Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.2000, Side 35

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.2000, Side 35
SYSTRALJOÐ í sumar er leið kom út ljóðabók eftir góða vinkonu ritstjóra, Margréti Trausta- dóttur sem er búsett á Akureyri. Þetta er hin fallegasta bók, skreytt einkar fallegum myndum Margrétar og ber nafnið: Það sem ég get og vil. Ritstjóri getur ekki stillt sig um að birta ljóð úr þessari bók og á næstöftustu síðu blaðsins er í litum ein þessara yndislegu mynda hennar Margrétar. Þetta barst svo í tal milli okkar Vilborgar Traustadóttur, systur Margrétar og formanns MS félagsins en báðar glíma við þennan sjúkdóm. Þá fór Vilborg að segja mér frá sínum eigin ljóðum sem varð til þess að rit- stjóri falaðist eftir sýnishornum til að birta um leið og ljóð Margrétar. Vilborg sendi mér svo tvö ljóð ort þegar hún var um tvítugt og svo valdi ritstjóri 3 ljóð Margrétar til birtingar og þannig eru þessi ágætu systraljóð til komin. Megið þið vel njóta vænna verka. Margrét Traustadóttir Vilborg Traustadóttir Margrét Traustadóttir: Vitavörðurinn Hann vaktaði vitann hvern dag hverja nótt meðan aðrir í húsinu sváfu rótt. Gegn um sorta og byl til himins hann leit og frostið af harðneskju kinnarnar beit. Hann var alltaf veðrinu háður á síðkvöldum sumars þó andað gat rótt hvinur vindanna þagnaður líka og hafið varð hljótt. Áður Áður var nóttin hjá mér myrkrið svalt og ég elskaði þig. Máninn á himni nakið þitt hörund og hafið sem spegill. Áður. Ævintýr Ljóðrænt þetta kvöld. Allt svo undur mjúkt og hlýtt. Ó, að lífið væri ævintýr. “Einu sinni voru kóngur og drottning í ríki sínu, hallargarðurinn var eins og Paradís og prinsessan með blá augu”. Ljóðrænt þetta kvöld. - og vonda drottningin ekki heima. Margrét Traustadóttir. Vilborg Traustadóttir Af vímu Skímir af degi, skrælnuðum degi. Miskunnarlaus birta treður sér inn í vitund mína. Sem af vímu vakna ég og við hlið mér hrýtur hamingjan sjálf sem ég get ekki vakið, ég fjarlægist, hægum, hikandi skrefum. Kuldinn nístir og kælir ást mína. Strákar Þeir ruddust hér inn og réttu fram hendi og réttu fram vín, og sakleysið stundi en freistarinn glotti til mín. Glaðir og hressir strákar, með sindrandi augu og fjör, flettu þeir af mér sakleysi mínu og buðu mér annað. Buðu mér gleði og vín, já gleði og vín og annað. Ég opnaði í hálfa, hallaði aftur en opnaði svo upp á gátt, og sakleysið grét en freistarinn tók mig í sátt.. Vilborg Traustadóttir. Ljóðin eru ort þegar höfundur var um tvítugt. FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 35

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.