Spássían - 2012, Blaðsíða 39
39
Það er ekki það að nútímalesandi geti ekki sett sig í
spor fólks þessa tíma, heldur er skáldið að vinna með
afskaplega persónulega reynslu, sem verður innblástur
að síðari verkum. En nútíminn hefur einnig gert okkur
ónæm fyrir þjáningunni, við kippum okkur ekki lengur
upp við myndir af útrýmingarbúðum og sögum úr
hersetnum löndum. Espmark gerir sér fulla grein fyrir
þessu og í nútímaljóðunum vinnur hann að því að stuða
lesandann og framandgera reynsluna eins og í ljóðinu um
Hírósíma: „Við náum hvort öðru með fingurgómunum.
/ Enginn getur tekið í hönd annars / því engum má lyfta
úr fletinum. / … / En við strjúkumst hvert við annað
og okkur er kalt / í dimmri birtu sem fyllir yfirborðið“
(88). Hér verður skáldið málpípa fyrir skuggana sem eru
brenndir fastir í steypu og múrveggi eftir sprenginguna,
skugga sem eiga sér sögu sem enginn getur sagt.
Espmark er líka mjög upptekinn af því hvernig sagan
verður til, það er mikilvægt fyrir hann að lesandinn
skilji að sagnfræði er ekki sannleikur, hún er mótuð
og meðhöndluð af valdhöfum og tíminn leiðir af sér
kulda gagnvart viðfangsefninu: „En þetta er engin
mannkynssaga! / … / Frá útitröppum bókasafnsins
sést sjúkrabíllinn / og börurnar sem rennt er inn /
með mannveru í hnipri líkt og fóstur / … / Hann dó
fyrir fáeinum sekúndum / … / Fáeinum metrum frá
spurningum fræðimanna“ (63). Hann reynir hins vegar
að blása lífi í þessa reynslu, hann vill ekki að tilfinningin
fyrir hryllingnum glatist, annars verður reynslan
merkingarlaus og þjáning fólksins á þessum tíma til
einskis.
Skrifað í stein er ekki ljóðabók fyrir hvern sem er, hún
er þung í vöfum, sérstaklega í fyrri helmingi verksins.
En bókin verður smám saman áhugaverðari aflestrar og
það er mun auðveldara að átta sig þegar hún er lesin
aftur, því nútímaljóðin opna fyrir túlkun og lestur á fyrri
verkunum.
GLÆSILEG kápa skáldsögunnar Rof eftir Ragnar Jónasson
er í fullu samræmi við umfjöllunarefnið: Hún er grá og
drungaleg, einmanaleg, kuldaleg, skökk og svolítið skæld.
Hér er um að ræða fjórðu spennusögu höfundar og enn
er aðalsöguhetjan lögreglumaðurinn Ari Þór. Sagan er
römmuð inni af fjöllum, myrkri og þögn og gerist að
mestu á Siglufirði.
Bærinn er einangraður vegna banvænnar sóttar -
enginn fær að fara inn og enginn fær að fara út. Meðan
á þessu stendur er Ari Þór beðinn um að grafast fyrir um
dularfullt dauðsfall sem átti sér stað fyrir meira en hálfri
öld. Þá fluttu tvenn ung hjón í Héðinsfjörð, afskekktan
stað sem nú er í eyði, og endaði sú dvöl með dularfullum
dauða annarrar kvennanna. Hún er sögð hafa tekið
inn eitur fyrir mistök eða jafnvel framið sjálfsmorð en
nýjar upplýsingar benda til þess að hugsanlega hafi
verið um morð að ræða. Ari fær hjálp frá fréttakonunni
Ísrúnu í Reykjavík en auk þess rannsakar hún sakamál í
höfuðborginni þar sem við sögu kemur morð, barnsrán,
eiturlyf og stjórnmálamenn.
Í Rofi eru samtímis sagðar margar sögur og allar
spennandi. Einkalíf helstu persóna er ekki síður
áhugavert og á það einkum við um ástarmál Ara og
svo samband Ísrúnar við foreldra sína og sjúkdóminn
sem hún hefur engum sagt frá. Höfundur mætti þó
liggja betur yfir persónunum og sérstaklega er það
aðalpersónan Ari sem mætti lifna betur við, öðlast meiri
dýpt og persónuleika. Rof er ágætasta spennusaga og
þótt nostra mætti betur við ýmislegt og lausnirnar séu
heldur fyrirsjáanlegar er vel hægt að mæla með bókinni.
Fjöllin, myrkrið
og þögnin
Eftir Helgu Birgisdóttur
Ragnar Jónasson. Rof.
Veröld. 2012.
YFIRLESIÐ
GERIST
ÁSKRIFENDUR
750 kr. pr. hefti
Sendingarkostnaður innifalinn
1
sp
ás
sí
an
Vor 2011
2. árg. 1. tbl.
Verð 790,- kr.m.vsk.
Einkaréttur
lífsgæðanna
Beðið eftir
heimsendi
Hverjar voru fyrstu
blaðakonurnar?
Gyrðir Elíasson
og ljóðaþýðingar
Oddný Eir Ævarsdóttir
Pólitík og skáldskapur
1
menningartímarit
&listinvísindin
sp
ás
sí
an
Sumar 2011
2. árg. 2. tbl.
Verð 890,- kr.m.vsk.
sp
ás
sí
an
menningartímarit
Ísland í aldanna rás 2001–2010
fjallar á líflegan hátt um atburði
einhverra æsilegustu ára í sögu
lands og þjóðar.
Rifjaðu upp áratug öfganna!
Ótæmandi brunnur fróðleiks og
skemmtunar sem öll fjölskyldan
sækir í – aftur og aftur.
Áratugur öfga
Bæt tu þessa R i gl æsilegu BÓk í sa f nið!
www.forlagid.is
Forlagsfréttir2012.indb 64 5.11.2012 12:32
sp
ás
sí
an
sp
ás
sí
an
menningartímarit
Vetur 2012 - 3. árg. 4. tbl.
VERÐ 890 kr.m.vsk.
VIÐTAL: GERÐUR KRISTNÝ
spennir á sig skautana
JÓLABÆKURNAR 2012
HOBBITINN
í nýju ljósi
www.spassian.is