Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2003, Page 19
Hjálpartæki
Nýjasta afurð danska fyr-
irtækisins R82 er Panda
bílstóllinn.
R82 var stofnað árið 1982 í
Danmörku og er fyrst og fremst
þekkt fyrir hönnun og fram-
leiðslu á vörum fyrir fötluð
börn. Þar má fyrst nefna Panda
vinnustólinn, Panther hjólastól-
inn, Flamingo salernisstólinn,
Tiger 2000 kerruna ásamt
miklu úrvali af stand- og
göngugrindum.
Panda bílstóllinn hefur sömu
uppbyggingu og Panda vinnu-
stóllinn, en bílstóllinn kemur á
nýrri grind með sleða. Vegna
góðrar hönnunar á Panda bílstóln-
um þá hentar hann flestum gerð-
um bifreiða. Á ferð veitir stóllinn
mjög þægilegan og góðan stuðn-
ing eins og þeir þekkja sem notað
hafa Panda vinnustólinn. Bamið
þreytist mun síður á ferðalögum
og getur notið ferðarinnar betur.
Það situr hátt í stólnum og sér
auðveldlega út. Hið mikla úrval
aukahluta sem í boði er fyrir
Panda vinnustólinn er að sjálf-
sögðu einnig hægt að fá á Panda
bílstólinn, s.s. mismunandi höfuð-
púða, hliðarstuðning og fótahvíl-
ur. Stóllinn kemur alltaf með höf-
uðpúða.
Uppsetningin á stólnum er mjög
auðveld og að sama skapi er ein-
falt að taka stólinn út úr bílnum
þegar ekki er þörf á honum. Með
stólnum fylgir tveggja punkta
belti sem hægt er að skrúfa í fest-
ingamar sem eru fyrir í öryggis-
belti bílsins. Ekki þarf að bora í
bílinn til að festa stólinn. Þar að
auki krækist grind stólsins upp
fyrir bak sætisins og hæðarstillan-
legir fætur em látnir nema við
gólf bílsins. Þetta gerir stólinn
stöðugri og veitir baminu öryggi
og þægilegri ferð.
Stóllinn er festur á grindina með
sleða. Með einu handtaki er stóll-
inn losaður úr læsingu og hann
togaður út úr bílnum. I sama
handtaki snýst stóllinn um 45° og
snýr því beint á móti foreldri og
bami eins og sjá má á myndinni
hér að neðan.
Þá er hægðarleikur einn að lyfta
baminu í stólinn, festa það og
renna stólnum til baka þar sem
í eftirfarandi töflu má sjá skilgreiningu fyrir Panda bílstólinn
Panda 2 Swing-Out Panda 2V1 Swing-Out Panda 3 Swing-Out Panda 4 Swing-Out
Aldur 0,9 - 2 ára 11/2-4 ára 3 - 6 ára 6 -12 ára
Sætisdýpt 24 cm 28 cm 31 cm 36 cm
Sætisvídd 22 cm 25 cm 29 cm 32 cm
Halli 12-23° 13-23° 13-23° 13-23°
Þyngd 19 kg 20 kg 20 kg 21 kg
hann læsist aftur. Það er því mjög
auðvelt að flytja bamið úr einu
sæti í annað.
Hægt er að nota öll belti og vesti
frá R82 sem ganga við Panda
vinnustólinn með þessum stól en
R82 hefúr sérhannað 5 punkta
belti sérstaklega fyrir þennan stól.
Athuga ber þó að alltaf verður að
festa bamið í 3 punkta öryggis-
belti bílsins, óháð því hvaða belti
bamið er fest með í stólinn!
Þar sem Panda stóllinn er til í 4
stærðum þá er hægt að nota Panda
bílstólinn mjög lengi, eða frá um
það bil 9 mánaða til 12 ára aldurs
(9-36 kg).
Það er hægt að velja hvoru meg-
in stóllinn sveiflast út úr bílnum
og hann passar bæði í aftursæti og
farþegasæti að framan. Þó ber að
hafa í huga að ekki skal hafa bam
undir 20 kg í farþegasæti að fram-
an.
Nánari upplýsingar um stólinn
er að finna á heimasíður R82,
www.r82.dk eða hjá A.Karlssyni
hf sem er umboðsaðili fyrir R82 á
íslandi.
Sigurður H. Jóhannsson
sölustjóri
A.Karlsson hf.
Netfang:
sigurdur@akarlsson.is
tímarit öryrkjabandalagsins