Bændablaðið - 04.06.2020, Qupperneq 35

Bændablaðið - 04.06.2020, Qupperneq 35
Bændablaðið | Fimmtudagur 4. júní 2020 35 Mótorar og varahlutir á lager Hröð og góð þjónusta Dreifingaraðili BRIGGS & STRATTON á ÍSLANDI MHG Verslun ehf | Víkurhvarf 8 | 203 Kópavogi Sími 544-4656 | www.mhg.is ÍSLAND ER LAND ÞITT Lely Center Ísland Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600 STARTARAR í flestar gerðir dráttarvéla TÆKI OG VÉLAR Tökum að okkur að fella og kurla tré í görðum og sumarbústaðarlöndum Kurlar allt að 30cm Ø upplýsingar í síma 8938424 Tökum að okkur að fella og kurla tré í görðum og sumarbústaðarlöndum. Upplýsingar í síma 893 8424 og 857 0071 Kurlið er tilvalið í trjábeð og önnur beð til að sporna við arfa og ýmsu Easy Swing gripaburstar fyrir velferð dýranna Í samstarfi við Finneasy í Finnlandi býður BYKO nú upp á Easy Swing gripabursta af ýmsum stærðum án mótora. Burstarnir henta gripum allt frá ungum kálfum upp í fullorðin naut. Burstarnir eru smíðaðir með mikið álag í huga. Easy Swing gripaburstarnir eru auðveldir í uppsetningu og kosta mun minna en rafmagnsdrifnir kúaburstar. Hafðu samband: bondi@byko.is byko.is GRIPABURSTAR Ákveðin pattstaða hjá ferðaþjónustubændum: Talsvert af bókunum erlendis frá sitja fastar í kerfinu Ferðaþjónustubændur eru ugg­ andi yfir komandi sumri; ekki einungis vegna hruns í komu erlendra ferðamanna til landsins heldur einnig vegna ákveðinnar pattstöðu sem komin er upp í bókunarkerfum, en talsvert af bókunum erlendis frá sitja þar fastar. Þeir hafa þó notað tímann í samkomubanninu til að þjappa sér saman með hjálp fjarfundarbúnaðar til að takast á við næstu mánuði. „Já, við höfum stillt saman strengi varðandi ákveðna þætti stefnumótunar fyrir sumarið en okkur er ekki heimilt að samræma verðtilboð eða slíkt vegna samkeppnis laga,“ segir Sævar Skaptason, framkvæmdastjóri Hey Iceland, um stöðu og horfur ferðaþjónustubænda fyrir sumarið. „Innanlandsmarkaðurinn þrýstir engu að síður verði neðar en hefur sést hér undanfarin ár,“ segir hann. Erlendar bókanir sitja fastar „Við erum að glíma við ákveðið vandamál líka, fyrir utan allt annað, að það er fullt af bókunum inni í bókunarkerfunum hjá okkur erlendis frá sem enginn veit hvað verður um. Það er í raun í algjörri óvissu hvað verður um þessar bókanir. Það eru auðvitað allir að vonast til að það verði eitthvað af flugi til landsins og þegar það liggur fyrir þá getur fólk farið að taka til í þessum bókunum. Þangað til er ákveðnum vandkvæðum bundið sums staðar að fara í markvisst markaðsátak fyrir Íslendingana þar sem bókanir á gistingunni eru þegar inni. Að þessu leytinu erum við í ákveðinni pattstöðu, þangað til það skýrist hversu margt af þessu fólki – sem er með pantanir í kerfinu fyrir mitt sumar og seinni part sumars – skilar sér. Okkar vandi er því sá að annars vegar erum við með Íslendinga sem vilja ferðast, en vilja ekki borga of hátt verð fyrir ferðaþjónustuna, og svo erum við með bókanir frá erlendum ferðamönnum inni í kerfinu sem ekki er ljóst hvað verður um. Íslendingarnir eru nú þegar komnir af stað og um síðustu helgi var víða uppbókað. Smám saman greiðist auðvitað úr þessu en það er alveg ljóst að þetta verður mjög erfitt ár fyrir ferðaþjónustuaðila. Við hér á skrifstofunni erum búin að fella niður, endurgreiða og hreinsa út allar bókanir úr kerfinu fram á mitt sumar. Við bjóðum þá annaðhvort upp á að endurgreiða hreinlega keypta ferð eða að færa hana til. Það er einmitt gleðilegt að segja frá því að margir þiggja það að færa ferðina fram á haustið eða jafnvel til næsta árs. Þetta hefur í sjálfu sér gengið ágætlega. Erlent ferðafólk hefur alveg áfram trú á áfangastaðnum,“ segir Sævar og játar því að ferðaþjónustubændur vilji draga sem lengst að afskrifa ferðamöguleikann hingað og endurgreiða ferðirnar. Ástandið hefur þjappað fólki saman „Félag ferðaþjónustubænda (FFB) er auðvitað okkar fagfélag og félagarnir innan þess hafa átt í mjög góðu samstarfi. Við komum reglulega saman á fjarfundum til að leggja á ráðin – auk þess sem Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins hefur komið til liðs við okkur með gott innlegg. Það er þrátt fyrir allt góður hugur í fólkinu í þessari grein og ástandið hefur þjappað því saman,“ segir Sævar. Að sögn Sævars eru nú þeir í meirihluta innan FFB sem sinna eingöngu ferðaþjónustu. „Ætli þeir félagar séu ekki um 65 prósent í dag og þá restin sem er með einhvers konar búskap samhliða. Ég er nú búinn að vera nokkuð lengi í þessu, eða frá 1998, og þróunin hefur verið í þá átt síðustu ár að fleiri hafa flutt sig alveg yfir í ferðaþjónustuna úr búskapnum, auðvitað með þessari sprengingu sem varð upp úr fjármálahruninu. Að því leytinu til er þetta líka erfitt ástand fyrir okkar félaga,“ útskýrir Sævar og bætir við að líklega sé FFB með um 60 prósent af gistirými landsbyggðarinnar á sínum snærum. Um 90 prósent erlendir ferðamenn Að sögn Sævars eru vel flestir félagsmanna hans að glíma við þetta vandamál með erlendu bókanirnar. „Síðustu árin hafa erlendir ferðamenn verið um 90 prósent af gestafjölda gististaðanna,“ segir hann. „Til að byrja með, þegar ljóst var að það stefndi í alvarlegt ástand vegna farsóttarinnar, þá var afar þungt hljóðið í mörgum okkar félaga. Svo hefur það breyst og við heyrum af færri og færri stöðum sem segjast ekki ætla að opna aftur. Ég er ekki alveg með það á hreinu hvað það lítur út fyrir að margir muni gefast upp, en margir hafa verið að draga það frekar að opna sem væru annars búnir að því í maí. Ég held að flest allir muni opna, en helsta vandamálið er með þessa stóru mannfreku staði. Það er mun erfiðara fyrir þá að takast á við ástandið en litlu staðina sem hafa meiri sveigjanleika.“ /smh Sævar Skaptason, framkvæmdastjóri Hey Iceland. Mynd / smh Bændablaðið Smáauglýsingar 56-30-300
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.