Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.2000, Side 55

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.2000, Side 55
Skriftamál í skýrslu stað Að flytja ykkur lestur í síðasta sinn er sannlega undarlegt mál. Og eflaust í hjartanu eitthvað ég finn sem óróa vekur í sál. En allt sem á byrjun mun endi sinn fá og eins er með þetta, en skrifta ég má. Ég vona þó enn að ég gjört hafi gagn til góðs hafi verið mín ferð. En spurt skal um gæði en minna um magn og mæld skal að lokum hver gerð. Ég liðsinna vildi en leyni ei því að lítt hefur þokast og margt fyrir bí. í blað skyldi efna sem bragð væri að til baráttu og frétta í senn. En máske ég hafi þar staðið í stað og staðnað, það gjörist víst enn. En blaðið þó staðreynd með stefnumið há og stiklur frá atburðum greina þar má. Hér efld skyldu tengslin við félagafjöld þess freistað að veita þar lið. Þar hugsjónagleðin á vökulust völd og vígreif þau sækja á mið. Sú viðkynning góð veitti ánægju mér en vísast um árangur dæmt getur hver. Til okkar svo fjölmargir lagt hafa leið og leiðsögn og hjálp viljað fá. Hve margir þar voru í napurri neyð og nöturleg tilveran grá. Af einlægum huga sú liðsemd var veitt og von okkar sú að til góðs hafi leitt. Þá horft er til baka er hamingjan sú að hafa mátt eiga þann stað sem vekur mér þakklæti, vonir og trú og vekur mér fullvissu um það, að samhjálpin ein fær oss sigurinn veitt, að samtakamátturinn einn getur breytt. f blámóðu fjarskans til baka ég lít, til baka um á þrettánda ár. Ég sönnustu gleði í sálu mér hlýt, en söknuð ég veit upp á hár. En kynnin við samstarfsfólk kærust þó mér þeim kjarngóða mannauði heiðurinn ber. Helgi Seljan. Apinn og farandsalinn Farandsali nokkur var einu sinni á ferð um lendur Austur-Indlands og um miðbik dagsins, þegar sem heitast var, hvíldi hann sig í skjóli trjánna. En áður en hann lagði sig fyrir, tók hann hvíta nátthúfu úr kassa, sem var fullur af sams konar húfum og lét hana á höfuð sér. En aparnir sem voru allt í kring, sáu þetta og tóku allar húfurnar upp úr kassanum og settu þær upp. Þegar farandsalinn vaknaði þá sá hann þessa hlægilegu sjón. Fyrst gat hann ekki annað en hlegið að þessu en svo fór hann að sjá, hversu mikill skaði það var fyrir hann að missa allar húfurnar og þá fór nú að fara af honum hláturinn. En nú vildi svo vel til að þarlendan mann bar að og hann kunni lagið á öpunum. Hann lét farandsalann fleygja í sig húf- unni, sem hann hafði sett upp, setti hana upp sjálfur og fleygði henni svo á jörðina. Með það sama komu húfurnar frá öpunum eins og snjó- drífa og farandsalinn hafði eins hraðar hendur og hann gat að tína þær upp. Frá FAAS r Isíðasta fréttabréfi FAAS er frá því greint að Guðrún K. Þórsdóttir hafi hætt sem framkvæmdastjóri fé- lagsins frá og með 1. nóv. sl. Við starfi hennar tók Haukur Helgason fv. skólastjóri í Hafnarfirði og það veit ritstjóri að þar hefur vel til tekist um val á starfsmanni. Guðrún verð- ur áfram djákni hjá félaginu og mun sinna ýmsum störfum þar áfram. Framundan eru stórtíðindi hjá fé- laginu, því þar er nú ráðgjörð opnun dagvistar í Fríðuhúsi, en það nafn hefur húsnæðið að Austurbrún 31 fengið. Allra heilla er þeirn hjá FAAS óskað með einkar merkan áfanga í sögu félagsins. Megi farsældin góð fylgja því mæta starfi sem þar verður innt af hendi. H.S. FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 55

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.