Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2003, Side 55
en starfsmennirnir sjá um þrif,
bakstur og þjónustu. Kaffíhúsið er
ágætlega sótt af heimamönnum og
nýtur jólahlaðborð þeirra mikilla
vinsælda.
Síðasta daginn í Middlesbrough
fórum við til Abbey Hill í Stock-
ton en þessi skóli er fyrsti tækni-
skólinn í Bretlandi fyrir nemendur
með sérþarfir á grunn- og fram-
haldsskólastigi. Skólinn er á
tveimur stöðum við Ketton Road
og Norton. Þama skiptum við okk-
ur í tvo hópa og skoðaði annar
hópurinn starfsemina í Ketton en
hinn hópurinn fór til Norton.
I Norton er unglingadeild og
þangað koma bæði nemendur frá
Ketton og úr almennum gmnn-
skóla. Markmið skólans er að ná
fram því besta sem býr í hverjum
einstaklingi. Nemendumir em á
aldrinum 11-19 ára og em flestir
með þroskahamlanir eða haldnir
kvíðafælniröskun. Við upphaf
skólagöngu er lagt mat á það
hvaða nám hentar nemandanum,
sérstaklega er horft til áhugamála
hans og væntinga varðandi starfs-
vettvang. Mat þetta er endurskoð-
að á hverri önn öll skólaár nem-
andans. Nemandi sem sýnt þykir
að komi ekki til með að starfa á al-
mennum vinnumarkaði fær náms-
tilboð og starfsþjálfun við hæfi
innan skólans. Hins vegar er stór
hópur nemenda sem sækir starfs-
þjálfun á almennum vinnumarkaði
og er þá skólinn í samvinnu við fé-
lagsmálastofnanir úti í bæ sem
hafa milligöngu um að útvega
vinnustaði. Eftir að nemandi er út-
skrifaður og kominn út á almenn-
an vinnumarkað sér starfsmaður
skóla um eftirfylgd í eitt ár.
I Norton sáum við nemanda við
Smart Board töflu nota m.a. for-
ritið "Out and about". Með þessu
forriti er t.d. hægt að sýna nem-
endum viðeigandi hegðun og
vinnubrögð á vinnustað. Forritið
hentar því afar vel við undirbúning
starfsnáms. Smart Board taflan er
tengd við tölvu og er skjámynd-
inni varpað á töfluna með skjá-
varpa. Kennarinn getur skrifað á
töfluna með þar til gerðum penna
til að útskýra eða undirstrika mál
sitt. í stað músar stjómar hann
hugbúnaðinum með því að snerta
töfluna. Þetta er einn helsti kostur
töflunnar því kennarinn getur
kennt öllum bekknum í einu í stað
þess að vera á bakvið tölvuskjá
eða hlaupa á milli nemenda. Þegar
heim var komið var lagt mikið
kapp á að eignast Smart Board
töflu og þess má geta að á vorönn
2003 fékk Starfsbraut FB töflu að
gjöf frá félögum í Lionsklúbbnum
Þór í Reykjavík. Notkunarmögu-
leikar Smart Board töflunnar em
óþrjótandi sama hvort er í leik eða
starfi með nemendum eða á
fræðslu- og samstarfsfundum
kennara.
Eitt af því sem vakti athygli okk-
ar í heimsókninni til Bretlands var
samvinnan milli nemendahópsins
í matsal Priory Woods School og
varð það kveikjan að tilraunaverk-
efni á Starfsbraut síðastliðinn vet-
ur. Auglýst var eftir starfsmönnum
meðal nemenda brautarinnar til
þess að aðstoða getuminni nem-
endur. Hlutverk þessara starfs-
manna var að aðstoða skólasyst-
kini sín við að kaupa nesti, matast
í skólastofu eða matsal og komast
til og frá matsal sem staðsettur er í
aðalbyggingu FB. Það er sam-
dóma álit nemenda og kennara að
vel hafi til tekist og er stefnt að því
að gefa nem,endum aftur kost á
vinnu sem þessari innan skólans.
Það sem var áhugaverðast í ferð-
inni var að fræðast um það hvem-
ig staðið er að skipulagningu
starfsnámsins í Norton. Má hér
nefna ferlið sem á sér stað þegar
kemur að því að fínna starfsnáms-
staði fyrir nemendur og eftirfylgd-
ina af hálfu skólans. Einnig hve
mikil undirbúnings- og greiningar-
vinna á sér stað strax við upphaf
skólagöngu nemenda. Þessi þáttur
4-11 ára nemendur í Priory Woods
School.
Glermunir unnir af nemum í
Brackenhoe School.
vakti greinarhöfunda sérstaklega
til umhugsunar og nú hafa þeir
fengið þróunarstyrk til þess að
vinna að færni- og áhugasvið-
skönnun fyrir nemendur með sér-
þarfir. Niðurstöðum könnunarinn-
ar er ætlað að gefa vísbendingar
sem gerir kennumm kleift að búa
nemendur enn betur undir væntan-
legan starfsvettvang.
Valdís Harrysdóttir, kennari
Hrafnhildur Gísladóttir,
þroskaþjálfi
tímarit öryrkjabandalagsins
55