Spássían - 2012, Blaðsíða 46

Spássían - 2012, Blaðsíða 46
46 BLÁVATNSORMURINN: Ævintýri úr Silfurbæ er bók eftir Brynhildi Þórarinsdóttur með myndskreytingum eftir Bergrúnu Írisi Sævarsdóttur og gæti hvort heldur sem er verið sjálfstæð bók eða fyrsta bók í bókaröð um ævintýri barnanna í Silfurbæ. Silfurbær er lítill hafnarbær á Íslandi, en ólíkt öðrum bæjum liggur þangað enginn vegur og hann finnst hvergi á korti. Vegna kristalsfjalls sem stendur yfir bænum er veðurfar og dýralíf þar ólíkt því sem þekkist annars staðar á Íslandi, þar er mun hlýrra og dýr sem eru okkur framandi eru þar eðlileg. Margt sem við þekkjum er ekki til þar, svo sem bílar, bófar, lögregla og nútímatækni. Sögumaður beinir orðum sínum oft beint til lesanda til að útskýra í hverju munurinn liggur og af hverju þessi heimur er frábrugðinn okkar.  Lesendur fylgja annars eftir vinunum Sólu og Yl, sem eru sjö og átta ára, og daglegu lífi þeirra. Lýsingar á bænum og lífi barnanna þar eru útópískar, börn fara í skólann vegna þess að þeim finnst það gaman, kennsluhættir eru óhefðbundnir á okkar mælikvarða, ekki er aldursskipt í bekki og á meðal námsgreina eru sundlíffræði og lestrarsprettir. Allir verða að fá sinn daglega skammt af S-vítamíni, sem einungis fyrirfinnst í súkkulaði. Börnin eru að mestu úti við og geta synt og klifrað í klettum og trjám. „Það eina sem þau geta ekki er að vera kyrr og það er líka algjör óþarfi að kunna það þegar maður er krakki“ (25).  Þrátt fyrir að líf barnanna í bænum sé að mörgu leyti áhyggjulaust þá leynast líka hættur í þessum ævintýrafirði. Meðal annars þurfa þau að læra að vara sig á krókódílum og drekum. Stærsta hættan er þó Blávatnsormurinn, sem sefur á botni samnefnds stöðuvatns. Hann vaknar á hundrað ára fresti og vakir þá í nokkur ár og étur nótt og dag til að safna forða fyrir næsta lúr. Þegar sagan hefst eru tíu ár þangað til hann á að vakna og enginn nennir að hafa áhyggjur af því, nægur tími sé til stefnu og fram að því ætli íbúar bæjarins að hugsa um annað, þannig að þegar ormurinn vaknar óvænt er enginn reiðubúinn. Vel má merkja ádeilu þar. Hinir fullorðnu valdhafar fresta því að takast á við yfirvofandi vanda og ráða svo alls ekki við þær aðstæður sem skapast. Afleiðingin er upplausn og börnin verða að taka til sinna ráða.  Sagan er vel og lipurlega skrifuð og full af kímni. Svarthvítar myndir prýða bókina, eru látlausar en styðja vel við textann. Þær eru oftast hálfsíðumyndir en ná sums staðar yfir í textahlutann sem heppnast vel og passar vel við heildaryfirbragðið. Þetta er ein af þeim bókum sem bæði fullorðnir og börn geta notið. Í öðrum heimi Eftir Kolfinnu Jónatansdóttur Brynhildur Þórarinsdóttir. Blávatnsormurinn: Ævintýri úr Silfurbæ. Mál og menning. 2012. 6 GuðjónÓ prentsmiðja notar tækjakost sem er í fremstu röð. Þar má til að mynda nefna nýja Heidelberg Speedmaster 52. Vélin ræður við allt að 400gr pappír með vatnslakki sem skilar prentörkinni þurri úr prentvélinni. Með þessu má stytta vinnslutímann á vörunni verulega þar sem prentgripurinn getur farið beint í frágang og skurð að prentun lokinni. Lakkið á prentvélinni er vistvænt og er fáanlegt í silkimöttu, möttu, glansi og háglansi. Allar þessar lakktegundir skapa fallega áferð á prentgripinn. Í raun má segja að stór hluti prentvinnslu hjá GuðjónÓ sé stafrænn. Aðsend hönnuð gögn eru send beint á stafrænan plötuskrifara (sem býr til prentplöturnar). Með þessum fullkomnu tækjum getum við unnið þau verk sem okkur berast hratt og örugglega og þannig hjálpað viðskiptavinum að standa við skuldbindingar sínar. UMHVERFISMÁL GuðjónÓ, vistvæna prentsmiðjan, er fyrsta og eina prentsmiðja landsins sem merkt getur prentgripi sína með umhverfi smerkinu Svaninum. Prentsmiðjan fékk Svaninn fyrst árið 2002 og endurnýjun árið 2008, en ströng skilyrði eru sett fyrir því að fá að taka upp Svaninn. Stærstur hluti framleiðslu prentsmiðjunnar er á umhverfi smerktum pappír eða á pappír sem viðurkenndur er af umhverfi s merkinu Svaninum. Svansmerktur pappír þarf að upp- fylla ströng skilyrði. Krafa er gerð um að 50% hráefnis séu endurnýtt og einnig er þess krafi st að öll þau efni sem notuð eru við pappírsframleiðsluna séu niðurbrjótanleg í nátturunni. Með ákveðnum aðgerðum í prentsmiðjunni hefur nýtingarhlutfall á pappír hækkað og góður árangur hefur náðst í að minnka afskurð á pappír. Að auki gerir Svanurinn kröfu um að öll fl okkun pappírs sé mjög nákvæm. Þess vegna ætti GuðjónÓ að vera fyrsti valkostur þeirra fyrirtækja sem vilja að allir þættir rekstursins séu umhverfi svænir. GuðjónÓ prentsmiðja hefur í áratugi stutt margs konar menningarstarf- semi. Þar má nefna tónlistarhátíðir, myndlistarsköpun og aðrar listir. Við viljum leggja okkar af mörkum til að menning nái að vaxa og dafna í samfélaginu. Krafan um að fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög taki upp ábyrga stefnu við innkaup og notkun vara hefur vaxið á undanförnum árum. Í Staðardagskrá 21, sem mörg sveitarfélög hafa skrifað undir, er ætlast til að innkaup taki mið af umhverfi nu. Í þessum svo- kölluðu grænu innkaupum er eitt einfaldasta skrefi ð að nota umhverfi smerktar vörur, ekki síst pappír og prentgögn. Prentsmiðjan GuðjónÓ hefur hlotið vottun hjá Norræna umhverfi smerkinu Svaninum og getur því umhverfi smerkt allar vörur sínar. Hjá GuðjónÓ leggjum við mikla áherslu á persónu- lega þjónustu og komum til móts við allar óskir viðskiptavina með faglegum metnaði. Við gætum þess að hvert verkefni hafi einn ábyrgðarmann sem fylgist með öllum þáttum verksins og geti upplýst um gang mála á öllum stigum framleiðslunnar. Þeir starfsmenn sem sjá um samskipti við viðskipta vini hafa áratugareynslu í faginu og veita fúslega góða ráðgjöf. TÆ KN IN Umhverfisvænn valkostur Prentgripir frá GuðjónÓ eru umhverfismerktir Persónuleg þjónusta – alla leið Eina umhverfisvottaða prentsmiðjan Tækjabúnaður af bestu gerð VIÐ STYÐJUM MENNINGU OG MANNLÍF ÞJÓNUSTAN Prentsmiðjan fékk svansvottun árið 2000 Áratuga reynsla segir allt! Persónuleg þjónusta alla leið! Göngum hreint til verks! www.gudjono.is · sími 511 1234 www.gudjono. s YFIRLESIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Spássían

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.