Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.2000, Síða 24

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.2000, Síða 24
Ása Hildur Guðjónsdóttir: VÍÐSÝN í SVÍÞJÓÐ Ahaustdögum 1999 ákvað ferðafélagið Víðsýn sem er félag gesta Vinjar, að stefna á Svíþjóðarferð sumarið 2000. Strax var hafist handa við undirbúning og miklar bréfaskriftir fóru af stað til að leita styrkja. Einnig drifu nokkrir fé- lagar sig á sænsku- námskeið sem var haldið í samvinnu við Námsflokka Reykja- víkur. Mikið var skraf- að og skeggrætt og þjappaðist hópurinn nokkuð vel saman strax. Alls kyns leiðir til ijáröflunar komu upp og sumt gekk upp, annað ekki eins og gengur. Við tókum að okkur alls kyns smá- verkefni og fórum meðal annars eina helgi í Kolaportið. Til Svíþjóðar var svo að lokum farið í ágúst. I för voru 18 meðlimir ferðafélagsins þar á meðal 4 starfsmenn Vinjar. Nokkrir voru að fara í fyrsta sinn erlendis og var mikil spenna og tilhlökkun í hópnum. Við fórum til Stokkhólms og gistum þar á Columbus hóteli og farfuglaheimili en það var byggt 1780 sem brugghús en það átti sér ansi skemmtilega sögu því Stokk- hólmsbær hafði eignast húsið 1812 og notað það til að vista betlara, smá- þjófa og lauslátar konur. 1834 er kólerufaraldur geisaði var bygging- unni breytt í sjúkrahús og um 1870 er landsbyggðarflótti steðjaði að var byggingunni breytt í íbúðarhúsnæði og þar hefur verið rekið hótel frá 1976. Enn mátti sjá minjar liðinna tíma í húsinu meðal annars var fanga- klefi í stigaganginum, járnhurðir o.fl. áhugavert. Eftir að við höfðum komið okkur fyrir uppi á hanabjálka í þessu sögufræga húsi fyrsta kvöldið og snætt samlokur að hætti Bjargar sem tók á móti okkur með glæsibrag, þá fórum við auðvitað að leita að hverf- ispöbbnum og kíkja í kringum okkur í hverfinu við mikla kæti. Fyrsta morguninn ætluðum við að hittast við morgunverð en komumst að því að svefnþörf hópsins var mjög misjöfn en að lokum náði þó allur hópurinn saman í garði hótelsins og stefnt var á frjálsan dag og bæjarferð. Haldið var í leiðangur í bæinn, fólk skiptist í nokkra hópa eftir áhugasviðum. Sumir fóru í búða- ráp að hætti íslend- inga, aðrir gerðust menningarsinnaðir og fóru á listasöfn, skoð- uðu hinar ýmsu bygg- ingar, arkitektúr og kirkjur. Aðrir fóru í skoðunarferð um borgina. Allir skoðuðu þó miðbæ Stokkhólms frá hinum ýmsu sjón- arhornum og mann- lífið. Mestallur hóp- urinn hittist þó í hádeginu í Menn- ingarhúsinu. Saman fórum við í gamla Stan og heilluðust margir þar af gömlum húsum, íkonum og fleiru. Seinnipartinn þurftu ýmsir hvíld en aðrir voru í óstöðvandi þekkingarleit. Um kvöldið hittist svo hópurinn allur uppdressaður og fínn á tyrkneskum veitingastað og naut þar framandi matseldar við undirleik lifandi tónlistar og áttum við þar góða kvöldstund saman. En sumir voru ekki búnir að fá nóg og héldu í menn- ingarreisu um miðbæinn.... Næsta dag vöknuðum við mis- ”snemma” í indælu veðri. Þann dag snæddum við morgunverð í vín- kjallara hússins, þaðan var strax farið á stefnumót sem við áttum við vini okkar frá Svíþjóð. Þau komu frá at- hvarfi sem heitir “Balder” en það var skoðað í tengslum við stofnun Vinjar á sínum tíma og haft að nokkurs konar fyrirmynd um reksturinn. Æ síðan hafa verið tengsl við staðinn og síðasta sumar kom hópur gesta þeirra í heimsókn til okkar á íslandi. I tengslum við það kom upp hugmynd- in um utanlandsreisu okkar. Þá höf- um við verið í e-mail sambandi við þau síðan og þau hjálpað okkur við undirbúning ferðarinnar. Við hittum þau á hafnarbakkanum og voru það miklir fagnaðar- fundir. Þau buðu okkur á Skansinn og voru með dagsprógramm og nesti fyrir okkur. Við fórum með ferju yfir á eyna sem Skansinn er á og áttum þar góðan dag með Svíunum en okkur tókst ekki að klára dagskrána sem þau ætluðu okkur því við þurft- um að skoða allt svo vel, þó skipt- umst við í hópa eftir áhugasviðum, sumir voru allir í gömlum húsum og menningu, meðan aðrir skoðuðu Ása Hildur Guðjónsdóttir 24

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.