Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.2000, Síða 56

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.2000, Síða 56
Nýr framkvæmdastjóri • • Oryrkjabandalagsins Eins og hér hefur skýrlega komið fram í Fréttabréfinu hefur Arnþór Flelgason verið ráðinn til starfs framkvæmdastjóra Öryrkjabanda- lagsins og hóf hann störf 1. des. sl. Ráðning Arnþórs var sam- hljóða samþykkt af framkvæmdastjórn í maí sl. og kynnt þá um leið í að- alstjórn. Arnþór ætti að vera óþarft að kynna hér svo lengi sem hann setti svip sinn á þetta málgagn. Þegar Garðar Sverrisson formaður kynnti ráðningu hans á aðalstjórnarfundi sagði hann m.a. að Arnþór væri hinn verkhæfasti og samviskusamasti starfsmaður, íslenskumaður einstaklega góður, tölvu- kunnáttu hans við brugðið og svo væri hann með einstakan þekkingar- grunn að baki. Arnþór er fæddur í Vestmannaeyjum árið 1952, sonur hjónanna Guðrúnar Stefánsdóttur og Helga Benediktssonar. Stúdent frá MR varð hann 1972. Flann hefur stundað nám í Háskóla íslands í íslenskum fræðum og norskum, í uppeldis- og kennslufræði og í hagnýtri fjölmiðlun. Arnþór hefur tekið virkan þátt í félagsmálum, stjórnmálum o.fl., hann hefur séð um fjölmarga útvarpsþætti og verið starfandi hjá Blindra- bókasafni Islands sem deildarstjóri námsbókadeildar og deildarsér- fræðingur á sviði blindraleturs nú síðustu árin. Sem fulltrúi Blindrafé- lagsins sat hann í stjórn Öryrkjabandalags íslands 1983-1994, var for- maður þess 1986-1993 og þá í hlutastarfi þar. Arnþór gegndi á þeim tíma fjölmörgum trúnaðarstörfum fyrir banda- lagið innanlands sem utan. Alls hins besta er honum árnað í starfi sínu og baráttu fyrir bættum hag fatlaðra. Þar gengur vanur maður að verki. H.S. Vissir þú að ... Táknmál er ekki alþjóðlegt mál. Hægt er að ríma á táknmáli. Hægt er að mismæla sig á táknmáli. Hægt er að vera þvoglumæltur á táknmáli. Smábörn tala smábarnatáknmál. Unglingar sletta á táknmáli. Táknmál var bannað í yfir 100 ár. A hverjum degi verða til ný tákn í íslenska táknmálinu. Til er ljóð á táknmáli. Það er ekki hægt að tala táknmál með andlitið hulið. Táknmál þróast hratt og er töluvert ólíkt eftir kynslóðum. Táknmál er fullgilt mál og er móðurmál heyrnarlausra. Þessa góðu sendingu fékk ritstjóri frá henni Berglindi Stefánsdóttur, formanni Félags heyrnarlausra og skólastjóra Vesturhlíðarskólans. Nei, Berglind mín, ég vissi sumt en alls ekki allt. Hvað um ykkur lesendur góðir? Frá Samtökum sykursjúkra Breytingar hafa verið gerðar innan stjórnar Samtaka sykursjúkra og hefur nýja stjórnin skipt með sér verkum þannig: Þuríður Björnsdóttir formaður, Fríða B. Bragadóttir ritari og aðrir í stjórn: Kristín Ágústa Björns- dóttir, Hallbjörn Bergmann, Sig- urður V Viggós- son og Samúel Sveinn Bjarna- son. Þuríður Fulltrúi Sam- Björnsdóttir taka sykursjúkra í stjórn Öryrkjabandalags íslands er Sigríður Jóhannsdóttir og til vara Kristín Ágústa Björnsdóttir. Helstu málefni Samtaka sykur- sjúkra eru að gæta hagsmuna félags- manna, útgáfa bæklinga og að halda fræðslufundi. Einnig gefur félagið út tímaritið Jafnvægi og sendir frá sér með jöfnu millibili fréttabréf þar sem greint er frá því hvað um er að vera hverju sinni t.d. gönguferðir, fræðslu- fundir og annað fréttnæmt. Þuríður Björnsdóttir formaður. Hlerað í hornum Fína frúin ofurfeita vildi láta málar- ann festa sig á léreft. Hún sat fyrir í svörtum síðkjól þar sem allar línur runnu út í eitt. Þegar málarinn hafði lokið verkinu og frúin var orðin ánægð þá sagðist málarinn verða að gefa henni afslátt. Það þótti frúnni skrýtið en þá sagði málarinn: “Jú, ég gat notað rúllu á nær allt saman”. I gamla daga sátu hefðarmenn fremst í kirkjum og voru gjarnan með hár- kollur. Meðhjálpari einn var að laga ljósin á kertunum og ekki vildi betur til en svo að neisti hrökk fram á hefð- armanninn og hárkollan gott kveiki- efni. Meðhjálparinn rýkur til og blæs á eldinn sem æsist því meir. Þá rífur maðurinn af sér hárkolluna og hvæsir: “Hérna, hafðu hana þá, bévítans brennuvargurinn”. 56

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.