Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1993, Blaðsíða 45
Lög ÖBÍ
Afbls.35
staðfestur skal af framkvæmda-
stjórn.
d. í ráðningarsamningum skal nánar
kveðið á um starfssvið
starfsmanna bandalagsins.
9. gr.
Reikningsárbandalagsinseralman-
aksárið.
Reikningar þess skulu endurskoð-
aðir af löggiltum endurskoðanda
ásamt tveimur félagskj örnum skoð-
unarmönnum, sem kosnir skulu á
aðalfundi bandalagsins. Endurskoð-
aðir reikningar skulu liggja fyrir
eigi síðar en 1. júní ár hvert.
ÚRSÖGN ÚR
BANDALAGINU
10. gr.
Aðalfundur getur vikið aðildarfélagi
úr Öryrkjabandalagi íslands, gegni
það ekki þeim skyldum, er því ber
samkvæmt lögum og samþykktum
eða vinnur gegn hagsmunum banda-
lagsins og þarf til þess samþykki 2/
3 hluta fundarmanna.
Vilji félag segja sig úr Öryrkja-
bandalagi íslands skal það gjört eigi
síðar en hálfu ári áður en reiknings-
ári bandalagsins lýkur og úrsögn
send stjórninni.
ÖNNURÁKVÆÐI
11. gr.
Aðalstjórn bandalagsins er heimilt
að setja reglur um nánari fram-
kvæmd einstakra lagagreina og
skulu þær birtar aðildarfélögum
þess.
12. gr.
Öryrkjabandalag íslands verðurein-
ungis lagt niður berist um það tillaga,
sem samþykkt er af meirihluta aðal-
stjómar. Skal tillaga sú kynnt við
boð-un næsta aðalfundar. Tillagan
þarf samþykki 2/3 hluta fulltrúa á
aðalfundi og sérstökum fundi full-
trúaráðs, er halda skal minnst þrem-
ur mánuðum og mest 6 mánuðum
eftir aðalfund.
Verði bandalagið lagt niður skulu
eignir þess notaðar í þágu öryrkja á
íslandi samkvæmt ákvörðun síðasta
aðalfundar.
Ákvæði til bráðabirgða 1: „Þegar
framkvæmdastjórn er kosin fyrsta
sinni eftir lögum þessum skulu for-
maður og gjaldkeri kosnirtil tveggja
ára en aðrir stjórnarmenn til eins
árs“.
Ákvæði til bráðabirgða 2: „I fyrsta
skipti skal kosið samkvæmt lögum
þessum á aðalfundi 1993“.
Samþykkt á aðalfundi ÖBÍ. 16/10
1992.
Hvers er rétturinn?
Afbls .34
Það þykir nú sjálfsagður hlutur
að allir hafi aðgang að síma. Alþingi
hefur verið svo vinsamlegt að
úthluta blindu og sjónskertu fólki
nokkrum frísímum, þannig að
notendur frísíma þurfa einungis að
borga umframskrefin. Fyrir
nokkrum árum fórum við hjá
Blindrafélaginu að huga að því hvort
ekki væri hægt að fá símaskrána
gefna út á stafrænu formi svo að
blindir tölvunotendur gætu flett upp
í henni. Blindrafélagið hafði
samband við Póst og síma, sem
benti okkur á að skrifa tölvunefnd,
sem gaf grænt ljós. Fyrir tæpum
tveimur árum var svo símaskráin
tilbúin á þennan hátt. Þá höfðum
við samband við yfirmann
fjarskiptasviðs Pósts og síma og
fórum fram á að fá tiltekinn fjölda
af símaskránni endurgjaldslaust og
bentum á að allir símnotendur fá
símaskrána prentaða og geta þannig
flett upp í henni, ef sjónin er í lagi.
Þessi ágæti yfirmaður varð fúslega
við beiðni okkar og fögnuðum við
mjög á þeim föstudegi, sem þetta
gerðist. Strax á mánudeginum eftir
umræddan föstudag kom í ljós að sá
dagur var til mæðu. Nokkrum
undirmönnum yfirmannsins líkaði
ekki ákvörðun hans og lyktir urðu
þær að Póstur og sími bauð
símaskrána á tölvutæku formi á 50
þús. krónur eintakið, en buðu okkur
helmingsafslátt. Við fórum á fund
póst- og símamálastjóra og þaðan á
fund samgönguráðherra með
áskorun um þetta mál frá félagsfundi
Blindrafélagsins, en neikvætt svar
barst frá ráðherra eftir að málið
hafðiveriðþartilumfjöllunarírúma
tvo mánuði. Þannig standa mál nú
að þeir, sem eru sjónskertir, en geta
með tilstyrk tölvu flett upp í
símaskránni þurfa að greiða 25 þús.
krónur fyrir eintakið. Okkur þótti
að vonum ranglæti heimsins mikið
í þessu máli, en ákváðum að vera
bjartsýn í þeirri von að réttlætið
sigri á einhvern hátt og sjónskertu
fólki verði gert kleift að notfæra sér
símaskrána endurgjaldslaust eins
og öðrum símnotendum, sem þurfa
að greiða eitthvað undir þúsund
krónum fyrir eitt aukaeintak.
Gísli Helgason.
Minningar frá...
Af bls 37
Logum, Sigurgeir Björgvinsson
harmónikkuleikari, Hjálmar
Guðnason, Diddi fiðla og fleiri
spiluðufyrirdansi.Menn skemmtu
sér konunglega og það var dulítið
kalt á sviðinu svo að menn ornuðu
sér með eldvatni af ýmsum gerðum.
Um tvöleytið hafði fækkað svo í
hljómsveitinni að við Arnþór sáum
okkur tilneydda að fara upp á svið
og halda áfram með Sigurgeiri og
Sissa Þórarins trommara. Fljótlega
bættist Hermann Ingi Hermannsson
við og fyrr en varði var klukkan
orðin fjögur. Þá auglýsti ég eftir
formanni þjóðhátíðarnefndar til
þess að slíta þjóðhátfðinni, en hann
gaf sig ekki fram og hefur ekki gert
enn. Ég kallaði þá að nú væri ballinu
lokið. Þá upphófust mikil
fjöldamótmæli og nokkrir vaskir
menn röðuðu sér á sviðsbrúnina
svo að við komumst ekki niður og
héldum áfram. Þegar klukkan var
korter yfir fimm um morguninn og
sólin risin á fætur, sá ég smáskarð í
vegginn, reif í Arnþór og dró hann
niður af sviðinu og með dyggri
aðstoð Hrafns Baldurssonar
tæknimanns frá útvarpinu, hlupum
við eins og fætur toguðu út af
svæðinu með dansgesti á hælunum
því að þeir vildu halda áfram.
Pallbíll frá rafveitunni var að fara í
bæinn og við hentum okkur upp á
hann og lentum í kaffi á
slökkvistöðinni, þar sem ég hringdi
í Jón Múla og sagði honum að
þjóðhátíðinni hefði lokið óformlega
um hálf sexleytið. Formlega er
henni ekki enn lokið og mun varla
ljúka héðan af, því að svo
minnisstæð er hún.
Gísli Helgason.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS