Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1993, Síða 30
var haldin í Bretlandi á vegum Mencap
(Royal Society for Mentally Handi-
capped Children and Adults). Islend-
ingar sendu út 49 verk. Aðstandendur
sýningarinnar völdu nokkur verk til
sýningar, þar af seldust fjórar myndir.
Listamennimir sem áttu verk á sýning-
unni eru eftirtaldir: Asta María
Magnúsdóttir, Guðný Björnsdóttir,
Heiða Austfjörð, Jökull Kristinsson,
Linda Rós Lúðvíksdóttir, Kristín
Jónsdóttir, Rut Grímsdóttir og Þóra
Björnsdóttir. Alda Sveinsdóttir vann
að því að velja verk á sýninguna og
Jakob Frímann Magnússon var tengi-
liður vegna verkefnisins í Englandi. I
vor var svo boðið til kaffisamsætis á
veitingastaðnum Gullna Hananum,
þar sem þeir sem áttu verk á sýningunni
fengu viðurkenningar og þeir sem
seldu verk fengu ávísun sem greiðslu
fyrir verkin. Þetta verður vonandi
hvatning fyrir viðkomandi listamenn
til að halda áfram á listabrautinni og
einnig hvatning fyrir fleiri að feta
þessa jákvæðu braut.
LIST
Til stóð að halda listahátíð sem
bæri heitið „List án landamæra“ undir
merkjum samtakanna Very Special
Arts International. En samskonar
hátíðir voru haldnar vítt og breitt um
Evrópu síðastliðinn vetur. Fallið var
frá þessu, en ákveðið var að boða til
fundar þar sem listsköpun fatlaðra
yrði rædd. A fundinn mættu, auk full-
trúa samtaka fatlaðra, fulltrúar nokk-
urra sem hafa unnið að listsköpun. A
fundinum kom fram vilji til samstarfs.
M.a. voru menn sammála um að gott
væri að koma á fót sameiginlegum
vettvangi varðandi listsköpun fatlaðra.
Akveðið var að efna til annars og
stærri fundar eða ráðstefnu í vetur þar
sem þessi mál og fleiri sem tengjast
listsköpun verða rædd.
Þess má geta að Samvinnunefndin
styrkti starfsemi Halaleikhópsins úr
sameiginlegum sjóði samtakanna. Þar
er á ferð mjög áhugavert starf sem er
öllum opið. Haldið var leiklistarnám-
skeið undir stjórn Guðmundar Magn-
ússonar leikara. Auk smærri sýninga,
setti leikhópurinn uppog sýndi gaman-
leikinn Aurasálina eftir Moliere.
Rannveig Traustadóttir kom
nýlega frá námi í Bandaríkjunum og
hefur nú hafið störf við Háskóla
Islands. Samvinnunefndin ákvað að
Hér er heldur betur byggt og brasað
styrkja Rannveigu vegna mikilvægra
rannsóknarstarfa sem fjalla um fjöl-
skyldur fatlaðra á Islandi.
Þá ákvað samvinnunefndin að
sty rkj a könnun sem ber heitið Heima-
byggðin fyrir alla og verður unnin af
Guðbjörgu Gunnarsdóttur. I rann-
sóknarþætti verkefnisins verður þró-
unaruppbygging á Austurlandi metin
sem stefnir að því að fatlað fólk hafi
tækifæri og rétt til að búa í sinni heima-
byggð. Þá er gert ráð fyrir þróunar-
vinnu, þar sem skoðað verður hvað
þurfi að vera til staðar svo hægt sé að
skapa öllum fötluðum félagslega þátt-
töku, búsetu og lífsgæði í heima-
byggðinni.
SKÁTANÁMSKEIÐ
Eins og undanfarin ár var í sumar
starfræktur Útilífsskólinn af skáta-
félögunum Skjöldungum og Dalbúum
í samstarfi við samtök fatlaðra. Dag-
skráin er fjölbreytt og þátttakendum
hefur verið gefinn kostur á upplifun í
náttúrunni að hætti skáta. Starfsmenn
Útilífsskólans hafa mikla reynslu af
skátastarfi og starfi með fötluðu fólki.
Einnig hefur einn starfsmaður nokkra
táknmálskunnáttu. Þátttaka hefur
minnkað nokkuð milli ára. Efalaust
má þar um kenna minni kaupmætti
fólks auk þess sem Reykjavíkurborg
hefuraukiðmjögþjónustu sínaáþessu
sviði og býður nú upp á mun fleiri
kosti fyrir fötluð börn heldur en var
þegar skátarnir fóru af stað með
Útilífsskólann í samstarfi við samtök
fatlaðra fyrir 5 árum.
NÁMSKEIÐ FYRIR FULLTRÚA í
SVÆÐISRÁÐUM
Samtökin stóðu fyrir fræðslu- og
umræðufundi 5.—6. marsfyrirfulltrúa
sína í svæðisráðum og varamenn
þeirra. Þar var fjallað um verksvið og
hlutverk svæðisráðanna. Haldin voru
erindi um mannréttindi, hugmynda-
fræði, lög, reglugerðir auk þess sem
fjallað var um ýmsar hindranir á vegi
svæðisráða s.s. litlar fjárveitingar og
ófullnægjandi starfsaðstöðu.
FERÐAÞJÓNUSTA
Nefnd þeirri sem vann að undir-
búningi ráðstefnu um ferðaþjónustu
fatlaðra haustið 1992 varfalið að starfa
áfram í nafni Samvinnunefndarinnar
til þess að reyna að fylgjast með og hafa
áhrif á framgang mála á þessu sviði.
Nefndin sendi m.a. bréf til Sambands
íslenskra sveitarfélaga og Samtaka
sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu
þar sem hún hvatti til að vinna færi í
gang vegna breyttra laga um málefni
fatlaðra sem m.a. fela í það í sér að
miklar og auknar skyldur eru lagðar á
sveitarfélögin.
Á ráðstefnunni og fundum sem
nefndin hefurhaldið, hefurm.a. verið
fjallað um nauðsyn samræmdrar þjón-
ustu og reglna milli sveitarfélaganna.
Nefndin mun fylgjast grannt með
þessum málum áfram.
HÚSNÆÐISMÁL
Samvinnunefndinhefurbaristfyrir
því að hús sem byggð eru fyrir fatlað
fólk svari þörfum fólks og kröfum