Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.2000, Blaðsíða 37
Bernskunnar
blíðu jól
Er nálgast heilög hátíð
og hjartað örar slær.
í huga merlar minning
sem mér er hugumkær.
í bænum gamla en bjarta
þar barn ég átti skjól
hvarf myrkrið mínu hjarta:
Á morgun voru jól.
Og ánum gaf ég græna
og góða tuggu þá.
Ég gerði stans hjá Gibbu
sem gælur vildi fá.
Ég herra Skjóna hressti
og honum blítt ég strauk.
Á mér var asi mesti
er útiverkum lauk.
í bænum ilm og angan
ég óðar nam og fann.
Ég fylltist ljúfri langan
og ljós í stjaka brann.
Þó mamma stæði í striti,
hún strauk um vanga mér.
Mér lýsir líkt og viti
sú ljúfa minning hér.
Þó burtu sé hin bjarta
og bernskulétta þrá,
ég enn á innst í hjarta
um endurminning þá,
svo kæra mynd sem man ég
um minnar ævi skeið.
Hún bregður birtu á veginn
og bratta ævileið.
Helgi Seljan.
Þar var framkvæmdastjórn falið að
setja saman texta að umsögn til fé-
lagsmálanefndar Alþingis sem
lagður yrði fyrir aðalstjórn. Las því
næst tillögu að umsögn og ítarlega
greinargerð um málið allt. Nokkrar
fyrirspurnir komu fram svo og smá-
vægilegar breytingar sem teknar
voru til greina. Kristján Sigur-
mundsson kvað Styrktarfélag van-
gefinna mundu skila séráliti þar sem
fram kæmi samþykki við meginmál
frumvarps til laga um félags-
þjónustu. Kvaðst því mundu sitja
hjá við afgreiðslu umsagnar. Vil-
mundur Gíslason minnti fundar-
menn á hina jákvæðu afstöðu
Þroskahjálpar til yfirfærslunnar.
Heidi Kristiansen kvað mikið á
skorta að nægileg þekking væri til
staðar í smærri sveitarfélögum.
Emil Thóroddsen kvað vandaða út-
tekt hafa farið fram hjá Gigtarfélagi
íslands og niðurstaðan verið full efa-
semda og fyrirvara.
Sigurrós M. Sigurjónsdóttir minnti
á smæð minnstu sveitarfélaganna og
spurði: Hvað gerist ef “dýr” ein-
staklingur fæðist í slíku sveitarfé-
lagi? Áslaug Ragnars kvað ÖBÍ eiga
að freista þess að ná samstöðu við
Þroskahjálp um málið.
Jón Sigurmundsson kvaðst sitja hjá
enda hefði Umsjónarfélag einhverfra
ekki tekið endanlega afstöðu. Pétur
Bjarnason lagði til orðalagsbreyt-
ingar sem samþykktar voru, en
studdi umsögnina mjög eindregið.
Umsögnin síðan samþykkt með at-
kvæðum 16 aðildarfélaga. Fulltrúar
tveggja sátu hjá s.s. áður hefur fram
komið. Umsögnin í heild er birt hér
í blaðinu.
5. Önnur mál
Heidi Kristiansen greindi glögg-
lega frá fundi sem hún sat niðri í
menntamálaráðuneyti fyrir Öryrkja-
bandalagið þar sem sérkennslumið-
stöð Evrópusamtakanna var kynnt af
fulltrúum hennar. Evrópumiðstöðin
var sett á laggirnar í framhaldi af
Helios - verkefninu. Þar fer fram
mikið og gott starf og sérátök eru í
gangi varðandi ýmsar fatlanir s.s.
lesblindu. Námsefnisskortur væri
mikill. Formaður, Garðar Sverrisson
þakkaði afar málefnalegan fund og
sleit fundi klukkan 19.15.
H.S.
Hlerað í hornum
Ljóskan gekk of tæpt á árbakkanum
og lenti í ánni og nærstaddur maður
fór fram á bakkann og rétti henni
regnhlífina sína til að bjarga henni.
En þá sagði ljóskan: “Nei, takk, ég er
orðin alveg gegnblaut”.
Gestur einn á dýru hóteli bað hótel-
stjórann að vekja sig klukkan hálf
átta morguninn eftir komuna á
hótelið. Nú vaknaði gesturinn tíman-
lega og beið svo eftir hringingunni,
en það var fyrst klukkan átta sem
hótelstjórinn hringdi. Gesturinn var
hinn versti og sagði: “Hugsaðu þér
nú að ég hefði þurft að ganga frá
milljónasamningi fyrir átta”.
Þá svaraði hótelstjórinn: “Ef þú vær-
ir að ganga frá þannig samningi þá
hefðirðu ekki gist á svona ódýru
hóteli”.
***
Tveir vinir hittust og tóku tal saman.
“Ja, nú liggur Magnús vinur okkar á
spítala”. “Hvað segirðu og ég sem sá
hann vera að dansa vangadans við
laglega, ljóshærða blómarós í gær-
kvöldi”. “Það var nú lóðið. Konan
hans sá það líka”.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
37