Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2003, Side 13
Hjálpartæki
■■I
■■■■■
Mús er ekki bara mús!
m
■■■■■
- segir Sigrún Jóhannsdóttir, forstöðumaður Tölvumiðstöðvar fatlaðra
Tölvumúsin er eitt aðal
stjórntæki tölvunnar.
Það er því mikilvægt að
finna mús sem hentar hverjum
og einum. Þegar tölva er keypt
fylgir henni mús sem oftast er
nokkurn veginn eins og músin
hér á myndinni.
^ Það er ekki har
með sagt að ekki
sé hægt að nota
| . annars konar mús.
Hinni hefð-
bundnu mús er stjómað með því
að leggja lófann ofan á músina,
færa hana til og smella á hnapp-
ana. Þetta getur reynst sumum
erfítt eða ómögulegt vegna fötl-
unar. Þá þarf að fínna búnað sem
hentar betur.
Tölvumiðstöð fatlaðra hjálpar
til við að fínna bestu lausnina
fyrir hvem og einn.
Sumum fínnst betra að nota
svokallaða kúlumús, en þær em
til í mörgum stærðum og gerð-
um. Þá er kúlan hreyfð til með
þumalfíngri eða vísifingri/löngu-
töng.
Það krefst þó nokkuð mikilla
handa- og fingrahreyfinga að
nota ofangreindar mýs. Fólk sem
er með litla hreyfígetu í höndum
t.d vegna gigtsjúkdóma getur átt
í erfíðleikum með svo mikla
hreyfíngu.
Tölvumiðstöðin keypti nýlega
svokallaða músagildru eða
Mouse Trapper sem sést hér á
myndinni.
Á henni er 6x 8 cm stórt rúll-
uband sem stjómað er með létt-
um fingrahreyfingum. Músin
sem hneppt er þannig í gildru er
virk, en öllum aðgerðum er hægt
að stjóma á rúllubandinu sem er
fyrir framan lyklaborðið. Þannig
getur fólk valið að nota gildruna
eingöngu eða víxla á milli.
Önnur lausn er mús sem líkist
stýripinna. Þótt músin líkist
stýripinna er henni stjómað eins
og venjulegri mús með því að
hreyfa hana til á borðinu. Hnapp-
amir em ofan á pinnanum.
Haldið er utan um pinnann og
hnöppunum stjómað með þumli.
Álag á hönd, axlir og fíngur er
talið minna þegar unnið er í þess-
ari stöðu.
Fyrir hjólastólanotendur sem
vanir eru að nota stýripinna til að
stjórna stólnum þá getur verið
gott að nota álíka búnað til að
stjórna tölvu. Stýripinni sem
virkar eins og mús hefur verið
notaður hér á landi með góðum
árangri.
Myndin sýnir nýjustu útgáfuna
af Penny&Giles stýripinna sem
keyptur er inn frá Englandi.
Hægt er að velja um mismunandi
hald á pinnann.
Ýmiss búnaður er til fyrir þá
sem eiga í miklum erfíðleikum
með að stjórna mús með hönd-
um. Höfuðmúsin frá Natural-
point sem íslenska fyrirtækið
Saxon selur, er lausn sem hefur
hjálpað nokkmm íslenskum not-
endum.
Lítill depill er festur á enni eða
á gleraugu notandans, móttakari
er settur ofan á tölvuskjáinn.
Músabendlinum er síðan stjórn-
að með höfuðhreyfíngu. Svokall-
aður Dwell clicking hugbúnaður
sem fylgir músinni gerir notanda
kleift að framkvæma allar að-
gerðir eingöngu með höfuð-
hreyfingu.
tímarit öryrkjabandalagsins