Bændablaðið - 04.06.2020, Page 2
Bændablaðið | Fimmtudagur 4. júní 20202
Icelandic Lamb veitti í dag níu
veitingastöðum viðurkenningu
sína, Icelandic Lamb Award
of Excellence, við hátíðlega
athöfn í Vinnustofu Kjarvals í
Austurstræti í Reykjavík.
Þetta var í fjórða sinn sem viður
kenningarnar eru veittar, en þær
hljóta veitingastaðir sem þykja
hafa skarað fram úr í framreiðslu
á íslensku lambakjöti ár hvert. Að
þessu sinni var sú nýbreytni viðhöfð
að veitingastöðunum var skipt í þrjá
flokka; sælkeraveitingastaðir (fine
dining), bistro og götumatur – og
fimm veitingastaðir tilnefndir í
hverjum flokki.
Eliza Reid forsetafrú ávarpaði
samkomuna og veitti viður kenning
ar nar.
Eftirtaldir staðir hlutu að þessu
sinni viðurkenningar:
Sælkeraveitingastaðir
• Geysir Hótel Restaurant
• Hver Restaurant
• Silfra Restaurant
Einnig voru tilnefnd: Geiri Smart
og Fiskfélagið.
Bistro
• Heydalur
• KK Restaurant
• Mímir
Einnig voru tilnefnd: Lamb Inn
og Forréttabarinn.
Götumatur
• Fjárhúsið
• Lamb Street Food
• Le Kock
Einnig voru tilnefnd: Shake & Pizza
og Icelandic Street Food.
Um 180 veitingastaðir eru í sam
starfi við Icelandic Lamb um notk
un á félagamerki við kynningu og
markaðssetningu á íslensku. Í ávarpi
sínu fagnaði Elizu Reid þeim árangri
sem náðst hefur í markaðssetningu á
íslensku lambakjöti til ferðamanna
með átaksverkefninu.
Hún sagði að hægt væri að draga
þá ályktun að starf Icelandic Lamb og
notkun samstarfsaðila á merki þess
hafi skilað allt að 23 prósenta aukn
ingu á neyslu ferðamanna á íslensku
lambakjöti. Hún minnti sérstaklega
á mikilvægi þess hlutverks sem
veitingastaðir og matreiðslumenn
spila þegar kynna á land og þjóð
erlendis. „Matur er besta leiðin til
þess að kynna fólki fyrir íslenskri
hefð og menningu. Þegar ég er
erlendis finnst mér alltaf gaman að
tala um matarmenninguna hér og
ekki síst íslenskt lambakjöt,“ sagði
hún.
Sæmundur Kristjánsson, Guð
björg Gissurardóttir og Pétur
Snæbjörns son sátu í dómnefndinni,
en hún lagði mat á markaðs og
kynningar efni staðanna, auk fag
legrar þátttöku þeirra í samstarfs
verkefninu. /smh
FRÉTTIR
Einungis 5,96% af eftirspurn var í boði á fyrsta mjólkurkvótamarkaði ársins:
Næsti markaður er fyrirhugaður 1. september
og áhersla er enn lögð á þak á kvótaverð
Þann 1. apríl síðastliðinn fór
fram fyrsti markaðurinn með
greiðslumark sem samið var um
við endurskoðun á samstarfs-
samningi um nautgriparækt
milli ríkis og bænda á síðasta ári.
Næsti markaður er fyrirhugaður
1. sept em ber.
Einungis voru boðnir 596.046
lítrar af mjólk, eða um 5,96% af
því sem óskað var eftir að kaupa,
eða 9.836.190 lítra.
Þó nokkrar fyrirspurnir hafa
borist til Bændablaðisns varðandi
uppboð í apríl sem virðist hafa
farið framhjá mörgum kúabænd
um. Upplýsingar hafa eigi að síður
legið frammi, m.a. á vefsíðunni
naut.is.
Alls bárust 227 gild tilboð um
kaup og sölu á tilboðsmarkaði
fyrir greiðslumark mjólkur, þann
1. apríl 2020. Voru tilboð send með
rafrænum hætti í gegnum afurð.is.
Greiðslumark sem viðskipti náðu
til eftir opnun tilboða (jafnvægis
magn) voru 585.9 lítrar að andvirði
108.406.485 kr.
• Fjöldi gildra tilboða um sölu á
greiðslumarki mjólkur voru 9
• Fjöldi gildra tilboða um kaup
voru 218
• Fjöldi kauptilboða undir jafn
vægisverði voru 4
• Greiðslumark sem boðið var
fram (sölutilboð) voru alls
586.046 lítrar
• Greiðslumark sem óskað
var eftir (kauptilboð) voru
9.836.190 lítrar
• Greiðslumark sem viðskipti
ná til eftir opnun tilboða (jafn
vægismagn) voru 585.9 lítrar
að andvirði 108.406.485 kr.
Þeir sem lögðu inn tilboð um sölu
á greiðslumarki á verði 185 kr./l.
eða lægra seldu sitt greiðslumark.
