Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.2000, Blaðsíða 32

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.2000, Blaðsíða 32
Frá Landssamtökum hj artasj úklinga r tilefni ágætra atburða hjá sam- tökum hjartasjúklinga komu þeir hingað Ásgeir Þór Árnason framkvæmdastjóri Landssamtaka hjartasjúklinga og Rúrik Kristjánsson starfsmaður samtakanna til íjölda ára og við Guðríður nýttum tækifærið og yfirheyrðum þá um atburðina og landsþingið og sitthvað fleira. Fyrst spurðum við um afmælis- fagnaðinn hjá Félagi hjartasjúklinga á Reykjavikursvæðinu en hann var ánægt með greið og glögg svör lækn- anna. Þar var m.a. komið inn á stál- hjartað nýja, dýrmætt mjög, miklar framfarir í lyfjum og lyíjameðferð, minnt á að nú eru gjörðar hjartaað- gerðir á sláandi hjarta án öndunar- vélar, sjúklingur svæfður, hjartað kælt niður og hægt á því, lyf komin til að leysa upp fitu í æðum, leisertækin til að hreinsa æðar nefiid, komið vel inn á andlega þáttinn og vikið að fæðuvalinu svo eitthvað sé nefnt. Stjórn Landssamtaka hjartasjúklinga. haldinn 16. sept. sl. á Hótel Sögu og hann sóttu um 200 manns. I upphafi lék þar jasshljómsveit Árna ísleifssonar og gladdi vel geð manna. Síðan voru hinar líflegustu pallborðsumræður að loknu ávarpi formanns félagsins, Vilhjálms B. Vilhjálmssonar. Þar svöruðu fyrir- spurnum fundargesta þrír virtir lækn- ar á þessu sviði, þeir Árni Kristinsson yfirlæknir hjartadeildar Landspítala, Kristinn B. Jóhannsson hjartaskurð- læknir Landspítala og Þorkell Guð- brandsson yfirlæknir HL stöðvarinn- ar Hátúni 14. Þátttaka fundarmanna var hin fjör- ugasta og almennasta og fólk afar Ekki spillti svo lokaatriðið þegar Jó- hannes Kristjánsson kitlaði hláturs- taugarnar. í sambandi við þennan 10 ára af- mælisfagnað minntu þeir félagar á það að öll aðildarfélögin í LHS voru stofnuð fyrir 10 árum, haustið 1990 á tímabilinu 15. sept.- 29. sept. þ.á., utan Neistinn sem kom síðar inn í LHS. Þeir minntu um leið á frumkvöðla- starf Haraldar Steinþórssonar og Sigurðar Helgasonar, fyrsta formanns LHS sem forgöngu hafði um stofnun allra félaganna 10. I þessu sambandi gátu þeir um af- mælisfagnað nyrðra 16. sept. þar sem Eyfirðingar sóttu Þingeyinga heim og héldu mjög fjölmennan fagnað með heimatilbúnum, frábærum skemmti- atriðum. En þá að þingi Landssam- taka hjartasjúklinga sem haldið var dagana 22. og 23. sept.sl. Það hófst með fjölsóttu málþingi á fostudeginum þar sem ritstjóri var og setti á blað fáeina minnisverða punkta sem kynntir verða til sögu hér á eftir. Þingið fór hið besta fram en fundar- stjórar voru þau Dóróthea Eyland og Guðmundur Magnússon. í hátíðar- kvöldverði á laugardeginum voru tveir heiðursmenn sæmdir gullmerki samtakanna, en þingið setti einmitt reglugerð um það hversu með gull- merkið og veitingar þess yrði farið. Gullmerkið hlutu Grétar Ólafsson yfirlæknir hjarta- og lungnaskurð- deildar Landspítalans og Gísli J. Ey- land fráfarandi formaður samtak- anna. Eiginkonur þeirra fengu for- kunnarfagra blómvendi um leið. Núverandi stjóm LHS er þannig skipuð: Formaður: Vilhjálmur B. Vilhjálmsson og aðrir í stjórn: Ingi- björg Magnúsdóttir, Jóhannes Proppé, Magnús Þorgrímsson, Pálmi Gíslason, Valur Stefánsson og Þor- björn Árnason. Varastjórn skipa: Aðalsteinn Valdi- marsson, Guðmundur Magnússon og Jónas Jóhannsson. Þess má geta að Jóhannes Proppé hefur setið ffá upp- hafi í stjórn LHS. Þingið samþykkti 4 megin- ályktanir og eru þær birtar hér í lokin, en nú vikið að nokkrum minnisatriðum frá málþinginu: For- maður LHS, Gísli J. Eyland setti mál- þingið og kvað hér myndu rædd “hjartans mál”. Minnti á árangur góðan þessi tíu ár því vissulega hefði miklu verið áorkað. Hann rakti helstu markmið sam- takanna sem hefðu náð langt á þess- um tíma. Staðreynd væri hins vegar sú að hjartasjúklingum fjölgaði. Hann bað því næst Vilhjálm B. 32
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.