Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2003, Page 7
Yfirlit formanns
Samkomulag Garðars Sverrissonar og Jóns Kristjánssonar markaði tímamót
í samskiptum Öryrkjabandalags íslands og stjórnvalda. Það hefur rutt braut-
ina til bættra samskipta og betra samstarfs. (Ljósmynd - Mbl. Jim Smart)
sem við höfðum síðast erlendis
frá hafa engin heildarsamtök
fatlaðra náð fram neinum þeim
árangri á Evrópuárinu sem kemst
nálægt því að jafnast á við þær
réttarbætur sem Öryrkjabanda-
lagið hefur nú náð fram með
samkomulagi sínu við stjórn-
völd. Þótt samningsvinnan hafí
fyrst og fremst mætt á formanni
bandalagsins, hefði árangurinn
ekki orðið sá sem raun ber vitni
nema að baki hefði staðið órofa
fylking sem staðráðin var í að
standa saman í þessu langa
samningaþófi og láta hvergi
finna á sér höggstað. Þessi órofa
samstaða aðildarfélaga ÖBÍ, sem
ítrekað hefur reynt mjög á, er í
raun meginskýringin á þeim
núkla árangri sem við að lokum
náðum.
Framtíð íslenskrar getspár
tryggð
Af íjölmörgum öðrum málum,
sem flest hver heyra til hefð-
bundinna viðfangsefna Öryrkja-
bandalags íslands, samvinnu við
önnur samtök og stofnanir, um-
sagnir um frumvörp og þings-
ályktanir, einstaklingsmál og al-
menna hagsmunabaráttu, bar
helst til tíðinda að á þessu ári
tókst okkur að tryggja pólitískan
stuðning allra þingflokka við
framlengingu á starfsleyfi ís-
lenskrar getspár í þeirri mynd
sem verið hefur frá upphafi. I
samvinnu við þá aðila sem eiga
og reka Lottóið með okkur,
íþróttasamband Islands og Ung-
mennafélag íslands, rituðum við
þeim stjómmálaflokkum sem í
framboði voru og fómm fram á
að þeir svöruðu því til hver af-
staða þeirra væri til framlenging-
ar á starfsleyfi Getspárinnar í
þeirri mynd sem verið hefur. Þótt
lítilsháttar blæbrigðamunur væri
á svömm þeirra voru þau efnis-
lega samhljóða um þann kjama
máls sem mikilsverðastur var og
okkur skipti mestu.
I svari frá Vinstri hreyfingunni
- grænu framboði kemur fram að
flokkurinn styðji ofangreind
samtök heilshugar og hafi ekki
neinar hugmyndir um að gera
breytingar á þeirri íjármögnunar-
leið sem hér um ræðir. I svari
Sjálfstæðisflokksins segir að
flokkurinn hafi engin áforni um
annað en að styðja framlengingu
starfsleyfis Islenskrar getspár á
næsta kjörtímabili í þeirri mynd
sem verið hefur. Framsóknar-
flokkurinn svarar einnig á þann
veg að hann sé því fylgjandi að
Islensk getspá fái framlengingu
starfsleyfis síns í þeirri mynd
sem verið hefur. I sama streng
tekur Samfylkingin sem segir að
hún muni styðja framlenginguna
í óbreyttri mynd. Loks segir í
svari Frjálslynda flokksins að
flokkurinn telji að stuðningur við
framlengingu á starfsleyfi ís-
lenskrar getspár í núverandi
mynd sé nauðsynlegur.
Kjarabaráttan ber árangur
I ársskýrslum síðustu ára hefur
formaður Öryrkjabandalagsins
lagt sig fram um að vekja athygli
á þeim bágu kjörum sem öryrkj-
ar búa við og birst hafa okkur í
margvíslegri mynd. Þótt hugsun-
in hér að baki hafi vitaskuld ver-
ið að veita greinargóðar upplýs-
ingar og brýna okkur sjálf í bar-
áttunni, hefur þessi málflutning-
ur einnig orðið til þess að sum í
okkar röðum hafa síður tekið eft-
ir þeim árangri sem baráttan hef-
ur þrátt fyrir allt skilað - fengið á
tilfmninguna að okkur hafi að
vísu tekist að vekja fólk til vit-
undar um lífskjör öryrkja en vær-
um að flestu öðru leyti í sömu
sporum og við hefðum verið
þegar ákveðið var að grípa til
harðskeyttari baráttuaðferða
undir lok síðasta áratugar. Af
þessum sökum er gagnlegt að
staldra við um stund og riíja að-
eins upp.
Snemma árs 1998 lagði kjara-
tímarit öryrkjabandalagsins
7