Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2003, Page 25
Hjálpartæki
meðfærilegum hjólastólum og
upp í fullkomna rafknúna hjóla-
stóla sem gera einstaklinga meira
sjálfbjarga og auka þar með lífs-
gæði þeirra. Hægt er að fá ská-
brautir eða sliskjur fyrir hjóla-
stóla sem getur verið handhægt ef
fara þarf upp þrep eða aka upp í
bíl. Einnig eru til hjólastólalyftur.
I verslun Eirbergs er að fínna
ýmis smátæki sem henta öllum
en þau eru sérlega létt og með-
færileg fyrir þá sem þjást af gigt.
Þama er um að ræða vinkil-ost-
askera, vinkil-hnífa eða skæri
með fjaðrandi gripi. Auk þess eru
í boði ýmsar aðrar vörur svo sem
stamar mottur, krukkuopnarar,
diskkantar, létt glös, létt hnífapör
Lyfta utanhúss sem hægt er að setja
upp í heimahús
og margt fleira. Eldavélavari
hentar þeim sem eiga til að
gleyma að slökkva á eldavélinni.
Þetta er lítið tæki sem er bæði
hitaskynjari og tímastillir og
slekkur á eldavélinni þegar plata
ofhitnar.
Allir þurfa að sitja þægilega og
huga að líkama sínum. I Eirbergi
er hægt að fá vinnustóla með
bremsu þannig að hægt sé að
læsa hjólunum. Þessir stólar em
með lyftu og gefa mjög góða set-
stöðu. Hver stóll er sérpantaður
og lagaður að þörfum hvers og
eins.
Eins og sjá má er úrval hjálpar-
tækja ríkulegt og ekki hægt að
gera því fullnægjandi skil í þess-
ari grein. Sérþarfir einstaklinga
geta verið til þess að breyta þurfi
umhverfi eða aðlaga tæki og
búnað á einn eða annan hátt. Eir-
berg leggur metnað sinn í að
veita góða þjónustu. I verslun-
inni er hægt að skoða vömmar
og fá ráðgjöf við val þeirra.
Verslunin er opin alla virka daga
kl. 8:30 - 17:00.
Jóhanna Ingólfsdóttir
iðjuþjálfi / sölu og
markaðsstjóri
Rafknúinn loftfestur lyftibúnaður.
tímarit öryrkjabandalagsins