Bændablaðið - 04.06.2020, Page 7
Bændablaðið | Fimmtudagur 4. júní 2020 7
Sigurður Rúnar Friðjónsson hóf fyrst störf
hjá Mjólkursamlaginu í Búðardal árið 1964,
þá 13 ára gamall, við framleiðslu á kaseini
sem sumarstarfsmaður og komst á samning
þar 1967.
Eftir nám í Dalum mejeriskole, þaðan sem
hann útskrifaðist sem mjólkurtæknifræðingur
árið 1971, starfaði hann við framleiðslu, vöru-
þróun og verkstjórn hjá Mjólkursamsölunni
í Reykjavík til 1977. Þá tók hann við starfi
mjólkurbústjóra hjá Mjólkursamlaginu í
Búðardal. Þar starfaði hann til 2006 auk
þess sem hann tók þótt í sameiningum í
mjólkuriðnaðinum. Þannig var hann bústjóri
Mjólkursamlags Vestur-Barðstrendinga
1993–1999, MS Hvammstanga 1999–2002
og MS Ísafjarðar september 2002 , til 31. des-
ember 2006. Meðfram þessum störfum var
hann einnig oddviti Dalabyggðar 1986–1998
og varaþingmaður fyrir Sjálfstæðisflokkinn
1991–1995.
Sigurður fluttist svo til Akureyrar árið
2007 þar sem hann tók við sem mjólkur-
bústjóri á Akureyri og
Egilsstöðum. Árið 2012, eftir 30 ára störf sem
farsæll mjólkurbústjóri, færði hann sig yfir í
vöruþróun hjá Mjólkursamsölunni í Reykjavík
þar sem hann starfaði til 2020.
Sigurður hefur á starfsævi sinni komið
nálægt vöruþróun af mörgum af helstu mjólk-
urvörum Íslendinga, þar á meðal Kókómjólk,
sýrðan rjóma, mygluostaframleiðslu á borð
við Brie og Dalayrju og LGG.
Sigurður hefur margoft komið við sögu
í umfjöllun fjölmiðla. Sem dæmi var í
Morgunblaðinu þann 7. júlí 1984 mikil grein
um 20 ára afmæli Mjólkursamlags Búðardals
þar sem Sigurður var við stjórnvölinn.
Í Tímanum 28. október 1988 var greint frá
opnun Ostabúðarinnar í Kringlunni sem rekin
var af Osta- og smjörsölunni sf.
Í forsíðufrétt Bændablaðsins 19. maí 1998
er greint frá „nýja mjólkurdrykknum LGG+“
sem hafði þá slegið í gegn hjá neytendum og er
enn í framleiðslu. Mjólkursamlagið í Búðardal
framleiddi drykkinn og var eftirspurn meiri en
svo að það tækist að anna henni.
Í Morgunblaðinu þann 8. febrúar 1997
var greint frá því er íslenskir sauðaostar frá
Mjólkursamlaginu í Búðardal voru settir á
markað.
Í Bændablaðinu 10. maí 2005 var greint frá
sameiningu MS og Mjólkurbús Flóamanna,
MBF, þar sem Sigurður var einn af lykilmönn-
um í sameinuðu félagi. Þannig hefur Sigurður
víða komið við sögu við þróun íslensks
mjólkuriðnaðar á sínum langa starfsferli.
/SGM/HKr.
LÍF&STARF
Í síðasta þætti birti ég ófeðraða vísu ættaða úr Svarfaðardal. Margir vissu þar betur en ég, og vissu gjör af höf-
undi. Vísuna orti nýkvæntur maður til konu
sinnar að morgni brúðkaupsnætur, yfir-
fullur af þakklæti. Vísuna skráði ég þannig:
Drottinn gefi þér góðan dag
og gleðilegan viðskilnað,
sóma vafin silkihlín
Sigurbjörg, elsku konan mín.
