Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1993, Page 28
Af stj órnarvettvangi
Fundur var haldinn í stjórn
Öryrkjabandalagsíslandsþriðju-
daginn 14. sept. og hófst hann kl.
16.30 í fundarherbergi bandalagsins.
Formaður setti fund og stjómaði
honum. Bauð sérstaklega velkomna
Valgerði Auðunsdóttur varastjómar-
mann SPOEX og Þorstein Jóhanns-
son forstöðumann vinnustaða banda-
lagsins.
1. Fyrsta dagskrármálið varðaði
umsókn tveggja félaga um aðild að
Öryrkjabandalagi Islands, en það eru
MG-félagið og Alnæmissamtökin.
Framkvæmdaráð fjallaði ítarlega
um málið og mælti með samþykki við
stjórn.
Formaður fór nokkuð yfir þessi
mál og nokkrar umræður urðu almennt
um fjölgun félaga innan bandalagsins,
svo og um það hversu félögin starfa,
hvernig aðalfundum þeirra er háttað
svo og um raunverulegt félagatal þeirra
(skuldlausir félagar).
Einnig talsvert rætt um samstarf
og samruna félaga sem vinna að svip-
uðum málum með áþekka fötlun að
baki. Stjórnin mælti einróma með
meðmælum við aðalfund varðandi
aðild beggja félaganna.
2. Næst voru teknir fyrir reikningar
bandalagsins og skýrði gjaldkeri
bandalagsins, Hafliði Hjartarson,
reikningana og fór yfir alla meginþætti.
Formaður og gjaldkeri gerðu
athugasemd viðbókun endurskoðanda
um gjöld vegna Glits frá 1/1—31/8
'93, semekki stæðist miðað viðeðlileg
skil reikninga. Frá reikningunum
verður greint í umfjöllun aðalfundar
um þá og gerð grein fyrir helstu liðum
þeirra. Talsverðar umræður urðu um
reikningana og endurskoðun þeirra.
3. Fjárhagsstaða Öryrkj abandalags
Islands og málefni Glits. Formaður
reifaði fjárhagsstöðu bandalagsins
sem óneitanlega tengist Glitmálinu,
en ljóst að miðað við sama tíma og í
fyrra eru tekjur frá Islenzkri getspá
nokkuð minni í ár. 4. Nokkrar að-
haldsaðgerðir hafa því verið ákveðnar
hjá bandalaginu. Að öðru leyti fór
Þorsteinn Jóhannsson yfir stöðuna hjá
Glit. Hann rakti söguna frá því hann
kom hér að verki og hvað helzt hefði
þar gerzt. Akveðið í maí að hætta
rekstrinum og gera ráðstafanir til þess
að reyna að draga úr tapinu sem mest.
Gerði grein fyrir hvernig þar hefði til
tekist og fór svo yfir þá heildarupp-
hæð, sem bandalagið hefur innt af
hendi og mun gera á næstu árum Tals-
vert var um fyrirspumir og nokkrar
umræður íkjölfarið. Formaður þakk-
aði Þorsteini Jóhannssyni afar vel fyrir
unnin störf að skilum varðandi Glit
h.f.
4. Kjör fulltrúa í stjóm Greiningar-
og ráðgjafarstöðvar ríkisins. Fram-
kvæmdaráð mælti með Þóreyju Ólafs-
dóttur í stjórnina og var það einróma
samþykkt.
5. Kjör 2ja fulltrúa í stjórn Starfs-
þjálfunar fatlaðra og eins til vara.
Framkvæmdaráð bandalagsins mælti
meðþeimArnþóri Helgasyni og Helga
Seljan í stjórn og Jarþrúði Þórhalls-
dóttur til vara og var það einróma
samþykkt.
6. Alþjóðadagur fatlaðra 3. des.
n.k. Asgerður Ingimarsdóttir reifaði
það mál, greindi frá samþykkt Samein-
uðu þjóðanna á haustdögum '92 um
að gera 3. des. árlega að alþjóðadegi
fatlaðra.
