Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1998, Blaðsíða 28

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1998, Blaðsíða 28
Þemahefti um áfengi og vímuefni Geðverndarfélag íslands heldur áfram þeim ágæta sið að senda árlega frá sér þemahefti um ýmis umhugsunarverð efni og nú er það þemahefti um áfengi og frkniefni sem nýkomið er út. Eins og önnur slík áður er þetta hið fróðlegasta rit og aðeins fært að tæpa hér á afar takmarkað. Eiríkur Örn Arnarson rekur efni greinanna stutt- lega og við hans glöggu en knöppu lýsingu er hér stuðst. Hann minnir á að neysla áfengis og annarra vímuefna hafi aukist verulega á íslandi á undanförn- um árum. Hann vill að við sé staldrað nú þegai' háværar raddir eru um tilslakanir ýmsar í þessum efn- um. Forvarnir- orð og athafnir. Islensk áfengismálastefna á 20. öld nefnist ítarleg grein prófessors Tómasar Helgasonar fv.yfirlæknis. Þar bendir Tómas á væn sannindi s.s. að hvers kyns áfengisvandamál eru nátengd heildarneyslu í samfélaginu og meiri heildarneysla leiðir af sér fleiri stórneytendur og meiri vanda- mál. Tómas rekur svo söguna allt frá því áfengisbanni var á komið og til okkar tíma, fáir munu Tómasi fróðari um allt er þessu viðkemur m.a. allri lagasetningu um áfengismál. Hann minnir þarna á hin fögru fyrirheit íslenskrar heilbrigðisstefnu sem ríkis- stjórnin fékk samþykkta 1991 og and- hverfu hennar í undanlátssemi og til- slökunum æ síðan af hálfu Alþingis og framkvæmdavalds. Tómas minnir á skort á heildstæðri stefnu stjórnvalda í þessum efnum og segir tvískinnunginn gagnvart áfeng- inu makalausan, um áfengi eigi að tala sem fíkniefni. Áfengisneysla á öldinni hefur fjór- faldast og að sama skapi hafa líkur á því að fólk verði vímuefnavanda að bráð stóraukist. Framtíðarsýn stjórnar ÁTVR gengur þvert á stefnu stjóm- valda í áfengisvörnum. Jóhannes Bergsveinsson yfirlæknir fer enn lengra aftur en Tómas í grein sinni glöggri: Baráttan við Bakkus. Fer aftur til Egils Skalla- grímssonar og Goðmundar á Glæsi- völlum sem vitnisburð um að finna megi í elstu heimildum dæmi um ölskap ekki óáþekk þessum sem hann tilgreinir. Hann rekur svo söguna skemmtilega með tilvitnunum ýmsum m.a. upphaf bindindishreyfingar í Bandaríkjunum og svo hér m.a. með upphafi Góðtemplarareglunnar. Bannið og saga þess kemur og vel fram og Jóhannes vitnar til Guð- mundar Bjömssonar síðar landlæknis sem árið 1900 segir: “Drykkjuskapur er sjúkdómur”. Jóhannes rekur ræki- lega ástæður þess að kippt var stoðun- um undan þeim jákvæðu áhrifum er áfengisbannið hafði. Hann minnir einnig á reynslu Bandaríkjamanna af áfengisbanni. Jóhannes hverfur svo til nútímans og fer yfir ástand í áfengismálum annarra þjóða s.s. Frakka og Rússa. Hann varar í lokin við tilslökunar- stefnunni og gróðahyggjunni: Því er hætt við að aftur lokist hringurinn og Bakkus beri sigur af hólmi, segir í lolcin. Oddi Erlingsson yfirsálfræðingur á greinina: Fíknihugtakið. Vímuefnafíkn og áfengisfíkn. Hann bendir m.a. á að farið sé að tengja margt áráttukennt atferli við hugtakið fíkn, þó gildandi greiningarkerfi tengi við það einungis ofneyslu vímuefna. Rekur svo þróun greiningarkerfa og líkön þau sem fram hafa verið sett. Varar við of frjálslegri skil- greiningu hugtaksins fíkn. Vímuefnið áfengi í velferðar- og neyslusamfélagi nú- tímans nefnist grein Hildigunnar Ólafs- dóttur yfirfélags- fræðings. Hún rekur þar forsendur norr- ænnar áfengismála- stefnu m.a. áherslu á ytra eftirlit, sem er öðrum býsna fjarlægt. Hugmyndin að baki velferðarrík- inu var að gæta hagsmuna þeirra hópa sem ekki höfðu afl til að tryggja eigin velferð, segir Hildigunnur. Besta forvörnin:að draga úr heildarneyslu nýtur vaxandi fylgis. Atlaga að norr- ænni áfengismálastefnu er svo sér- kafli í grein Hildigunnar: Minnkandi innri stuðningur: Aðrar áherslur m.a. tillögur stjórnar ÁTVR sem enga afstöðu tekur til heilbrigðis- og félagsmála, en vill fyrst og fremst laga sig að villtustu óskum neytenda. Svo kemur til ógnun að utan með EES samningi og hugsanlegri ESB aðild. Þó hefur Evrópudómstóllinn kveðið upp úrskurð um að einkasala áfengis standist. Hildigunnur bendir á að með hnignun þjóðríkisins færist valdið út á við til stærri heildar og inn 28

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.