Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2003, Síða 50
Æfingar og leikir hjá yngstu
sundiðkendunum.
hóp er boðið upp á æfingar sex
sinnum í viku, en afar misjafnt er
hversu oft í viku einstaklingar í
þessum flokki æfa, allt frá þrem-
ur skiptum upp í sex skipti. Æf-
ingar þessa hóps miða frekar að
undirbúningi fyrir sundmót inn-
anlands og utan.
I.F.R. hefur lagt áherslu á að
bjóða upp á æfíngar sem henta
öllum fötlunarflokkum. Flestir
sem stunda sund á vegum félags-
ins eru hreyfihamlaðir. Einnig er
þar að fínna blinda, sjónskerta og
heymarskerta iðkendur.
Samhliða sundþjálfuninni
leggur sunddeild Í.F.R. mikla
áherslu á hinn félagslega þátt
starfsins. Sá félagsskapur sem
boltann gefinn
á sig af því
hæfni manns er
eitthvað skert
eða lakari en
hæfni hinna.
Þess skal þó
getið að þjálf-
arar sunddeild-
ar Í.F.R. hafa
eindregið hvatt
iðkendur sína
til að taka þátt í
sundæfmgum
hjá öðmm fé-
lögum ef þeir
fæst með því að stunda íþróttir
er ómetanlegur og víst er að
mörg vina- og kunningjasam-
bönd hafa orðið til í lauginni
eða í íþróttahúsinu og mörg
þeirra enst vel, jafnvel ámm
saman þótt menn hafi fyrir
löngu hætt að iðka íþróttir.
Sunddeild Í.F.R. stendur m.a.
fyrir pizza- og skemmtikvöld-
um og þegar farið er í keppnis-
ferðir til annarra landa er oft
ýmislegt skemmtilegt brallað.
I.F.R. hefur t.d. árlega tekið
þátt í móti í Svíþjóð sem nefn-
ist Malmö open. Þangað geta
ílestar deildir innan Í.F.R. sent
keppendur og mótið hentar af-
ar vel því að þar geta allir
keppt, bæði byrjendur og þeir
sem lengra em komnir.
Það hefur margsannast í þau
ár sem I.F.R. hefúr starfað að
íþróttaiðkun hefur oft rofið fé-
lagslega einangrun fatlaðra
bama og unglinga. Undirritað-
ur hefur margsinnis heyrt fatl-
aða íþróttaiðkendur segja frá
erfiðri reynslu sinni innan ann-
arra íþróttafélaga. Það hlýtur
að vera afar neikvæð upplifun að
vera alltaf valinn síðastur í lið
eða fá aldrei
treysta sér til og þjálfurum þykir
sýnt að slíkt gæti skilað þeim ár-
angri og ánægju. Einnig er það
svo að einstaklingar æfa hjá
sunddeild Í.F.R. ásamt því að
stunda sundæfingar hjá öðmm
félögum á sama tíma og hefur
það haft mjög jákvæð áhrif á fatl-
að íþróttafólk og einnig haft já-
kvæð áhrif á starf annarra sund-
deilda.
Það er von mín að þessi stutta
grein veki foreldra fatlaðra bama
til umhugsunar um mikilvægi
íþróttaiðkunar barna og ungl-
inga. Sunddeild Í.F.R. getur tek-
ið við fleiri börnum og ungling-
um í vetur vegna þess að æfínga-
tímum hefur verið fjölgað. Allar
nánari upplýsingar um æfínga-
tíma em veittar í Iþróttahúsi fatl-
aðra, Hátúni 14 í síma 561-8226.
Að síðustu bið ég menn að hafa
eftirfarandi hugfast: „AÐ
VERA ÞÁTTTAKANDI ER
STÆRSTI SIGURINN!“
Halldór Sævar Guðbergsson
sundþjálfari
Ég skal komast á Malmö open. Einbeitingin
skín af sundfólkinu.