Íslenskt mál og almenn málfræði - 2014, Side 173
Í fyrsta „heftinu“ af NALS (2014) má finna fjölmargar smágreinar um ýmis
efni í norrænni setningagerð. Mér telst svo til að þær séu alls 55 og allar eftir
málfræðinga sem starfa í Noregi eða Svíþjóð. Efnisflokkarnir miðast við við -
fangsefni sem voru skilgreind í upphafi áðurnefndrar rannsóknasamvinnu, en
þeir eru þessir (fjöldi greina um hvert efni innan sviga):
• gerð nafnliða, t.d. staða greinis, eignarfornafna o.s.frv. (10)
• gerð sagnliða, t.d. hvers konar rökliði sagnir taka með sér, staða sagnaragna
o.fl. (11)
• staða (persónubeygðra) sagna (5)
• orðaröð á „miðsvæðinu“ í setningunni, t.d. staða andlags, hjálparsagnar o.fl.
(14)
• orðaröð á „vinstri væng“ eða „hægri væng“ setningar, t.d. tengingar, spurn-
arorð, kjarnafærsla, síðbúnir liðir af ýmsu tagi (9)
• fornöfn og samvísun (6)
Í langflestum greinunum er megináherslan á norsku og/eða sænsku, en í allmörg-
um tilvikum er þó tekið með efni úr dönsku, færeysku og íslensku. Þótt grein-
arnar séu allar stuttar, og sumar jafnvel örstuttar, er þar yfirleitt vísað í helstu
skrif um viðkomandi efni. Það er því ótvíræður fengur að þessari nýju birt-
ingaraðferð og hún vekur athygli á því hvernig unnt er að nýta þann efnivið sem
var aflað í áðurnefndu rannsóknasamstarfi.
Umsjónarmenn þess norræna gagnabanka sem hér um ræðir hafa ekki aðeins
gert rannsóknamönnum kleift að leita í honum og sækja sér dæmi þangað heldur
hafa þeir m.a. útbúið forrit sem má nýta til að búa til kort sem sýna dreifingu
þeirra afbrigða sem verið er að skoða hverju sinni. Höfundar nokkurra greina í
þessu fyrsta hefti NALS hafa nýtt sér þennan kost og sum kortin yfir dreifingu
afbrigða í Noregi og Svíþjóð eru býsna sannfærandi og skýr. Það á t.d. við um
mynd 1, en hún sýnir hvar í sunnanverðum Noregi er hægt að nota dæmi eins og
(1) (sjá Johannessen og Garbacz 2014).
(1) Jeg har et bilde av n Elvis Presley.
ég er með (á) mynd af honum Elvis Presley
Málið snýst sem sé um það hvort, og þá hvar, hægt sé að nota þennan „fornafna-
greini“, sem á íslensku væri hann, hún, með nöfnum einstaklinga sem maður
þekkir ekki neitt. Getur maður sem sé talað um nElvis Presley ‘hann Elvis Presley’
þótt maður hafi aldrei hitt hann. Hvert merki á kortinu táknar einn rannsókn-
arstað, svart merki þýðir að dæminu hafi verið hafnað á viðkomandi stað, hvítt að
það hafi verið samþykkt, en grátt merki var notað til að sýna blandaðar viðtökur.
Mörkin á milli svæða eru býsna skýr og þarna virðist sem sé hafa dugað að ræða
bara við fjóra einstaklinga á hverjum stað til þess að fá mynd af dreifingunni.
Ástæðan hlýtur þá að vera sú að fyrirbærið hafi svona skýr tengsl við staðbundnar
mállýskur.
Ritfregnir 173