Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1993, Síða 43
Flutt úr sambýli í íbúð. Bryndís Þórhalls tók myndina.
þjónustuuppbyggingu sem nefnd er
heildstæð einstaklingsmiðuð þjónusta
í heimabyggð.
Norska sveitarfélagið Meland
hefur byggt upp fyrirmyndar samfélag
þar sem þátttaka allra ertalin miklvæg.
Við mörkun stefnu á uppbyggingu í
málefnum fatlaðra á Austurlandi hefur
starfsfólk Svæðisskrifstofunnar sótt
hugmyndir og þekkingu til Meland og
orðið fyrir áhrifum þaðan. Við frekari
þróun á málefnum fatlaðra á Austur-
landi verður reynslan frá Meland
þýðingarmikil, til dæmis það hvemig
þeir hafa aukið ábyrgð sveitarstjómar-
manna og dregið þá inn í umræðuna
um hvernig sköpuð er heildstæð
þjónustafyrirfatlaða í sveitarfélaginu.
Umfang og tilgangur
rannsóknarverkefnis.
Megintilgangur þessa verkefnis
er að gera rannsókn eða könnun á nú-
verandi starfi þ.e. að meta þá þjón-
ustuppbyggingu sem þegar er hafin í
málefnum fatlaðra á Austurlandi og
stefnir að því að fatlaðir hafi tækifæri
og rétt til að búa í sinni heimabyggð
og fá þar þá þjónustu sem lög og
reglugerðir gera ráð fyrir. Skoðað
verður hvernig tekist hefur til við að
skapa heildstæða og einstaklingsmið-
aða þjónustu í heimabyggð, hvaða
þjónusta er veitt, hverjir fá þjónustu í
heimabyggð og með hvaða móti hefur
verið reynt að tryggja félagslega
þátttöku fatlaðra einstaklinga?
Jafnhliða rannsóknarverkefninu er
gert ráð fyrir þróunarvinnu. Þá er ætl-
unin að þróa og lýsa m.a. út frá nið-
urstöðum matsins aðferðum/leiðum
sem eru til þess fallnar að skapa heild-
stæða einstaklingsmiðaða þjónustu í
heimabyggð. Skoðað verður hvað
þurfi að vera til staðar svo hægt sé að
skapa öllum fötluðum félagslega þátt-
töku, búsetuog lífsgæði í heimabyggð-
inni.
Þetta verkefni verður unnið af
starfsfólki Svæðisskrifstofu. Auk
þess er gert ráð fyrir að til þurfi að
koma utanaðkomandi ráðgjöf og hefur
nú þegar verið gengið til samstarfs við
tvo aðila.
Upplýsingaöflun er forsenda þess-
arar þróunarvinnu, til að fá sem
víðtækastar upplýsingar verður leitað
til allra þeirra aðila sem hafa með
heilbrigðis-, mennta- og félags-
þjónustu á Austurlandi að gera. Þessir
aðilareru: S.S.A. (Samband sveitar-
félaga á Austurlandi), sveitarfélög á
Austurlandi (sveitarstjórnir, félags-
málanefndir), heilsugæslustöðvar,
fræðsluskrifstofa, leik- grunn- og
framhaldsskólar og starfsfólk sem
vinnur með fötluðum. Einnig verður
leitað til fatlaðra og aðstandendaþeirra
svo og til hagsmunafélaga fatlaðra.
Samkvæmt lögum um málefni
fatlaðra nr. 59/1992 er tóku gildi 1.
september sama ár, er stefnt að því að
auka hlut sveitarfélaga í þjónustu við
fatlaða og að þjónustan falli meira að
almennri félagsþjónustu sveitarfélag-
anna. Almenn rök meðaukinni ábyrgð
sveitarfélaga varðandi þjónustu við
fatlaðra er að þannig verði enn frekar
stuðlað að samskipan og jafnrétti
fatlaðra á við aðra þjóðfélagsþegna.
Meiri ábyrgð sveitarfélaga stuðlar að
nærþjónustu sem tryggir betri þekk-
ingu á þörfum fatlaðra og þar af leið-
andi meiri líkur á að þjónustan verði
betri.
Reynslan hefur sýnt að mörg
sveitarfélög eru ekki í stakk búin til að
auka ábyrgð gagnvart fötluðum skjól-
stæðingum sínum. Það er því von
þeirra er standa að þessu verkefni að
það stuðli að kynningu á málefnum
fatlaðra og geti þannig auðveldað og
hvatt sveitarfélög til að yfirtaka þjón-
ustu við fatlaða og/eða aukið ábyrgð
þeirra gagnvart fötluðum þegnum
sínum.
Hugtök er tengjast verkefninu
Með hugtakinu “Heimabyggðin
fyrir alla” eða heimahéraðið er hér átt
við að fatlaðir einstaklingar fái þjón-
ustu, sem er aðlöguð sérþörfum þeirra,
á sömu stöðum og aðrir borgarar og í
því sveitarfélagi eða bæjarfélagi sem
þeir eru fæddir í og/eða búa í.
Stefna NFPU, (norræn samtök um
málefni þroskaheftra) sem Hansen
(Berit) gerir grein fyrir lýsir vel hvað
hérerátt við meðheildstæðri einstakl-
ingsmiðaðri þjónustu: að sveitarfélög-
in beri ábyrgð á að byggja upp heild-
stæða þjónustu á öllum sviðum í
heimahéraði, að uppbyggingin eigi
sér stað í samvinnu milli allra þjónustu-
greina, að stefnt skuli að því aðaðlaga
þjónustu að þörfum hvers og eins
einstaklings.
Með heildstæðri þjónustu á öllum
sviðum er m.a. átt við: Ráðgjöf, dag-
vistun, skóla, tómstundatilboð, vinnu,
íbúð.
Með þjónustu við foreldra eða að-
standendur er átt við: Ráðgjöf, hvíld,
að skilgreina reglugerðir, upplýsinga-
miðlun, samvinna við foreldra- og
hagsmunasamtök.
Varðandi heimahérað er átt við að
miðlaupplýsingum og fræðsluþannig,
að íbúar sveitarfélaga geri sér grein
fyrir að þeir eru samábyrgir gagnvart
fötluðum.
Hvað varðar þjónustugreinar og
starfsfólk er átt við að bjóða upp á
þróunarstarf, m.a. námskeið og
framhaldsmenntun. (Berit).
Lífsgæði er eitt af grunnhugtökum
þessa verkefnis. Stangvik segir
að þátttaka í venjulegu lífi í sam-
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS