Spássían - 2012, Blaðsíða 34

Spássían - 2012, Blaðsíða 34
34 hafa ofan af fyrir okkur, þó engin sé leikmyndin (svona hérumbil), hvað þá lýsingin (eða varla). Til þess eru síðan öll meðul notuð; búningasamtíningur, alls kyns dót, trúðalæti, og, ef allt annað bregst; afdráttarlaus einlægni. Halldór Laxness setti leikhúsgestum fyrir að skilja lógaritmatöflurnar eftir heima og „koma eins og krakki“, og leikhópurinn í Samkomuhúsinu nær svo sannarlega að taka af okkur reiknitækin og setja okkur í stöðu opineyga barnsins, lokka okkur inn í söguna. Óreiðukennd nálgun leikstjórans þótti mér kunnugleg úr fyrri sýningum hans sem ég hef séð, Mindcamp og Rambó 7. Þar þótti mér kaosið svolítið standa í vegi fyrir erindinu frekar en að hjálpa því, formtilraunirnar og leikurinn með leikhúsið þvælast fyrir þörfinni til að miðla þjóðfélagslegum boðskap og spurningum. Hér hins vegar styðja nálgun og efni hvort annað. Eitursnjöll og vel uppbyggð Ealing- saga Kaurismakis heldur áhorfendum spenntum við framvinduna og lausatök leikstíls og grunnhugmyndar sýningarinnar eyða allri þörf fyrir umbúnað, raunsæi og endursköpun staðar og stundar. Draga okkur inn í samsæri leikara og áhorfanda. Reyndar verð ég svolítið heimtufrekur á svona sýningum – ætlast gjarnan til að einhverjar af lausnunum sem frumstæðar aðstæðurnar kalla fram séu alveg yfirmáta brilljant. Get nú varla sagt að nein þeirra hafi kallað fram stórt „Vá!“ hjá mér að þessu sinni. Kannski komust næst því trampólínhoppin hjá aðalsöguhetjunni til að tjá okkur ástarbríma sinn, flott vídeó-uppbrot í lok sýningar sem er með því snjallara sem ég hef séð af því taginu. Já og reykvélin sem leigumorðinginn ógurlegi gekk með í hendinni til að skapa dulúð hvar sem hann fór. Öll myndefnisnotkun var stórskemmtileg, ekki síst furðuveran sem skeiðaði um sýningartjaldið í tíma og ótíma og ég hallast helst að því að hafi verið kalkúnn, þó ég hafi líka heyrt aðrar kenningar. Fjölskipaður harmóníkuhópurinn sem sér um tónlist sýningarinnar að mestu setti skemmtilegan og óvenjulegan svip á sýninguna, ekki síst þær Eva Margrét Árnadóttir og Linda Björk Guðmundsdóttir sem taka öllu meiri þátt í framvindunni en félagar þeirra. Þó saknaði ég þess svolítið að hljóðmyndin styddi betur við atburði og stemmingu. Sniðugt leiðarstef leigumorðingjans gaf til kynna að þarna væru vannýttir möguleikar. Leikarar af yngri kynslóðinni eru eins og síldartorfa í vatni í þessum leikstíl. Aldeilis ófeimin við að mæta með sig sjálf á sviðið og vinna út frá því. Þetta gildir svo sannarlega um þennan hóp. Á engan er samt hallað þó nokkrum orðum verði varið í að tala um Hannes Óla Ágústsson sérstaklega. Á honum hvílir sú ábyrgð að vera miðja og hjarta sýningarinnar í hlutverki hins (ó)lánssama og uppburðarlausa sjálfsmorðingja Henri Boulanger. Hannes Óli fær að vera „í hlutverki“ og í sama hlutverki nokkurn veginn allan tímann. Hann nær að teikna mjög fallega, áreynslulausa og trúverðuga mynd af persónunni og að halda henni lifandi og sannfærandi í hinni mjög svo óáreiðanlegu umgjörð sýningarinnar. Leigumorðinginn er mikil skemmtisýning þar sem nokkrum hefðbundnum meðulum óhefðbundins leikhúss er beitt á óvenju snjallan hátt á skemmtilegan efnivið svo úr verður sýning sem allir sem það vilja hljóta að njóta. Held ég allavega. Og sem ég sit og skrifa þessa umsögn berast þær fréttir að búið er að ráða Ragnheiði Skúladóttur í starf leikhússtjóra Leikfélags Akureyrar til næstu tveggja ára. Það eru gleðitíðindi og ástæða til að óska henni og norðlenskum leikhúsunnendum til hamingju. Byrjunin lofar í það minnsta frumlegu, aðgengilegu – og góðu. Eitursnjöll og vel uppbyggð Ealing-saga Kaurismakis heldur áhorfendum spenntum við framvinduna og lausatök leikstíls og grunnhugmyndar sýningarinnar eyða allri þörf fyrir umbúnað, raunsæi og endursköpun staðar og stundar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Spássían

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.