Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2003, Blaðsíða 46
fyrir stóran hóp fatlaðra. Þjón-
ustuaðilamir em hins vegar mik-
ilvæg brú milli áætlana stjóm-
valda og vinnuveitenda annars
vegar og fatlaðra einstaklinga
hins vegar og þjóna því hlutverki
að gera draumsýnir og vonir að
veruleika. Mikilvægt er að fram-
lagi þeirra sé komið á framfæri á
skilvirkan hátt.
Síðustu 15 árin hefur Evrópu-
deild Alþjóðasamtaka um vinnu
og verkþjálfun (WI-E) rannsakað
gaumgæfdega margar hliðar á at-
vinnumálum fólks með fötlun og
gefið út skýrslur og tilmæli. Þar
má telja:
• Launuð störf íýrir fatlað
fólk
• Fyrirmyndar fyrirkomu-
lag á vinnustöðum fyrir fatlaða
einstaklinga
• Samstarf vinnustaða fyrir
fatlað fólk og annarra fyrirtækja
• Hagfræðilega greiningu á
vinnustöðum fyrir fatlaða
• Atvinnu fyrir fólk sem
býr við mikla fötlun
• Tækifæri og ógnun sem
felst í nýjum atvinnugreinum og
vinnuaðferðum
• Aðlögun að nýjum stefn-
um og straumum í atvinnulífi og
félagslegri samþættingu
• Stuðning við atvinnu
fólks með þroskahömlun og geð-
fötlun
• Fræðslu á sviði tölvu- og
upplýsingatækni og símenntun
fatlaðra einstaklinga
• Hvers kyns aðbúnað og
aðlögun sem getur stuðlað að
jöfnum tækifærum
• Framgang og tilfærslu
fatlaðs fólks í starfi
Fulltrúar á ársfundi Evrópu-
deildar Alþjóðasamtaka um
vinnu og verkþjálfun í Reykjavík
27. - 30. maí 2003 miðluðu þekk-
ingu og reynslu af störfum sín-
um. Þetta leiddi til Reykjavíkur-
yfirlýsingarinnar; áætlunar um
jöfn tækifæri til atvinnu fyrir
fólk með fötlun í Evrópu. Hún
hefur hlotið samþykki allra með-
lima samtakanna og það er ósk
okkar að svo muni einnig verða
frá öðrum samtökum sem vinna
að atvinnumálum fatlaðra ein-
staklinga.
Reykjavíkuryfirlýsingin er í
þremur hlutum:
1. Framtíðarsýn og markmið
2. Leiðarljós
3. Tillögur um hvemig hægt er
að stuðla að jöfnun tækifæra fyr-
ir fatlaða einstaklinga á vinnu-
markaðnum
Framtíðarsýn og markmið
Framtíðarsýn:
Takmark okkar er að Evrópa
geti státað af því að fólk með
fötlun hafi jöfn tækifæri á við
aðra á vinnumarkaðnum.
Markmið:
Að eftir 10 ár sé hlutfall fatl-
aðra einstaklinga í atvinnu jafnt
því sem almennt þekkist meðal
annarra vinnufærra Evrópubúa.
Að laga aðstæður á vinnustað
og þjónustu að þörfum hvers
fatlaðs einstaklings, þ.á.m. stuðla
að jöfnum atvinnutækifærum
með jákvæðum hætti.
Að koma á samstarfi við vinnu-
veitendur og samtök þeirra til
þess að hámarka tækifæri fatl-
aðra einstaklinga á vinnumark-
aðnum.
Að taka saman áreiðanlegar
staðtölur yfir atvinnuþátttöku
fatlaðra einstaklinga til þess að
hægt sé að vega og meta árangur
baráttunnar.
Leiðarljós
(i) Við styðjum við bakið á
fötluðum einstaklingum hvort
sem þeir stefna á störf á almenna
vinnumarkaðnum, í eigin at-
vinnurekstri á vinnustöðum fatl-
aðra eða í atvinnu með stuðningi.
(ii) Allir starfsmenn gera
samning, greidd eru sanngjöm
laun eða önnur umbun og upp-
lýsingar em veittar um réttindi,
þ.m.t.. réttinn til að ganga í stétt-
arfélög.
(iii) I þeim tilvikum þar sem
ekki er hægt að finna störf á al-
menna vinnumarkaðnum veitum
við verðug og gefandi störf innan
eigin raða. Störf sem em sam-
bærileg við það sem tíðkast í at-
vinnulífinu og bjóða m.a. upp á
framgang í starfi.
(iv) Við kappkostum að efla
skilning og samskipti við at-
vinnurekendur; sem vinnuveit-
endur fatlaðra einstaklinga eða
væntanlega vinnuveitendur fatl-
aðs fólks.
(v) Við leggjum megin-
áherslu á það í þjónustu okkar að
taka tillit til þarfa, væntinga og
aðstæðna einstaklingsins með
það að markmiði að virkja og
efla hæfileika hans.
(vi) Við upplýsum einstakl-
inginn um þá möguleika sem em
í boði og styðjum hann í að taka
yfirvegaða ákvörðun í því sem
hann varðar.
46
www.obi.is