Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.2000, Blaðsíða 4

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.2000, Blaðsíða 4
Saga Reykjalundar er ævintýri íslensku þjóðarinnar. I hugsýn má sjá hermannabragga stríðsáranna víkja fyrir glæsilegu heilsuhæli; gróðurvana mela græðast upp með grasflötum og trjágróðri; máttlítil ungmenni eftir átök við hvíta dauðann ganga þar inn um dyr - og út í lífið aftur, endurnærð á líkama og sál. Saga Reykjalundar er einn af bautasteinum íslenskrar menningarsögu. Og ævintýrið heidur áfram... Mótaði nýjan Reykjalund Andlegur styrkur er mikilvægastur í allri endurhæfingu - segir Haukur Þórðarson fyrrverandi yfirlæknir á Reykjalundi Leiðin liggur að þessu sinni í heilsuþorpið Reykjalund. Á vit manns sem gerði Reykjalund að stærstu og fullkomnustu endur- hæfingarstöð landsins. Haukur Þórðarson er fyrsti endurhæfingar- læknir á Islandi. Ráðning hans til starfa á Reykjalundi, árið 1962, lagði grundvöll að endurhæfingu á staðnum að sögn Odds Ólafssonar sem var yfirlæknir fram til 1970, en Haukur tók við fram til 1999. Mikið er búið að byggja og endur- bæta á Reykjalundi á þessu 29 ára tímabili og auðvelt að sjá að starf yfirlæknis hefur verið umfangs- mikið. Starfsmönnum hefur ijölgað frá 35 upp í 200. Vistrými eru nú 170, voru 92 fyrstu árin. Dvalartími hefur styst, gegnumstreymi marg- faldast. Og ennþá er verið að byggja, nýtt þjálfunarhús og sund- laug eiga eftir að gjörbreyta að- stöðunni. Haukur stendur vörð um þær nýjungar sem formaður SÍBS. Haukur Oddný Sv. Þórðarson Björgvins Haukur upplifði kraftaverkið þegar nýju lyfin komu sem slógu á hvíta dauðann. Hann var líka vitni að því þegar sjúkdómar breyttra lífshátta fóru að láta bæra á sér - sjúkdómar sem hann vill líkja við berklafaraldur gamla tímans. Fyrrverandi yfirlæknir býr í nokkurra skrefa íjarlægð frá endur- hæfingarmiðstöðinni, hús Hauks og Maríu stendur í brekkunni niður undan Reykjalundi. Hér ríkir sérstakt samfélag fólks sem býr í nábýli við endurhæfingarmiðstöðina og vinnur saman á daginn. María Guðmundsdóttir, eiginkona Hauks, er hjúkrunarfræðingur og vann líka á Reykjalundi. „Velkomin.“ Haukur á traustvekjandi handaband, rólegt og hlýtt viðmót. Sýnilega maður sem er ekki vanur að tjá sig um eigin persónu, trúlega þjálf- aðri í að hlusta á reynslusögur annarra, eins og góður læknir. „Hann er þessi hljóðláti, hógværi maður sem vildi aldrei trana stöðu sinni fram... afar vandvirkur í sínum störfum og gerði þá kröfu til annarra,“ sagði einn af samstarfsmönnum hans á Reykja- lundi. Við setjumst í mjúk hægindi framan við arin, kaffi og meðlæti á borði, um- hverfi fyrir notalegt spjall. Athygli vekur gluggaveggur eftir endilangri stofunni sem gefur útsýni yfir hávaxin grenitré til mjúkra ása ofan við Reykja- lund og Esjunnar. Gaman að sjá stofu og garð tengjast svona vel. 4
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.