Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2003, Page 43
Einnig varð nokkur breyting á
fulltrúum í nefndinni. Hún starf-
aði með áþekkum hætti sem áður
og tók mið af þeim samþykkt-
um sem gerðar voru í tilefni al-
þjóðaársins. Meðal annars lét
nefndin sig varða atvinnumögu-
leika fatlaðra.
1 febrúar 1982 var farið fram á
það við borgarráð að umboð
nefndarinnar gilti til loka kjör-
tímabilsins. Var það samþykkt.
Auk þess var veitt heimild til
þess að bæta einum starfsmanni
við Ferðaþjónustu fatlaðra. Jafn-
framt fól borgarráð borgarstjóra
að gera tillögur um rekstrarfyrir-
komulag ferðaþjónustunnar.
Það má segja að með starfí
þessarar nefndar hafí framþróun
hafíst í aðgengismálum hreyfí-
hamlaðra. Þau málefni höfðu þó
verið í gerjun um nokkurt skeið
bæði fyrir atbeina Sjálfsbjargar
og Öryrkjabandalagsins
Guðríður Ólafsdóttir
Gangan var svo fjölmenn að þegar þeir fremstu í göngunni
komu á Kjarvalsstaði voru þeir síðustu að leggja af stað frá
Sjómannaskólanum. Myndir: Þjv. Leifur
Hlerað í hornum
Farþegar í flugvél nokkurri voru að
bíða eftir að vélin færi í loftið þegar
tveir menn, í flugstjórabúningum og
með sólgleraugu, koma gangandi
eftir gangi vélarinnar. Annar þeirra
með blindrastaf og hinn með
blindrahund. Vandræðalegur
hræðsluhlátur berst um vélina þegar
mennirnir fara inn í flugstjórnarklef-
ann og loka á eftir sér. Síðan er vélin
gangsett og byrjað að gera klárt fyr-
ir flugtak.
Farþegararnir eru farnir að skima í
kringum sig og bíða eftir að einhver
komi og segi að þetta sé bara grín,
þegar vélin gefur í og fer hraðar og
hraðar en virðist ekkert vera á leið-
inni í loftið. Þegar farþegarnir átta
sig á því að vélin stefnir beint á
stöðuvatn við enda brautarinnar í
stað þess að taka á loft, byrja allir að
öskra í hræðslukasti, en um leið tek-
ur vélin sig mjúklega á loft eins og
ekkert sé. Inn í flugstjórnarklefanum
segir aðstoðarflugmaðurinn við
flugstjórann: „Veistu Binni! Einn
góðan veðurdag eiga þau eftir að
öskra of seint... og við deyjum öll!“
tímarit öryrkjabandalagsins________-"■■”*■» .......................................43