Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2003, Síða 42

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2003, Síða 42
Bára Sigfúsdóttir, Birgir ísl. Gunnarsson, Sjöfn Sigurbjöms- dóttir, Helgi Hjálmarsson og borgarstjóri, Egill Skúli Ingi- bergsson. A fyrsta fundi nefndarinnar sem haldinn var 9. október var um það rætt hvemig staðið yrði að því verkefni sem nefndinni var falið. Akveðið var að hefj- ast handa við þau verk sem hægt væri að byrja á án mikils tilkostnaðar. síðan skyldi tekist á við þau verk sem unnt yrði að hefjast handa við á næsta ári, t.d. söfnun upplýsinga, úrbætur í samgöngumálum, nýbygging- ar o.s.frv. Þá var rætt um að fá fulltrúa frá Sjálfsbjörg til þess að vera með á fundum nefndar- innar sem ráðgjafí í þeim mál- um sem nefndarmenn hefðu ekki næga þekkingu á. Af ein- hverjum ástæðum sem ekki fínnast í gögnum var Öryrkja- bandalagi Islands skrifað bréf daginn eftir þennan fyrsta fund nefndarinnar og þar óskað eftir tilnefningu bandalagsins í stað Sjálfsbjargar. Öryrkjabandalagið brást skjótt við og skipaði Ólöfu Ríkarðsdóttur í nefndina fyrir sína hönd. Hún sat þá í stjóm Ör- yrkjabandalagsins sem fulltrúi Sjálfsbjargar þannig að vissulega fengu hreyfihamlaðir sinn full- trúa í nefndina Þegar málsgögn em skoðuð frá þessum tíma sést að unnið var að málefninu af krafti og fundir haldnir þétt. Næsti fundur var haldinn þann 16. október þar sem Ólöf mætti ásamt þáverandi for- stjóra Strætisvagna Reykjavíkur, Eiríki Ásgeirssyni. Á þeim fundi var rætt um rekstur Kiwanisbíls- ins svonefnda sem Kiwanis- hreyfingin á Islandi hafði gefið Sjálfsbjörg landssambandi fatl- aðra árið 1977 og hafði verið nýttur að mestu í þágu íbúa Vinnu- og dvalarheimilis Sjálfs- bjargar. Eftir miklar umræður á þeim fundi voru eftirtaldar tillögur mótaðar um ferðaþjónustu, sem nefndin skyldi leggja fyrir næsta borgarstj ómarfund. Hrafn Sæmundsson og Sigursveinn D. Kristinsson voru m.a. í hópi þeirra sem sáu um skipulagningu göngunnar. A. 1. Reykjavíkurborg tekur að sér að tryggja rekstur Kiwanisbílsins, fyrst um sinn í samvinnu við Vinnu- og dvalar- heimili Sjálfsbjargar. 2. Leitað verði verðtilboða í tvo sérhannaða bíla fyrir hjóla- stólabundið fólk. 3. Athugaðir verði mögu- leikar á því að koma fyrir lyftu- og öðrum búnaði í einum af strætisvögnum S.V.R. Mætti nota þann vagn fyrir sérþarfir þessa fólks, t.d. flutninga í leikhús, myndlistarsýningar, skemmti- ferðir o.fl. B. Borgarverkfræðingi verði falið að gera tillögur um ákveðn- ar hindrunarlausar gönguleiðir fyrir hreyfihamlaða og leggja fyrir borgarráð í hvaða röð rétt sé að framkvæma nauðsynlegar að- gerðir. Jafnframt fylgi kostnaðar- áætlun um einstakar fram- kvæmdir. Þessar tillögur nefndarinnar voru samþykktar af borgar- stjóm með 15 samhljóða at- kvæðum. Eftir þennan fyrsta fund- asprett nefndarinnar hélt hún áfram að starfa út árið 1980 með sama hætti og í upphafi. Kom hún látlaust með tillögur að úrbótum á gangstéttum og lagði síðar til að skráðar yrðu með markvissum hætti úrbætur sem gera þyrfti á stofnunum Reykjavíkurborgar. Til þess skyldi nota matslykil með lýs- ingu á staðli sem mætti þörfum hjólastólanotenda. Samhliða hófúst framkvæmdir. Á fyrsta ári voru gerðar úrbætur á gönguleið frá Hátúni og niður Laugaveg. Síðan var farið í að lagfæra ýmsar byggingar og má þar nefna að Laugardals- höllin var með fyrstu húsunum sem lagfærð voru. Æskulýðshús- ið í Árbæ var tilbúið til notkunar 1981 og var það hannað með þarfír hreyfihamlaðra í huga. Á þessum tíma fór einnig að bera á því að íbúðir í blokk sem byggð var í Mjóumýrinni væru að- gengilegar þ.e.a.s. þær sem voru á jarðhæð. Sameinuðu þjóðirnar höfðu samþykkt að árið 1981 skyldi verða Alþjóðaár fatlaðra undir kjörorðinu - fullkomin þátttaka og jafnrétti -. Var nefndin endurskipuð frá áramótum 1981 og fékk nýtt nafn, ALFA-nefnd Reykjavíkur. 42 www.obi.is

x

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1441

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.