Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1998, Blaðsíða 31

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1998, Blaðsíða 31
Eldri kona kemur að sækja hring úr viðgerð. “Eins og nýr, endist í 43 ár”, segir Sigmar og afhendir henni gullhring- inn. Eigandinn brosir, telur sig ekki verða hringsins aðnjótandi svo lengi. Ungt par mátar trúlofunarhringa. Trúin, lífið, fólkið. Merkisatburðir í lífi fólks endurspeglast á borði gull- smiðsins. “Ef maður gæti undið ofan af lífs- spólunni”, segir sá sem búinn er að mæta mörgum áföllum á lífsleiðinni, “en ef ekkert kæmi fyrir, þyrfti maður ekki að hugsa”. Höggið sem gjörbreytti lífinu igmar hellir upp á sterkt kaffi, áður en farið er að rifja upp högg- ið sem hitti hann í blóma lífsins, fyrir 42 árum. Sest síðan með kaffibollann og hagleikshöndin iðar. Skissa fæðist af hjólastól... “Eg var að vinna við radarstöð á Heiðarfjalli á Langanesi, fyrir vernd- ara okkar Bandaríkjamenn, haustið 1956. A laugardagskvöldi keyri ég niður í sveit til að ná í konu eins vinnufélaga míns. Er á leið upp fjallið aftur, þegar ég þarf að stoppa og bæta vatni á Willys-jeppann (’47). Eg stend fyrir framan bílinn, og er að stumra yfir vatnskassanum, þegar annar Willys-jeppi kemur akandi niður fjallið. Bíllinn hjá mér er með fullum ljósum, en staðsettur á öfugum vegkanti, þeim megin sem vatnsrenna var við veginn. Vegurinn var nógu breiður, en bílstjórinn blindast eða ruglast (hélt að hann væri að mæta bfl) - og lendir beint framan á mínum bfl. Höggið var svo mikið, að minn bíll hentist aftur um sjö metra. Þama klemmist ég á milli járnstuð- ara, sem féllu alveg saman - og klipptu fæturna undan mér, eins og skæri. Annar fóturinn hékk á taug. Hinn brotnaði í kássu og þurfti að fjarlægja hann tveimur dögum síðar”. arna liggur Sigmar í mölinni í blóði sínu. Og sýnir ekki síðri viðbrögð en fornhetjur Islendinga- sagna. “Eg missti aldrei meðvitund, en reif strax af mér beltið og batt fyrir stúfinn. Fékk hina til að binda fyrir brotna fótinn. Þeir keyrðu strax með mig niður á Þórshöfn - um 20 mínútna akstur. Sem betur fer var læknirinn heima, því að mér var næstum blætt út, fékk blóðgjöf frá frænda mínum”. A þessum tíma var Björn Pálsson flugmaður bjargvættur margra sem lentu í slysum. Myrkur og auð jörð þegar slysið varð, en um nóttina gerði stórhríð svo svarta að ekki var viðlit að fljúga. Fyrst á mánudegi var hægt að fljúga með Sigmar á Akureyrar- spítala. Þá var komið drep í brotna fótinn. “Sárin voru mjög óhrein og lengi að gróa,” segir Sigmar. “Síðar varð að skera fyrir ofan hnén, til að fá pláss fyrir hnjáliði. Guðmundur Karl skurðlæknir gekk mjög vel frá þessu, setti hnéskelina undir svo að ekki var eins sárt að stíga á gervifætuma. Ég lá á sex manna stofu, merkilega andskoti fjörugt, og kynntist geysi- mörgum skemmtilegum mönnum sem hafa enn samband við mig. Þeir lágu stutt, en ég var í ellefu mánuði.” Sigmar réttir fram teikningu af gamaldags bólstruðum hægindastól með trérullu að framan, einu stóru hjóli að aftan. “Svona var eini hjólastóllinn á Norðurlandi árið 1956 - stóll, eins og maður sér í gömlum breskum kvik- myndum. Ég sat eins og “lord”, en alltaf þurfti einhver að ýta. Eitt sinn beygði ég mig of mikið til hliðar og kollsteyptist. Stóllinn var býsna valt- ur, með einu hjóli að aftan! Að komast á fætur Annað eins slys á einum manni hafði víst aldrei orðið á íslandi. Þetta var mikið í fréttum og margir héldu að líf mitt væri búið. Einhvern tíma hefði mér verið komið fyrir á elli- heimili sem stórfötluðum manni með enga framtíð. Ég átti góða kærustu, sem var ófrísk þegar slysið varð. Enginn hefði undrast, þótt hún hefði sagt skilið við svo farlama mann, en Þórdís Jóhannsdóttir stóð eins og klettur við hlið mér. Hún flutti til vinafólks okkar á Akureyri og heim- sótti mig daglega. I júní ’57 fæddist okkur fyrsta dóttirin. Um haustið flytjum við til Reykja- víkur og gátum flutt inn í eigin íbúð, 94 fermetra jarðhæð við Rauðalæk, sem slysabæturnar 300 þúsund kr. dugðu fyrir - sambærilegar bætur í dag geta numið tugum milljóna. Hjóla- stól pantaði ég frá reiðhjólaverk- smiðju Fálkans sem þeir smíðuðu af eigin hugviti. Sá leit út eins og hjóla- stólar núna, nema að undir honum voru reiðhjólahjól”. Sigmar er fljótlega sendur til Kaupmannahafnar og lagður inn á Ortopedisk Hospital. Þar fær hann þjálfun í þrjá og hálfan mánuð og er sendur heim á nýjum gervifótum. “Fyrstu gervifæturnir mínir voru fornaldargripir miklir úr tré og leðri. Þegar ég steig á þá fyrst, þótti mér vonlaust að maður gæti staðið kyrr, hvaðþágengiðáþessu! Áþeimgekk ég í tólf ár. Nýju fæturnir frá Össuri eru geysileg tæknibylting og á heims- mælikvarða. Ég kom heim í mars ’58. Það tók mig fjórtán mánuði að komast aftur á fætur. FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 31

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.