Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.2000, Qupperneq 47

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.2000, Qupperneq 47
Sigurður Qskar Pálsson fv. safnvörður Með austangjólunni npHP-~ í síðasta gjólurabbi, sem birtist í 1. tbl. þessa árs, muni ég rétt, var ég ögn að fitla við þjóðlífsmyndir er ég nefndi svo. Sé að gætt kemur í ljós að bilið milli þeirra og mannlýsinga er oft harla mjótt, og ■, I J; raunar svo lítið að þær verða naumast aðgreindar með því að sérhver mannlýsing ber í sér þjóðlífs- mynd síns tíma, jafnvel þótt henni sé ekki beinlínis ætlað það. Mér dettur því í hug að smeygja hér inn nokkrum mannlýsingum, en tekið skal fram að fýrirmyndir þeirra flestra eru ekki auðfundnar í Hk fl ministerialbókum og sálnaregistrum presta ellegar í þeim hluta hins margfræga, miðlæga gagnagrunns sem skrifaður ku hafa verið uppúr íslenskum ættfræðiritum. Alvarlegt ástand er gerði hann Línu að gamni sínu á gjögtandi legubekk. Guttormur alvörugefni er góð talinn búa við efni, en aldrei þó hlær; þar um eiður mun sær. En sagður er glotta í svefni. Það gapa fleiri, og hafa gapað gegnum tiðina en skemmti- kraftar sjónvarpsins okkar, sem ég vék eitt sinn lítillega að í þætti þessum: Guðmundur gapandikjaftur af Guði var þannig skaptur að jafnstóran kjaft enginn hefur haft- og lagði hann aldrei aftur. Guðmundur gapandikjaftur varð gamall og entist vel kraftur, en loks er hann dó gapti líkið og hló, en lagt hafði augun aftur. Glöggir menn á Út-Héraði og langminnugir geta ugglaust rambað á við hvern er átt í næsta erindi. Maður þessi varð góðkunningi minn er við vorum samtíða þar á bæ einn mánuð um miðja öldina: Þorkel töldu menn þverhaus, en Þorkell var hreint enginn berhaus því að derpottlok grátt bar hann dag og nátt þversum á sinum þverhaus. Þetta með derpottlokið átti aðeins við yfir sumartímann. Á vetrum bar hann loðhúfu og svaf með hana um nætur, einatt þversum á kollinum. Drög að ævisögu dugnaðarmanns Hann byrjaði ungur sem baráttufrík og barst þannig inní pólitik, komst á þing, varð þjóðhetja slyng. Áttræður dó svo - úr erótík. Hrekkvísi örlaganna Skafta nefndu menn Skrekk útaf skrambi meinlegum hrekk Óglöggir menn á búfé, löngum nefndir ratar, hafa einatt verið skotspænir og aðhlátursefni annarra sveitamanna, ekki síst á réttum. “Ert þú komin að, sem ég lógaði um daginn?”, ávarpaði bóndi eystra eina rolluna sína, þegar dregið var sundur fé á rétt að lokinni þriðju göngu. Fleiri dæmi verða ekki tíunduð hér, enda eiga þau fremur heima í búnaðarriti en þessu. I minningu svona snillinga er eftir- farandi fimmlukorn sett saman: Runki var rati hinn mesti þótt ráðsmaður yrði hjá presti. Yfir það aldrei samt greri er hann - fyrir þrítuga meri- kálaði kynbótahesti. Kvnþokkafyllsta kona landsins (samkvæmt skoðanakönnun meðal sjónvarpsáhorfenda fyrir fáum misserum) Hún er svarthærð og kynjuð frá Sauðlauksdal og sögð hið albesta kvennaval, með sérlegan stíl og sexapíl. Svo veit hún ugglaust hvað gera skal. Eftirmæli tveggja peningamanna Úr aurasótt andaðist Jón það útsmogna nurlaragrjón, þessi sérhyggjupatti er sveik undan skatti sjötiu og hálfa milljón. Gunnlaugur vildi gá að sér og gætti þess vel að sjá að sér. Á endanum dó hann úr áhyggjum þó, og erfiði við að gá að sér. Sigldur maður (snemma á öldinni) Hann kom með hálstau og hatt heim frá Köben, gekk fatt- ur með kankvíslegt kitlubros. Þá kom á dömurnar los. Heil tylft fyrir töfrum hans datt. S.Ó.P. FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 47

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.