Selfossi...........16.500
26. Heimili og vinnustaður fyrir geðfatlaða Skaftholti.20.000
27. Kaup á húsnæði fyrir svæðisskrifstofu Suðurlands....9.420
28. Þroskahjálp Suðurnesjum - styrkur v/Lyngsels
og til brunavama.....................................1.263
29. Sambýli Reykjanesi.................................18.000
30. Sólborg - sérdeild fyrir atferlistruflaða...........2.900
31. Oráðstafað - félagslegar íbúðir, (Þroskahjálp,
geðfatlaðir), sambýli...............................32.000
Samtals:............................................370.068
Frá LAUF
Landssamtök áhugafólks um flogaveiki (LAUF) gáfu
nýverið út „PERSÓNUSKILRÍKI fyrir fólk með
FLOGAVEIKI á ÍSLANDU sem eru ætluð þeim
félagsmönnumLAUF semerumeðflogaveiki. Þarkoma
fram ýmsar upplýsingar s.s. nafn og heimilisfang svo og
nafn nánasta aðstandenda eða þess aðila sem nauðsy nlegt
er að hafa samband við ef um alvarlegt krampaflog er að
ræða. Einnig er gert ráð fyrir að þeir sem bera skilríkin
munu tilgreina hvaða lyf þeir taka hverju sinni svo og þau
viðbrögð sem flogaveiki þeirra útheimti. Almenn
viðbrögð við krampaflogum eru síðan tilgreind á baksíðu.
Fólki er bent á að hafa samband við skrifstofu LAUF,
Ármúla 5, 108 Reykjavík, í síma 812833.
A
IAUF
PERSÓNUSKILRÍKI
fyrir fólk með
FLOGAVEIKI
á
ÍSLANDI
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS