Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2003, Qupperneq 10
Yfirlit formanns
8. Róttækasta framfaraspor-
ið í réttindabaráttu okkar og það
sem í framtíðinni á sennilega eft-
ir að marka varanlegust spor
verður vafalítið sú gerbylting á
kerfi örorkulífeyris sem hér í
upphafi var rakin. Að viðbættu
sjálfu inntaki hins breytta fyrir-
komulags, þeirri nýju og fram-
sæknu hugsun sem að baki býr, á
réttarbót þessi það sammerkt
með ýmsum þeim sem hér að
framan hafa verið raktar að hafa
náðst fram í sátt og samlyndi, þar
sem Öryrkjabandalagið og ríkis-
valdið hafa gengið til samninga-
viðræðna á jafnréttisgrundvelli,
leyst úr ágreiningsmálum sínum
eins og siðaðra manna er háttur í
stað þess að munnhöggvast
gegnum fjölmiðla. Þótt áróðurs-
vinna síðustu ára skipti hér auð-
vitað sköpum, megum við ekki
gleyma því að hér þarf tvo til. Að
öðrum ólöstuðum munar þar
mestu að í embætti trygginga-
málaráðherra hefur valist ein-
staklingur sem hefur til að bera
pólitískt raunsæi og ósvikinn
vilja til að leysa þau ágreinings-
mál sem uppi hafa verið með
málamiðlunum þar sem hagur
öryrkja er ekki fyrir borð borinn.
Vitaskuld hafa margvíslegar
aðrar réttarbætur náðst fram á
þessurn síðustu árum, bæði fyrir
tilstuðlan Öryrkjabandalagsins
og aðildarfélaga þess, réttarbætur
sem sumar hverjar snerta ef til
vill ekki marga einstaklinga en
hafa þó í ýmsum tilvikum skipt
sköpum fyrir afmarkaða hópa.
Þegar við því lítum yfir sviðið og
förum m.a. yfir þau mál sem hér
að ofan hafa verið tilgreind, má
okkur ljóst vera hverju samtaka-
mátturinn hefur skilað og mun
halda áfram að skila ef okkur að-
eins tekst að varðveita þá sam-
stöðu og samheldni sem Öryrkja-
bandalagið hefur borið gæfu til
að sýna í baráttu síðustu ára. Tak-
ist okkur það verður ekki hjá því
komist að vígstaðan haldi áfram
að styrkjast og upp renni framtíð
aukins jafnréttis og raunveralegs
frelsis fötluðum til handa - fram-
tíð þar sem stjórnvöld munu
halda áfram á þeirri skynsamlegu
braut að vinna að úrlausn mála í
náinni samvinnu við okkur í stað
þess að efna til átaka.
Garðar Sverrisson
formaður
Öryrkjabandalags íslands
Hlerað í hornum
Faðirinn var að segja syni sínum frá því að
það hefði tekið hundrað ár að reisa einn pýr-
amída. Þá sagði sonurinn: "Það hlýtur þá að
hafa verið verktakinn sem er að gera við hús-
ið okkar".
Þessi saga hlýtur að vera
sönn því að hún var á vef
Hafnarfjarðar:
Einu sinni var Lúðrasveit
Hafnarfjarðar að æfa á
Kaplakrikavelli. Stjórnand-
inn bað einn hljóðfæraleik-
arann að fara á hinn enda
vallarins til þess að athuga
hljómburðinn. Maðurinn
skundaði þangað. Lúðra-
sveitin hafði ekki leikið
lengi þegar hann hrópaði:
"Komið þið og hlustið
sjálfir! Hljómburðurinn er
alveg frábær!"
Og þeir fóru allir á hinn
vallarhelminginn til þess
að hlusta.
10 www.obi.is