Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1998, Blaðsíða 35

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1998, Blaðsíða 35
Oft þurfti Sigmar að vega sig upp úr stólnum á Hverfisgötunni, og ekki alltaf fyrir viðskiptavini. Fólk hringdi tíðum bjöllunni til að fá skipt í stöðumæli. Sigmar stundaði lengi kraftlyftingar, keppti meira að segja á Olympíuleikum fatlaðra. Nú segist hann nýlega farinn að nota hjólastól í utanlandsferðum. Að sjá Sigmar ganga rösklega við staf, sýnir ekki að þar fari mikið fatlaður maður. Að sjálfsögðu á Sig- mar góða glettnissögu af ímynd sjálfs sín á almannafæri. “Okkur vinunum í gullsmíðastétt kom eitt sinn saman um, að bestu vín- kaupin væru í messuvíni. Einn okkar var sendur út af örkinni og sneri tilbaka með messuvín úr Ríkinu. Þeg- ar kom að mér að kaupa messuvínið, virti afgreiðslumaðurinn mig fyrir sér og sagði: “Messuvín er aðeins selt prestum”! Hann sá á mér, að ég gæti ekki verið prestur. Hinn var prestleg- ur, ekkiég. Hvað, efséraPéturkæmi? Eg var beðinn um að tala við séra Pétur, áður en seinni fótur hans var fjarlægður. Pétur er stórmerkur mað- ur. Fyrir hans tíð hefði þótt útilokað, að svo fatlaður maður sinnti prests- störfum. Nú er Pétur einn af vinsæl- ustu prestum landsins. Alltaf er verið að ryðja fleiri hindrunum úr vegi fyrir fatlaða, en löng leið er enn til jafnréttis”. Sigmar gengur inn í sitt listræna umhverfi. Gesturinn hverfur á braut, en hugurinn er hjá honum. Sem einveran og síðasta höggið á vonandi eftir að hvetja til meiri dáða í listsköpun. Þótt gömlu alþýðuverkfærin hverfi í Viðeyjarstofulegt grjóthleðsluhús á Sauðanesi til að glæða fortíðarvitund ferðamannsins, er nokkuð víst að vinnustofa Sigmars geymir áfram kirkjulega dulúð. Það er ekki öllum gefið að meitla saman “bláa mána- steina og silfurskin”. A kvöldferð í morgunbjarma beinir hann sjónauka sínum að fuglunum, sem láta vængina bera sig yfir heims- ins höf. “Nú er gaman að skoða mar- gæsina á Alftanesi”. Oddný Sv. Björgvins. Hrafn Sæmundsson fulltrúi: Blöð rósarinnar Blátt eins og hafið kom Ijóðið til hans í morgunsárinu og hann fann frelsið snerta hverja taug. Eitthvað hafði gerst bakvið orðin og Ijóðið lifnaði í vitundinni á ókunnu máli. Álagahamurinn féll af Ijóðinu og nýjar fjaðrir uxu í blámanum. Frelsið sigldi þöndum seglum og bað aðeins um svalt sjávarloftið undir vængina. Ljóðið ólgaði ósnertanlegt á öldum hafsins meðan gömul orð lágu bundin á botni hugans. Á bláum sjónum flaut rósin og breiddi út blöðin. Og blöð rósarinnar opnuðust og hann horfði í djúpið á fjólubláum sal þar sem ný orð spruttu fram og frelsið skaut rótum í rakri moldinni. Hrafn Sæmundsson Hlerað í hornum Pavarotti sá Lionsmerki í barmi þeirra Kristins Hallssonar og Guðmundar Jónssonar, hinna frábæru söngvara okkar, og Kristinn segir í bók sinni að það hafi orðið Pavarotti tilefni þessarar sögu er hann sagði þeim félögum í lauslegri endursögn. Vinur hans var á ferð í fjalllendi á Ítalíu; lenti í aftakaveðri og sá sig loks tilneyddan að beiðast gistingar á afskekktum bóndabæ. Þar kom til dyra ung og falleg kona sem kvaðst ekki geta hýst hann þar sem bóndi sinn væri ekki heima og aðeins eitt íveruherbergi á bænum. Gesturinn benti þá á Lions- merkið í barmi sér og sagði að menn sem í þessum félagsskap væru gerðu aldrei neitt ljótt eða óheiðarlegt. Fékk hann þá gistingu, svaf af um nóttina og þegar hann vaknaði var konan komin út. Hana fann hann svo úti á hlaði að gefa hænsnum sínum morg- unmatinn. Gesturinn sá að í hópnum voru hanar tveir, undraðist það mjög og spurði konuna, hvernig í ósköpunum það gengi að vera með tvo hana, hvort ekki væri endalaust hanaat á ferð. Þá brosti konan ísmeygilega og sagði: “Nei það gengur ágætlega, sko annar sinnir sínum skyldum eins og bezt verður á kosið, hinn er sko þú veizt - svona Lions”. *** Það gerðist í sjötugsafmæli manns eins. Mikil veizla var haldin og vel veitt í mat og ekki síður drykk. Af- mælisbarnið brá sér fram á snyrting- una og þar heyrðist hann tauta fyrir munni sér: “Skömmin þín. Nú værir þú orðinn sjötugur líka ef þú hefðir ekki verið dauður fyrir tuttugu árum, Sú litla þriggja ára átti að gista hjá frændfólki og þangað fór mamma hennar með hana. Eftir nokkra stund ókyrrðist sú stutta og sagði aftur og aftur: “Mamma farðu bara.” Þásagði móðirin: “Já ég skal sko fara, langt, langt í burtu. Og hvað ætlar þú þá að gera?” “Þá fer ég með þér,” sagði sú stutta. FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 35

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.