Hún flutti útdrátt úr bæklingi sem
borizt hafði um ýmislegt það sem
einkenna mætti þennan dag og baráttu-
mál honum tengd.
Að okkur sneri það að gera þennan
dag sem myndarlegastan. Ymsarhug-
myndir reifaðar í þeim efnum. Málinu
vísað til framkvæmdaráðs.
Undir liðnum: Önnur mál komu
fram eftirfarandi erindi:
a) Ólöf Ríkarðsdóttir vakti máls á
deilum milli félagsmálaráðherra og
annaiTa ráðherra m.a. um húsaleigu-
bætur. Ræddi viðbrögð samtakanna
Þak yfir höfuðið og kynnti ályktanir
samtakannaalltfrá 1989umþessi mál
og nauðsyn þess að koma húsaleigu-
bótum á. Kynnti ályktun sem hópurinn
samþykkti fyrr um daginn. Um hana
urðu allmiklar umræður. Að þeim
loknum var hún samþykkt samhljóða
og er svohljóðandi:
Stjórn Öryrkjabandalags
Islands skorar á ríkisstjórn Islands
að beita sér fyrir því að hið fyrsta
verði teknar upp húsnæðisbætur til
leigjenda og lög þar um samþykkt á
haustþingi 1993. Mikill hluti
öryrkja býr í leiguhúsnæði og er þ ví
hér um brýnt hagsmunamál fyrir
þáaðræða.
Stjórn Öryrkjabandalags
Islands beinir því jafnframt til ríkis-
stjórnarinnar að fjármagn til hús-
næðisbóta skerði í engu það fé sem
varið verður til uppbyggingar
félagslegra íbúða.
b) Hafliði Hjartarson minnti á
meðferð reikninga á aðalfundi, hvort
ekki væri rétt að getið væri um sam-
þykki stjórnar við framlagningu þeirra
og var það talið sjálfsagt.
c) Hafdís Hannesdóttir minnti á
25 ára afmæli MS-félagsins og opið
hús að Alandi 13 af því tilefni mánu-
daginn 20. sept. og kvað félagsfólki
mikla ánægju að því ef stjómarmenn
vildu líta inn.
d) Formaður vakti máls á því að
vitneskja hefði borizt um að skerða
ætti framlög Norðurlandaráðs til sam-
starfs fatlaðra á Norðurlöndum mjög
verulega. Samþykkt var að skrifa Sig-
hvati Björgvinssyni, samstarfsráð-
herra Norðurlanda og til þess mælst
að Islendingar beiti áhrifum sínum á
norrænum vettvangi til að koma í veg
fyrir áformaðan niðurskurð.
e) Formaður greindi frá skipan
uppstillingamefndar fyrir aðalfundinn
en hana skipa: Vilhjálmur Vilhjálms-
son, Guðlaug Sveinbjarnardóttir og
Jóna Sveinsdóttir.
f) Sigrún Bára greindi frá græn-
metismarkaði Geðhjálpar hið næsta
kvöld.
g) Asgerður greindi frá bókinni
Atlantic Destiny Iceland, en í þeirri
bók eru tvær heilsíður um Öryrkja-
bandalag Islands—myndum prýddar.
Asgerður vakti athygli á að þarna væru
í samanþjöppuðu formi gagnlegar og
góðar upplýsingar um bandalagið á
ensku, ef félögin vildu nýta sér það.
h) Síðast vakti svo Guðlaug Svein-
bjarnardóttir athygli á hinum mikla
niðurskurði sem væri staðreynd varð-
andi þjálfun fatlaðra barna m.a. hefði
iðjuþjálfun ekki fengist greidd í tvo
mánuði. Formaður sleit svo gagn-
legum fundi um kl. 19.00.
H.S.