Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2003, Page 17
Hjálpartæki
Tvær gerðir FM-búnaðar. Tækið hægra megin á mynd
ásamt tveimur kubbum inn í möskvanum eru nýrri út-
gáfa á sambærilegum búnaði. Kubbunum er smellt upp
á heyrnartækin. Kennari er með hljóðnema og senditæki.
sagt er í stað þess að hlusta á það
með skertri heyrn, færanlegur
tónmöskvi sem gerir fólki kleift
að heyra betur með heymartækj-
um sínum á fundum eða á nám-
skeiðum og FM búnaður sem
notaður er í sama tilgangi og í
skólum.
Rétt er einnig að benda á tón-
möskvana sem em til staðar í
leikhúsum og víða í kirkjum og
samkomusölum. Notandinn skal
þá velja sér sæti til hliðanna í
salnurn þ.e. sem næst tón-
möskvanum sem liggur meðfram
veggjum og stilla heyrnartæki
sitt á T.
Vert er einnig að nefna hátal-
arakerfi sem farið er að nota í
kennslustofum heyrnarskertra
bama í gmnnskólum og gefið
hafa mjög góða raun.
Að lokum skal bent á að ekki er
allur hjálparbúnaður sem hér er
fjallað um á hjálpartækjaskrá
Fleymar- og talmeinastöðvar og
kaup þeirra því ekki styrkt af
hinu opinbera. Engu að síður tel
ég rétt að benda hér á búnað sem
sannanlega gagnast heyrnar-
skertum þó að hann hafi ekki
ennþá ratað inn á hjálpartækja-
skrá.
Bryndís Guðmundsdóttir
heyrnarfræðingur
Deildarstjóri barnastarfs HTÍ
tímarit öryrkjabandalagsins
■■■■■■
Fréttatilkynning
Samningur á milli Öryrkjabandalags íslands og World for 2 um afslátt
til handa 75% öryrkjum
Öryrkjabandalag íslands og World for 2 hafa
gert með sér samning sem veitir handhöfum
örorkukorts frá Tryggingastofnun ríkisins
52% afslátt af verði áskriftarkorta fyrirtækis-
ins. í samningnum er m.a. gert ráð fyrir því
að Öryrkjabandalag íslands leiti eftir staðfest-
ingu á örorku þeirra handhafa örorkukortsins
sem sækja um kort gegnum internetið eða
með símtali.
Fyrirtækið World for 2 er í samstarfi við rúm-
lega 250 fyrirtæki hér á landi um afsláttarkjör
fyrir handhafa þjónustukortsins. Öll tilboð
World for 2 eru „2 fyrir 1“ eða 50 % afsláttur.
Fyrirtækin eru um allt land og veita margvís-
lega þjónustu.
Með þessum samningi World for 2 og Ör-
yrkjabandalags íslands opnast öryrkjum að-
gangur að margs konar þjónustu hér á landi
og erlendis.
Nánari upplýsingar veita Arnþór Helgason,
framkvæmdastjóri Öryrkjabandalags íslands
í síma 530 6700 og Arnar Arnarsson, fram-
kvæmdastjóri World for 2 í síma 554 6166.