Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.2000, Blaðsíða 9
,«*s>
KFUM og man vel eftir séra Friðrik,
það var maður sem áorkaði miklu.
Kirkjuna lít ég á sem sjálfsagðan
hlut.“
Við ræðum aðeins um ráðgátu lífs-
ins og ég spyr, hvort andlegi styrk-
urinn sem hann er búinn að glíma
við að glæða hjá sjúku fólki sé sá guð
sem búi innra með hverjum manni?
„Það má ef til vill setja dæmið upp
með þeim hætti, en víst er að trúin
hefur verið mörgum mikill styrkur á
langvinnu og oft erfiðu ferli endur-
hæfingar.“
Eru einhverjir sjúkdómar i dag
sambœrilegir við berklana?
„Ýmsum sjúkdómum sem herja á
nútímaþjóðfélag má líkja við berkla-
faraldurinn, þar vil ég nefna geðsjúk-
dóma, krabbamein og sjúkdóma í
miðtaugakerfi. Sumt af þessu er til-
komið vegna lífsstíls fólks, eins og
æðakölkun, offita og reykingar. End-
urhæfing á Reykjalundi felst einnig í
því að kenna fólki rétta lífshætti - í
fæðuvali, vinnustellingum og hvíld-
arslökun - að láta ekki undan streit-
unni.“
Nú ertu húinn aö vera yfirlœknir
á stœrsta endurhœfingarspítala
landsins í 29 ár. Hvað var erfióast?
Haukur og María á köldum klaka á góðri
útiverustund í Bláfjöllum.
tæpan áratug. Hann ætlaði sér alltaf
austur og taka upp þráðinn, en þá var
mamma nýflutt til Reykjavíkur og gat
ekki hugsað sér að fara í sveitina
aftur.
Pabbi dó fyrir 40 árum, en mamma
dó í fyrra þá 98 ára gömul. Pabbi átti
alltaf jörðina. Nú eigum við bræð-
umir þetta gamla sveitabýli, og gerð-
um samning við skógræktina um að
friða jörðina undir skógrækt. Hraun-
tún hefur nú verið friðað í 20 ár og
við María búin að gróðursetja þar
mörg tré.“
Steinar, bróðir Hauks, vann í hálfa
öld í bókaverslun Sigfúsar Eymunds-
sonar og margir kannast eflaust við
hann þaðan. Steinar er ógiftur og
barnlaus og búinn að missa heilsuna.
Svo að þú léttir á huganum með
því aö fara út að gróðursetja tré?
„Já, gróðursetning er áhugamál. Ég
er hvorki í golfi né spilamennsku, en
hef gaman af ferðalögum og útiveru.
I Hrauntúninu er búið að skipuleggja
byggingarreiti fyrir sumarhús bama-
barnanna. Þar dveljum við María eins
oft og hægt er.“
Haukur á fjögur börn úr fyrra
hjónabandi, fimmtán barnabörn og
tvö barnabarnabörn - dágóður af-
komendahópur. Einn sonur Hauks,
Pétur er starfandi geðlæknir á
Reykjalundi og býr í Mosfellsbæ, og
annar sonur, Þórður, býr þar einnig
með fjölskyldu sinni. Tvö barnanna,
Magnús og Gerður, búa í Reykjavík.
Dóttir Maríu og uppeldisdóttir
Hauks, Dóra, býr með ijölskyldu
sinni í Mosfellsbæ, svo segja má að
yngri kyn-
slóðin haldi sig
í nálægð við
Hauk og
Maríu.
„A einni viku
í desember sl.
varð ég tvö-
faldur langafi,“
segir Haukur,
stoltið í röddinni leynir sér ekki.
„Ef fólkið okkar kemur saman, þá
er þetta óðar komið upp í 24-28
manns.
María spilar á píanó og við syngj-
um. Mikið er farið í leiki og jafnvel
leikrit sett á svið - allt undir stjórn
Maríu sem hefur kveikt þennan
áhuga hjá börnunum.
María hætti að vinna sem hjúkr-
unarfræðingur fyrir 5 árum. Síðan
hefur hún sinnt sinum áhugamálum.
Hún er á sviðinu hjá Leikfélagi Mos-
fellssveitar og hefur leikið minni
hlutverk í kvikmyndum.“
Kátt á hjalla hjá Hauki og Maríu og
sjötugsafmælið hans var dálítið sér-
stakt.
„Þá settu krakkarnir upp allskonar
skemmtiatriði og fiðluspil. Pétur á
ljórar dætur sem eru mikið í tónlist.
Ég lét gestina mæta kl. tíu á sunnu-
dagsmorgni og veislan var búin kl.
tvö. Síðan hafa aðrir tekið upp þessa
hugmynd sem er bráðsniðug.“
Ertu trúaður maður, Haukur?
„Ég er efasemdamaður í trúmálum.
Ég líð ekki fyrir þessar efasemdir, en
það er margt sem ég næ ekki að
skilja. Sem strákur var ég mikið í
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
9