Atvinnuvega og nýsköpunarráðu
neytið sendi öllum tilboðsgjöfum
upplýsingar um afgreiðslu tilboða
og gerir breytingar á skráningu
greiðslumarks þegar uppgjör
hefur farið fram. Upplýsingar um
greiðslumark sitt geta bændur nálg
ast í AFURÐ og á Bændatorginu.
Næsti kvótamarkaður verður
1. september og sá þriðji í
nóvember
Næsti markaður með greiðslu
mark mjólkur á að fara fram
þriðjudaginn 1. september næst
komandi. Þurfa bændur að skila
inn tilboðum um kaup og sölu í
gegnum afurð.is fyrir 10 ágúst. Þá
átti þriðji kvótamarkaður ársins að
fara fram 1. nóvember næstkom
andi, en þar sem þá dagsetningu
ber upp á sunnudag færist mark
aðurinn yfir á 2. nóvember. Skila
þarf inn tilboðum fyrir það uppboð
fyrir 10. október.
Seljanda er einungis heimilt að
bjóða til kaups á septembermarkaði
það magn greiðslumarks sem hann
hefur ekki þegar nýtt innan verð
lagsársins fyrir innlegg í afurða
stöð. Er það sama fyrir komulag og
gilti fyrir uppboðið í apríl.
Deilt um fyrirkomulag
Mjög hart var tekist á um það í
aðdraganda þessa uppboðs hvort
framboð og eftirspurn ætti al
farið að stýra kvótaverðinu eða
hvort setja ætti þak á verðtilboð.
Lendingin varð sú að leggja það
til við ráðherra að hámarksverð
gæti aldrei orðið hærra en þrefalt
lágmarksverð mjólkur til framleið
enda.
Við opnun tilboða 1. apríl um
kaup og sölu á greiðslumarki
mjólkur kom fram jafnvægisverð á
markaði krónur 185 kr. fyrir hvern
lítra mjólkur. Það var ákvörðun
landbúnaðarráðherra og að tillögu
framkvæmdanefndar búvörusamn
inga að setja hámarksverð sem var
185 kr. fyrir hvern lítra mjólkur.
Tilboðin tóku nær undantekningar
laust mið af þessu hámarksverði.
Áfram lögð áhersla
á hámark á kvótaverði
Varðandi næsta kvótamarkað
er ekki ljóst hvaða hámarks
verð verður sett á hvern lítra.
Framkvæmdanefnd búvörusamn
inga átti eftir að taka afstöðu til
þess þegar síðast var vitað. Um
þetta var hins vegar rætt í stjórn
Landssambands kúabænda þann
20. apríl, en þar segir:
„Fundur framkvæmdanefndar
búvörusamninga verður haldinn
fljótlega. Umræður um þróun á
kvótamarkaði og hámarksverð.
Stjórn sammála að stöðugleiki
verði að vera svo bændur viti að
hverju þeir ganga. Ekki sé hægt
að taka ákvörðun um fyrirkomu-
lag fyrir hvern markað með þeirri
óvissu sem því fylgir. Áfram verður
lögð þung áhersla á að hámark sé
á kvótaverði.“
Heildargreiðslumark mjólkur
að verðmæti 28 milljarðar
Fjöldi mjólkurframleiðenda á
Íslandi er 551 og ráða þeir yfir
greiðslumark sem nemur 145 millj
ónum lítra á árinu 2020. Miðað
við lítraverð á síðasta uppboði má
segja að heildarverðmæti þessa
greiðslumarks sé rúmlega 28 millj
arðar króna.
Mjólkurframleiðslan á árinu
2019 var meiri en greiðslumark
segir til um, eða 151,8 milljónir
lítra, og nýtur umframframleiðslan
ekki stuðnings í kerfinu.
Sala á mjólk á árinu 2019 nam
síðan 147 milljón lítrum samkvæmt
tölum Landssambands kúabænda.
Framleiddu 4.826 tonn
af kjöti í fyrra
Kúabændur framleiða umtals
vert af kjöti og nam nautakjöts
framleiðslan á árinu 2019 4.826
tonnum. Fór það langt í að seljast
upp, en salan um síðustu áramót
var orðin 4.818 tonn. /HKr.
Bændur að skila inn tilboðum um kaup og sölu á mjólkurkvóta sem fara á
á næsta markað með greiðslumark í fyrir 10 ágúst.
www.kofaroghus.is - sími 553 1545
339.000 kr.
Tilboðsverð
BREKKA 34 - 9 fm
518.000 kr.
Tilboðsverð
STAPI - 14,98 fm
389.000 kr.
Tilboðsverð
NAUST - 14,44 fm
34 mm
34 mm44 mm
Ítarlegar upplýsingar og teikningar ásamt ýmsum öðrum fróðleik
má finna á vef okkar
VORTILBOÐ Á GARÐHÚSUM!
Níu veitingastöðum veitt viðurkenning Icelandic Lamb
Fulltrúar veitingastaðanna sem tóku við viðurkenningunni Icelandic Lamb Award of Excellence, ásamt Elizu Reid forsetafrú.