Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1998, Blaðsíða 39

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1998, Blaðsíða 39
s s Olöf S. Eysteinsdóttir form. MG-félags Islands: MG- sj úkdómurinn og MG-félagið MG-félag íslands er félag sjúklinga með Myasthen- ia Gravis sjúkdóminn (vöðvaslensfár), aðstandenda þeirra og annarra sem áhuga hafa á málefninu. Félagið var stofnað 29. maí 1993 og varð þá til tæki til þess að rjúfa einangrun MG-sjúkra, kynna sjúkdóm- inn og styðja við bakið á sjúkling- unum og fjöl- skyldum þeirra. Það sem að baki bjó var löngunin til þess að forða öðrum frá því að þurfa að læra allt af reynslunni. MG er sjaldgæfur sjúkdómur sem finnst hjá fólki á öllum aldri en kemur oftast fram seint á gelgjuskeiði eða á fullorðinsaldri. MG er sjálfsnæmis- sjúkdómur þar sem taugaboðin ná ekki að virkja vöðvana. Hömlunin leynir sér og einkennin eru breytileg frá einum degi til annars og einni klukkustund til annarrar. Eftir stutta hvíld endurnýjast kraftarnir og þess vegna er áríðandi fyrir sjúklinga með MG að hvflast vel og ofreyna sig ekki. Hjá mörgum eru fyrstu einkennin þau, að augnlokin verða þung svo erfitt verður að halda þeim uppi. Margir sjá tvöfalt og eiga erfitt með að tala, Hlerað í hornum Jökuldælingur einn settist að á Djúpavogi og var spurður að því hverju það sætti. “Jú, það er nú saga að segja frá því. Eg fór fyrir þrem árum á vertíð á Hornafirði og vann mér inn dágóða fúlgu, keypti ágæta dráttarvél og fór með hana heim en pabbi tók hana. Veturinn eftir vann ég mér inn enn meira á Hornafirði og keypti mér þennan líka fína jeppa, fór á honum heim en pabbi tók jeppann. tyggja eða kyngja. Sjúklingurinn verður nefmæltur og röddin drafandi, sérstaklega í löngum samtölum. Aðrir verða þannig varir við sjúkdóminn að þeir hrasa oft og missa hluti út úr höndunum. Þeir eiga erfitt með að rísa úr sæti og ganga stiga. Það getur verið erfitt að halda höfði af því hnakkavöðvarnir verða kraftlitlir. Þungt verður að lyfta handleggjum og fótum. Einkennin koma fram í and- litsvöðvum þannig að eðlilegt lát- bragð hverfur. Andlitið fær á sig þreytublæ og fólk getur hvorki hlegið né brosað. Því er það að MG sjúkling- ar líta oft út fyrir að vera leiðir eða gramir þó þeir séu glaðir. Ymis lyf eru notuð til þess að viðhalda og auka styrk vöðv- anna. Einnig hefur verið beitt blóð- vatnsskiptum og er brottnám hóstar- kirtils talið árangursríkt. Oft hefur viljað brenna við að sjúkdómsgrein- ing sjúklinga með MG hafi ekki reynst rétt í upphafi. Hefur fólkið jafnvel verið talið taugaveiklað, duglaust, latt eða bara ímyndunarveikt og fengið róandi lyf eða svefnlyf. Þessi lyf hafa auðvitað mjög alvar- legar afleiðingar fyrir sjúklingana þar sem vöðvar þeirra slappast enn meira en ella. Besta vopnið í baráttunni við sjúkdóma er menntun lækna, þar á eftir er fræðsla sjúklinga. Hver kannast ekki við það að hafa Nú þriðja veturinn kynntist ég þessari líka yndislegu stúlku og ég þorði ekki að fara lengra en á Djúpavog með hana”. Bóndi einn að austan lá banaleguna syðra en var léttur í máli sem áður. Einn morguninn sagði hann hjúkkunum frá því að nú hefði hann séð yfir um síðustu nótt. “Og hvernig var þar?”, spurðu þær. “O, jæja, það var svona eins og að sjá ofan í Seyðisfjörð”. grennslast fyrir um það hjá öðrum, ef hann er veikur eða einhver í fjölskyld- unni, hvort einhver kannist ekki við einkennin og finna fyrir létti ef ein- hverkannastviðflensuna. Sásemfær sjaldgæfan sjúkdóm er mjög einmana, ekki síst sjúkdóm eins og MG þar sem fötlunin er falin. Það er nauðsynlegt fyrir MG-sjúka að fræðast um MG og hitta aðra með svipaða reynslu. s Aþessum fimm árum sem liðin eru frá stofnun félagsins hefur ýmislegt áunnist. Félagið hefur haldið fundi, þar sem fyrirlesarar hafa komið fram með ýmsan fróðleik. Tekið þátt í sýningum og erlendum fundum þ.á.m. norrænu samstarfi. Við höfum látið gera texta við mynd um einkenni MG-sjúkdómsins og einnig látið þýða efni um sjúkdóminn. Félagið hefur gefið út bækling sem skýrir sjúkdóminn Myasthenia gravis. Einnig má finna fróðleik um félagið og sjúkdóminn á heimasíðu ÖBÍ www.obi.is. Félagið hefur gefið út lyfjakort fyrir sjúklinga með Myasthenia gravis- sjúkdóminn (vöðvaslensfár). Á kortinu er skrá yfir nokkur lyf sem MG-sjúkir eiga að forðast. Einnig er á kortinu stutt lýsing á sjúkdómnum. Lyfjalistann gerði Sigurður Thorlacius doktor í taugalæknisfræði. Hlín Gylfadóttir listakona hannaði útlit kortsins. Það er mikið öryggi fyrir sjúklingana að geta nú borið á sér miða sem bæði lýsir sjúkdómnum og aðvarar um lyf sem MG-sjúkir eiga að forðast. Stjórn félagsins skipa; Ólöf S. Eysteinsdóttir formaður, séra Hjalti Guðmundsson ritari, Guðrún Þor- geirsdóttir gjaldkeri og Dröfn Jóns- dóttir til vara. Stjórnin vill þakka öll- um sem lagt hafa félaginu lið frá stofnun þess. Aðalfundur félagsins var haldinn þann 16. maí í kaffisal ÖBI. Þar hittust félagarnir og drukku afmæliskaffi. Ólöf S. Eysteinsdóttir FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 39

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.