Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.2000, Síða 13
Helga Matthildur Jónsdóttir flytur mál sitt á geðheilbrigðisdegi.
auðveldar og fórnar-
lömb þeirra verða
því margfalt fleiri.
erendurnir
þurfa ekki að
beina gerðum sínum
að einni manneskju.
Sumir láta nei-
kvæðar athuga-
semdir dynja yfir
alla sem ekki dansa
eftir þeirra höfði og
ná þannig ógnar-
stjórn á umhverfinu.
Slíkt fólk getur vald-
ið óendanlega miklu
sálartjóni en sleppur
alltaf við refsingu af
því að það er svo
erfitt að sanna hátternið. Hver athöfn
þeirra er í sjálfri sér léttvæg en við sí-
fellda endurtekningu neikvæðninnar
brotnar sál þolendanna smátt og
smátt niður. Þar sem hátternið getur
staðið árum saman er nær útilokað að
sanna að sálarlegt niðurbrot þol-
endanna sé af þessum ástæðum. Það
sem hægt er að gera er að berjast
gegn óþarfa neikvæðni í garð annarra
á vinnustöðum og í öllum þeim
hópum sem við erum aðilar að. Við
höfum heyrt um kynferðislega
áreitni, en það er niðrandi hegðun
byggð á kynferði viðkomandi og er
alveg af sama toga og sú hegðun sem
ég hef gert að umtalsefni hér. Að
sjálfsögðu eru tilfelli slíks ofbeldis
misjöfn og missjáanleg. Eg ætla ekki
að fjalla um lausn þeirra allra heldur
benda á að sé hugmyndafræði Fount-
ain House hreyfingarinnar í heiðri
höfð minnka líkur fyrir slíku.
Ég hef sagt að nærri helmingur
öryrkja er það vegna sálrænna erfið-
leika. Ég hef kynnst því að margir
sem eru veikir vinna auk þess fulla
vinnu þrátt íyrir veikindi sín. Vinna
fyllir lífið tilgangi og er einstakling-
um mjög þýðingarmikil. Það er ákaf-
lega mikilvægt bæði fyrir einstakl-
inginn og þjóðfélagið að sem flestir
geti starfað eðlilega. Með því að
stuðla að heilbrigði, ekki síst geðheil-
brigði spörum við samfélaginu
kostnað og höfum því meira fé til
ráðstöfunar til að berjast við sjúk-
dóma sem við náum ekki að fyrir-
byggja.
Hugmyndafræði Fountain
House samtakanna
Klúbburinn Geysir hóf starfsemi
sína fyrir rétt rúmu ári og starfar nú
að Ægisgötu 7. Hann er rekinn sam-
kvæmt erlendri hugmyndafræði
kenndri við fyrsta hús starfseminnar,
Fountain House. Hann er opinn þeim
sem eiga eða hafa átt í geðrænum
vanda.
Hvað kemur ráð fyrir sjúka al-
menningi við? Er félagsskapurinn
ekki verndað umhverfi veikra
manna? Jú hann er það. Eins og ég
nefndi áðan er maðurinn skyldur
öpum. Apar berjast fyrir stöðu sinni
innan hópsins með hnúum og hnef-
um. Við erum hins vegar siðmenntuð.
Við höfum hafnað því að nota líkam-
legt ofbeldi einstaklingum til fram-
dráttar. Þannig myndum við verndað
umhverfi fyrir sérhvern mann, ekki
aðeins þá sjúku. Okkur hefur ekki
tekist eins vel að vernda menn fyrir
andlegu ofbeldi, ekki vegna þess að
það sé ekki hluti af siðmenningu
okkar að gera það, heldur vegna þess
hve leynt það fer. Til að berjast gegn
því getum við ekki reitt okkur á lög-
regluna eða yfirvöld. Við verðum öll
að vinna saman við að uppræta slíkt.
Þar tel ég að almenningur geti lært af
hugmyndafræði Geysis en hún segir
að allir hafi eitthvað að gefa og fram-
lag sérhvers er metið og virt. Sérhver
er ábyrgur gerða sinna og hann nýtur
trausts félaganna fyrir framlag sitt.
Klúbburinn er rekinn sem vinnu-
staður. Hann hafnar að menn gangi á
rétt annarra til eftirfarandi:
að finna sig örugga,
að finna sig tilheyra klúbbnum,
að finna mikilvægi sitt og ábyrgð,
að njóta virðingar.
Ef allir virða rétt
annarra til þess að
finna sig örugga og
meta framlag annarra
að verðleikum er ein-
elti úr sögunni.
Vantraust brýtur
niður
Á fyrri hluta síð-
ustu aldar var það til
siðs að stjórnendur
fyrirtækja tækju allar
ákvarðanir og gæfu
fyrirmæli til undir-
sáta sinna sem
hlýddu. Síðustu ára-
tugina hafa menn
leitast við að einfalda
stjórnskipun fyrirtækja og fela starfs-
mönnum meiri ábyrgð á rekstrinum.
Menn sjá það á ofanritaðri lýsingu á
hugmyndafræði Geysis að það fyrir-
komulag samrýmist henni mjög vel.
Þessi stjórnunaraðferð er þó ekki
auðveld í framkvæmd. Margir eiga
erfitt með að treysta öðrum. Þeir
stjórnendur sem í orði fela mönnum
ábyrgð en á borði sýna stöðugt van-
traust eru til þess líklegir að skaða
heilsu undirmanna sinna. Það tekur
stundum meiri tíma að kenna undir-
manni nægjanlega vel til þess að
hann geti tekið ábyrgðina á sínar
herðar í stað þess að gera það sjálfur
en sá tími sparast margfaldur síðar,
auk þess sem önnur aðferðin brýtur
niður en traustið byggir upp.
Menn hafa misjafnt að gefa. Góður
stjórnandi vinnur samkvæmt hug-
myndafræði Geysis og lítur á sterku
hliðar starfsmanna sinna og reynir að
nýta þær. Vondur stjórnandi lítur á
veiku hliðarnar og reynir að forðast
þær. Sá síðari setur skorður en sá
fyrri útvíkkar tækifæri. Vondi stjórn-
andinn er líklegri til þess að reka
starfsmann sem sá góði gæti fundið
verðug verkefni. Brottrekstur úr
starfi vegna vanhæfni er hræðilegt
áfall fyrir einstaklinginn sem fyrir
því verður. Hann verður fyrir tjóni á
sál sinni. Að sjálfsögðu verða fyrir-
tæki að gera slíkt í einstökum til-
fellum. Þau fyrirtæki eða stofnanir
sem gera það stöðugt eru líkleg til
þess að hafa vonda stjórnendur sem
vinna fyrirtækinu eða stofnuninni
ógagn með því að nýta ekki mann-
auðinn og valda einstaklingum og
samfélaginu hroðalegu tjóni.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
13