Tilskrif fékk ég bæöi frá Halldóri bónda í
Brimnesi og einnig Vigni Sveinssyni, sem
vissu höfundinn, Jón Sigfússon. Vignir, sem
sjálfur er Svarfdælingur langt um aldir, segir
höfundinn jafnan hafa verið kenndan við
bæ sinn, Skriðukot, og þá ýmist kallaður
Skriðukotslangur eða Jón Skrikkur sem
var stytting á bæjarnafninu. Vignir vissi og
betur rétta gerð vísunnar, sem fellur einnig
betur að þeirri bragfræði sem Jón viðhafði:
Guð gefi þér góðan dag
og gleðilegan viðskilnað,
sóma vafin silkihlín
Sigurbjörg, elsku konan mín.
En færum okkur nú ögn nær í tíma. Egill
Jónasson á Húsavík sendi Snorra bónda
í Geitafelli þessa afmælisvísu:
Veill þó hallist heimurinn á hálu svelli,
heillir allar hylli að elli
heillakarl í Geitafelli.
Heiðrekur Guðmundsson færði góðvini
til afmælis flösku af víni og valdi honum
Silver Fox sem hann vissi í uppáhaldi hjá
honum. Heiðreki bregst ekki bragarlistin
hér frekar en áður:
Margan hefur seggur sá
„silfurrefinn” unnið.
Voru skrefin varla smá
væri á þefinn runnið.
Þónokkrir vinir og vísnaskáld urðu líka til
þess að mæra mig sjálfan, er nýverið náði
ég ellilífeyrisaldri. Misjafnlega hlýlegir í
skeytum, en gekk þó gott til. Þeir bræður
frá Þúfum, Páll Ásgeir Ásgeirsson og Gísli
Ásgeirsson urðu báðir til þess að yrkja til
mín. Páll mágur minn er að vanda frum-
legur og fyndinn:
Eftir því sem aldur vex
Árni töltir glaður veginn,
því hann er eins og Homeblest kex,
helvíti góður báðum megin.
Gísli gerir mér kveðju með öðrum brag.
Hnauð saman braghendu í nafni Sérríðar
Indriðadóttur, sem ku vera lagskona hans
við kveðskap:
Æskublóminn allur hvarf á einni nóttu.
Ellinni ég um það kenni,
Árni er núna gamalmenni.
Sigrún Haraldsdóttir er hollráð að vanda,
og sendi mér þessa góðu vísu:
Ef þig kerla ill og grá
eltir, súr og rellin,
þú skalt henni þjóta frá,
-þetta er fjárans ellin.
Einar Kolbeinsson í Bólstaðarhlíð vill mér
í grunninn vel. Þó ungur sé og eigi nokkuð
langt til elli, þá sér hann kosti í stöðunni:
Þó að komi veiran við
virkilega kaunin,
bjarga fylli í belg og kvið
blessuð ellilaunin.
Pétur læknir Pétursson orti hlýlega til
mín, og sá skálda hér að ofan sem gjör-
þekkir líkamlegt og andlegt ástand mitt,
og þekkir ellina á eigin skinni:
Haldi þrótti hugsun snör
og höndin virk.
Lengi endist æskufjör
á ellistyrk.
Umsjón:
Árni Geirhjörtur Jónsson
kotabyggð1@gmail.com
251MÆLT AF
MUNNI FRAM
Sigurður kvaddur eftir 53 ára starf hjá MS. Talið frá vinstri: Björn S. Gunnarsson, vöruþróunarstjóri MS, Sigurður Rúnar og svo Pálmi Vilhjálms-
son, aðstoðarforstjóri MS. Mynd / MS
Sigurður Rúnar Friðjónsson mjólkurverkfræðingur
lætur af störfum eftir 53 ár hjá Mjólkursamsölunni
Ari Edward, forstjóri Mjólkursamsölunnar, og
Sigurður Rúnar Friðjónsson.