Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2003, Síða 44
Reykj avíkuryfirlýsingin
„Barátta fyrir fullum rétti til atvinnu"
Evrópudeild Alþjóða-
samtaka um vinnu og
verkþjálfun (Workabil-
ity International - Europe) eru
stærstu samtök vinnuveitenda
sem veita fólki með fötlun
störf, þjónustu og stuðning til
starfa í Evrópu. Reykjavíkur-
yfirlýsingin er framlag Evr-
ópudeildar Alþjóðasamtaka
um vinnu og verkþjálfun (WI-
E) á Evrópuári fatlaðra, 2003.
Aðilar samtakanna veita ár
hvert yfir 800.000 fötluðum Evr-
ópubúum atvinnu eða styðja þá
til atvinnuþátttöku. Við teljum að
í sameiningu búi sambandsaðilar
yfir þekkingu og reynslu á þessu
sviði sem sé einstök. I Reykja-
víkuryfirlýsingunni er dregin
upp framtíðarsýn okkar í at-
vinnumálum fatlaðra einstakl-
inga, starfsaðferðir okkar og til-
lögur sem vísa veginn til sam-
skipunar í atvinnumálum í Evr-
ópu.
Við öxlum ábyrgðina á því að
berjast fyrir réttinum til atvinnu
fyrir þá sem njóta þjónustu okkar
- fólk með fötlun. Við ætlum að
beita okkur á öllum sviðum sam-
félagsins, hvarvetna í Evrópu: A
Evrópuþinginu, í Framkvæmda-
stjórn Evrópusambandsins, hjá
ríkisstjómum aðildarríkjanna og
annarra Evrópulanda, í heilbrigð-
isþjónustu, félagsþjónustu og hjá
endurhæfingarstofnunum, í
menntakerfinu og hjá atvinnu-
rekendum, verkalýðsfélögum og
samtökum fatlaðra og allra þeirra
sem vinna að málefnum þeirra.
Við tölum einni röddu og leit-
umst við að tryggja að öll okkar
áform miði að einu meginmark-
miði: Að ryðja hvers konar
hindmnum úr vegi svo að jöfn-
uður til atvinnu ríki.
Inngangur
í mars 2002 var samin og gefin
út svokölluð Madrídaryfirlýsing
á Evrópuráðstefnunni um mál-
efni fatlaðra, "Afnám mismun-
unar og jákvæðar aðgerðir leiða
til félagslegrar samþættingar".
Madrídaryfirlýsingin hefur
verið höfð til hliðsjónar við
samningu þessarar yfirlýsingar. I
henni er mælt fyrir munn yfir 50
milljóna fatlaðra Evrópubúa og
sett fram framtíðarsýn um sam-
virkt evrópskt samfélag byggt á
mannréttindum, afnámi hvers
kyns mismununar og jöfnun
tækifæra. Litið er svo á að at-
vinna sé grundvallaratriði þegar
stefnt er að félagslegri samþætt-
ingu Evrópu:
"Beita veróar sértækum að-
gerðum til að tryggja aðgang
fatlaðra einstaklinga að atvinnu,
sérstaklega á almennum vinnu-
markaði. Það er ein mikilvæg-
asta aðferðin til að berjast gegn
félagslegri mismunun og til að
styrkja fólk með fötlun í að lifa
sjálfstætt og með reisn. Þetta út-
heimtir ekki aðeins að virkja
þurfi í meira mœli stuðningsað-
ila, heldur verða stjórnvöld að
mtAtounoppoRTUNines
JotWWtDM*
a* l'a(
Forseti Workability International Eur-
ope Hans Vrind afhendir Árna Magn-
ússyni félagsmálaráðherra Reykja-
víkuryfirlýsinguna fyrstum stjórn-
málamanna í Evrópu.
styrkja enn frekar þær aðgerðir
sem þegar hefur verið gripið til
og eru til staðar."
Evrópudeild Alþjóðasamtaka
um vinnu og verkþjálfun styður
heilshugar Madrídaryfirlýsing-
una. Einkum styðjum við þá nýju
sýn sem fatlaðir einstaklingar
setja fram um samfélag þar sem
allir hafa hlutverki að gegna og
við ætlum okkur að vinna í sam-
ræmi við hana í samskiptum
okkar og þjónustu við fatlaða
einstaklinga.
Rödd fatlaðra einstaklinga
heyrist nú betur en nokkru sinni
fyrr. I Evrópu hafði Fram-
kvæmdastjóm Evrópusambands-
ins frumkvæði að því að sett voru
á stofn Evrópusamtök fatlaðra
(The European Disability For-
um) og hefur stutt þau æ síðan.
Nú eru þau orðin að helsta vett-