Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2003, Side 41
Sjálfboðaliðar unnu hundruð mótmælaspjalda og borða fyrir gönguna. Myndir: Þjv. Leifur
Magnús Kjartansson var beð-
inn að annast framkvæmdastjórn
göngunnar og varð hann við
þeirri beiðni. Var nú hafist handa
við að útvega efni og mála á
borða og spjöld. Fjöldi sjálfboða-
liða gaf sig fram og var verkið
unnið í félagsheimili Sjálfsbjarg-
ar og á ýmsum endurhæfmgar-
stofnunum. Málaðir voru hátt á
annað hundrað borðar til að bera
í göngunni. Blaðamannafundir
voru haldnir, greinar og viðtöl
um málefni fatlaðra birtust í
blöðum og útvarpi. Reynt var af
fremsta megni að vekja athygli á
J afnrétti sgöngunni.
Leitað var til félaga, fyrirtækja
og einstaklinga og voru undir-
tektir yfirleitt mjög góðar og
jafnvel kom fyrir að menn þökk-
uðu fyrir að þeim skyldi gefínn
kostur á að vera með. Bifreiða-
stöðvar og ijölmargir einstakl-
ingar buðu aðstoð sína við að
hjálpa þeim í gönguna sem ekki
gátu komist á eigin vegum. A
göngudaginn birtust í fjölmiðlum
áskoranir frá fjölmörgum félög-
um, þar á meðal stéttarfélögum,
og var fólk hvatt til að mæta í
Jafnréttisgönguna og vinnuveit-
endur beðnir að gefa því starfs-
fólki frí sem vildi taka þátt í
henni.
Árangurinn lét ekki á sér
standa því að þrátt fyrir rigningu
hópaðist fólk að Sjómannaskól-
anum þennan dag upp úr hádegi.
Meðal göngumanna var fólk frá
verkalýðsfélögum sem höfðu
tekið að sér að skipuleggja göng-
una.
Um klukkan tvö e.h. lagði
gangan af stað og léku skóla-
lúðrasveitir Árbæjar og Breið-
holts undir stjóm Olafs L. Krist-
jánssonar. Þá var sunginn bragur
sem Pétur Þorsteinsson hafði ort
í tilefni dagsins. - Fólk í hjóla-
stólum fór fremst og kom öllum
á óvart hversu sá hópur var fjöl-
mennur, enda var þama saman
komið fleira fólk en nokkurn
hafði órað fyrir eins og sjá má af
því að þegar hinir fremstu í
göngunni komu að Kjarvalsstöð-
um voru þeir síðustu að leggja af
stað frá Sjómannaskólanum.
Talið er að um tíu þúsund manns
hafí tekið þátt í Jafnréttisgöng-
unni.
Eftir að borgarstjórn og borgar-
stjóri höfðu boðið göngufólk vel-
komið og boðið upp á veitingar
vom flutt ávörp og ræður. Fyrst-
ur tók til máls borgarstjórinn Eg-
ill Skúli Ingibergsson. Síðan töl-
uðu af hálfu Sjálfsbjargar: Rafn
Benediktsson, Theódór A. Jóns-
son, Amór Pétursson og Magnús
Kjartansson. Því næst borgarfull-
trúarnir: Sigurjón Pétursson,
Birgir Isleifur Gunnarsson, Sjöfn
Sigurbjörnsdóttir og Kristján
Benediktsson. - Að lokum talaði
Vilborg Tryggvadóttir af hálfu
Sjálfsbjargar og las m.a. fjöl-
margar kveðjur sem borist höfðu
víðsvegar af landinu. - Borgar-
stjóri og borgarfulltrúar tóku í
ræðum sínum mjög undir kjörorð
dagsins um aukið jafnrétti til
handa fötluðum.
Jafnréttisgangan og fundurinn
að Kjarvalsstöðum ollu ekki
neinni byltingu á aðstöðu fatl-
aðra enda ekki við því að búast.
Að henni lokinni var mörgum
mun ljósara en áður hve stóran
hóp hér var um að ræða og hve
mikil nauðsyn var á að þessi
fjöldi gæti átt greiðan aðgang að
störfum í þjóðfélaginu.
Hvað gerðist eftir Jafnréttis-
gönguna?
Ekki var langt að bíða þess að
borgaryfirvöld tækju ákvörðun
um að vinna að úrbótum í mál-
efnum fatlaðra og á fundi í borg-
arráði þann 26. september voru
eftirtalin tilnefnd í nefnd. Adda
tímarit öryrkjabandalagsins
41