Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2003, Blaðsíða 35
Opnugrein
Allt á fullu á Saumastofu Öryrkja-
bandalagsins
efni fatlaðra. Starfsþjálfun verði
skipulögð þannig að gerðir verði
sérstakir starfsþj álfunarsamning-
ar við fyrirtæki á almennum
vinnumarkaði
17. Efla þarf starfsemi og
samkeppnishæfni verndaðra
vinnustaða
Hvað verndaða vinnustaði
varðar er nauðsynlegt að skoðað-
ir verði möguleikar á að efla
starfsemi þeirra og samkeppnis-
hæfni meðal annars með fjöl-
breyttara verkefnavali. Þeir
verða að vera færir um að laga
sig að nýrri tækni og nýju við-
skiptaumhverfi.
18. Atvinna á almennum
vinnumarkaði er ekki valkost-
ur fyrir alla
Það verður að horfast í augu
við að atvinna á almennum
vinnumarkaði er ekki valkostur
fyrir hluta fatlaðra einstaklinga.
En eins og allir aðrir einstakling-
ar þá verður þessi hópur að eiga
þess kost að stunda atvinnu á eig-
in forsendum og að skapa verð-
mæti fyrir þjóðarbúið. Af þessum
sökum verður að viðhalda sér-
tækum úrræðum í atvinnumálum
fatlaðs fólks. Hlutverk vemdaðra
vinnustaða er að skapa atvinnu,
veita alhliða stuðning og stuðla
að þroska og þróun þeirra fötl-
uðu einstaklinga sem þar starfa.
Það er mikilvægt að fatlað fólk
hafi upplýst val um þá kosti sem
standa til boða.
19. Atvinna með stuðningi
Móta þarf framtíðarstefnu fyrir
atvinnu með stuðningi. Gera þarf
stefnuskrá eða reglugerð sem
skýrir tilgang og hlutverk. Setja
þarf fram starfsáætlun til nokk-
urra ára með mælanlegum mark-
miðum.
Hér hefur verið settur fram
gmndvöllur fyrir nýskipan at-
vinnumála fatlaðra á Islandi.
Skilgreind em markmið og settar
fram leiðir til að ná þessum
markmiðum ásamt einstökum til-
lögum um hvernig nálgast megi
markmiðin. Verði þessar hug-
myndir til þess að stuðla að um-
ræðu og úrbótum í þessum mála-
flokki er tilganginum náð. Niður-
stöður benda eindregið til þess
að atvinnumál fatlaðra einstakl-
inga sé málaflokkur sem kallar á
uppstokkun og að leitað sé nýrra
leiða til koma til móts við rétt-
mætar kröfúr um mannréttindi,
samþætt samfélag og þátttöku
allra sem þar búa.
Kristján Valdimarsson
Höfundur er stjómmála-og stjórn-
sýslufræðingur (MPA)
og starfar sem forstöðumaður starfs-
þjálfunarstaðarins ÖRVA.
Hann er einnig formaður Samtaka um
vinnu og verkþjálfun (SVV)
Hlerað í hornum
Tveir náungar, alls óvanir hestum voru þó í
útreiðartúr og fóru svo af baki til að fá sér
hressingu og til að hestarnir gætu það nú
líka, tóku þeir af þeim beislin. Þegar þeir ætl-
uðu svo að setja beislin upp á ný vildu hest-
arnir ekki opna munninn fyrir þá, þrátt fyrir
miklar fortölur, en þá segir annar mannanna
við hinn: "Við skulum bara bíða eftir því að
þeir geispi".
tímarit öryrkjabandalagsins
35