Bændablaðið - 04.06.2020, Page 35
Bændablaðið | Fimmtudagur 4. júní 2020 35
Mótorar og varahlutir á lager
Hröð og góð þjónusta
Dreifingaraðili BRIGGS & STRATTON
á ÍSLANDI
MHG Verslun ehf | Víkurhvarf 8 | 203 Kópavogi
Sími 544-4656 | www.mhg.is
ÍSLAND ER LAND ÞITT
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
STARTARAR í flestar
gerðir dráttarvéla
TÆKI OG VÉLAR
Tökum að okkur að fella og kurla tré
í görðum og sumarbústaðarlöndum
Kurlar allt að 30cm Ø
upplýsingar í síma 8938424
Tökum að okkur að fella og kurla tré í görðum
og sumarbústaðarlöndum.
Upplýsingar í síma 893 8424 og 857 0071
Kurlið er tilvalið í trjábeð og önnur beð til að sporna við arfa og ýmsu
Easy Swing gripaburstar
fyrir velferð dýranna
Í samstarfi við Finneasy í
Finnlandi býður BYKO nú upp
á Easy Swing gripabursta af
ýmsum stærðum án mótora.
Burstarnir henta gripum allt frá
ungum kálfum upp í fullorðin
naut. Burstarnir eru smíðaðir
með mikið álag í huga. Easy
Swing gripaburstarnir eru
auðveldir í uppsetningu og kosta
mun minna en rafmagnsdrifnir
kúaburstar.
Hafðu samband:
bondi@byko.is
byko.is
GRIPABURSTAR
Ákveðin pattstaða hjá ferðaþjónustubændum:
Talsvert af bókunum erlendis
frá sitja fastar í kerfinu
Ferðaþjónustubændur eru ugg
andi yfir komandi sumri; ekki
einungis vegna hruns í komu
erlendra ferðamanna til landsins
heldur einnig vegna ákveðinnar
pattstöðu sem komin er upp
í bókunarkerfum, en talsvert
af bókunum erlendis frá sitja
þar fastar. Þeir hafa þó notað
tímann í samkomubanninu til
að þjappa sér saman með hjálp
fjarfundarbúnaðar til að takast á
við næstu mánuði.
„Já, við höfum stillt saman strengi
varðandi ákveðna þætti stefnumótunar
fyrir sumarið en okkur er ekki
heimilt að samræma verðtilboð eða
slíkt vegna samkeppnis laga,“ segir
Sævar Skaptason, framkvæmdastjóri
Hey Iceland, um stöðu og horfur
ferðaþjónustubænda fyrir sumarið.
„Innanlandsmarkaðurinn þrýstir engu
að síður verði neðar en hefur sést hér
undanfarin ár,“ segir hann.
Erlendar bókanir sitja fastar
„Við erum að glíma við ákveðið
vandamál líka, fyrir utan allt annað,
að það er fullt af bókunum inni í
bókunarkerfunum hjá okkur erlendis
frá sem enginn veit hvað verður um.
Það er í raun í algjörri óvissu hvað
verður um þessar bókanir. Það eru
auðvitað allir að vonast til að það
verði eitthvað af flugi til landsins og
þegar það liggur fyrir þá getur fólk
farið að taka til í þessum bókunum.
Þangað til er ákveðnum vandkvæðum
bundið sums staðar að fara í markvisst
markaðsátak fyrir Íslendingana þar
sem bókanir á gistingunni eru þegar
inni. Að þessu leytinu erum við í
ákveðinni pattstöðu, þangað til það
skýrist hversu margt af þessu fólki
– sem er með pantanir í kerfinu fyrir
mitt sumar og seinni part sumars –
skilar sér.
Okkar vandi er því sá að annars
vegar erum við með Íslendinga sem
vilja ferðast, en vilja ekki borga
of hátt verð fyrir ferðaþjónustuna,
og svo erum við með bókanir frá
erlendum ferðamönnum inni í kerfinu
sem ekki er ljóst hvað verður um.
Íslendingarnir eru nú þegar komnir
af stað og um síðustu helgi var víða
uppbókað.
Smám saman greiðist auðvitað
úr þessu en það er alveg ljóst að
þetta verður mjög erfitt ár fyrir
ferðaþjónustuaðila. Við hér á
skrifstofunni erum búin að fella
niður, endurgreiða og hreinsa út allar
bókanir úr kerfinu fram á mitt sumar.
Við bjóðum þá annaðhvort upp á að
endurgreiða hreinlega keypta ferð
eða að færa hana til. Það er einmitt
gleðilegt að segja frá því að margir
þiggja það að færa ferðina fram á
haustið eða jafnvel til næsta árs. Þetta
hefur í sjálfu sér gengið ágætlega.
Erlent ferðafólk hefur alveg áfram
trú á áfangastaðnum,“ segir Sævar
og játar því að ferðaþjónustubændur
vilji draga sem lengst að afskrifa
ferðamöguleikann hingað og
endurgreiða ferðirnar.
Ástandið hefur
þjappað fólki saman
„Félag ferðaþjónustubænda (FFB)
er auðvitað okkar fagfélag og
félagarnir innan þess hafa átt í
mjög góðu samstarfi. Við komum
reglulega saman á fjarfundum til
að leggja á ráðin – auk þess sem
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
hefur komið til liðs við okkur með
gott innlegg. Það er þrátt fyrir allt
góður hugur í fólkinu í þessari
grein og ástandið hefur þjappað því
saman,“ segir Sævar.
Að sögn Sævars eru nú þeir í
meirihluta innan FFB sem sinna
eingöngu ferðaþjónustu. „Ætli þeir
félagar séu ekki um 65 prósent í dag
og þá restin sem er með einhvers
konar búskap samhliða. Ég er nú
búinn að vera nokkuð lengi í þessu,
eða frá 1998, og þróunin hefur verið
í þá átt síðustu ár að fleiri hafa flutt
sig alveg yfir í ferðaþjónustuna úr
búskapnum, auðvitað með þessari
sprengingu sem varð upp úr
fjármálahruninu. Að því leytinu til
er þetta líka erfitt ástand fyrir okkar
félaga,“ útskýrir Sævar og bætir við
að líklega sé FFB með um 60 prósent
af gistirými landsbyggðarinnar á
sínum snærum.
Um 90 prósent erlendir ferðamenn
Að sögn Sævars eru vel flestir
félagsmanna hans að glíma við þetta
vandamál með erlendu bókanirnar.
„Síðustu árin hafa erlendir ferðamenn
verið um 90 prósent af gestafjölda
gististaðanna,“ segir hann.
„Til að byrja með, þegar ljóst
var að það stefndi í alvarlegt ástand
vegna farsóttarinnar, þá var afar þungt
hljóðið í mörgum okkar félaga. Svo
hefur það breyst og við heyrum af
færri og færri stöðum sem segjast
ekki ætla að opna aftur. Ég er ekki
alveg með það á hreinu hvað það lítur
út fyrir að margir muni gefast upp, en
margir hafa verið að draga það frekar
að opna sem væru annars búnir að
því í maí. Ég held að flest allir muni
opna, en helsta vandamálið er með
þessa stóru mannfreku staði. Það er
mun erfiðara fyrir þá að takast á við
ástandið en litlu staðina sem hafa
meiri sveigjanleika.“ /smh
Sævar Skaptason, framkvæmdastjóri Hey Iceland. Mynd / smh
Bændablaðið
Smáauglýsingar 56-30-300