Bændablaðið - 04.06.2020, Blaðsíða 44
Bændablaðið | Fimmtudagur 4. júní 202044
SKÓGRÆKT&LANDGRÆÐSLA
Vinsældir lakkríss eru miklar
og hans neytt í miklu magni um
allan heim sem sælgæti eða sem
íblöndunarefni í margs konar
framleiðslu. Lakkrís eins og við
þekkjum hann í dag á lítið skylt
við lakkrísinn sem var uppruna-
lega framleiddur úr sætrót fyrr
á tímum.
Indland er það land í heiminum
sem ræktar mest af lakkrís- eða
sætrót og flytur út mest af hrein-
um lakkrís. Þar á eftir koma Íran,
Ítalía, Afganistan, Kína, Pakistan,
Írak, Aserbaídsjan, Úsbekistan,
Túkmenistan og Tyrkland.
Samkvæmt upplýsingum á vef
Hagstofu Íslands voru flutt inn rúm
22,2 tonn af lakkrískjarna í stærri en
4 kílóa eða stærri blokkum og fljót-
andi lakkrískjarna eða lakkrísdufti
í 3 lítra eða stærri umbúðum árið
2019. Mestur var innflutningurinn
frá Íran 10 tonn og frá Þýskalandi
tæp 3 tonn. Auk þess voru flutt inn
478 kíló af því sem kallast aðrir safar
og kjarnar úr lakkrísplöntum, þar af
368 kíló frá Þýskalandi.
Ættkvíslin Glycyrrhiza
og tegundin glabra
Um 20 tegundir teljast til ætt-
kvíslarinnar Glycyrrhisza sem er af
varablómaætt, Fabaceae og finnast
í Evrópu, Asíu, Ástralíu, Norður- og
Suður-Ameríku.
Þekktust þessara tegunda er
G. glabra sem margir þekkja sem
plöntuna sem lakkrís er upprunalega
unninn úr.
Sætrót er fjölær runni sem
nær rúmlega eins metra hæð.
Ofanjarðarhlutinn vex upp af
trékenndri og greindri, djúpri og
ilmsterkri stólparót. Laufblöðin
samsett með 9 til 17 egg- eða
lensulaga smáblöðum sem eru 7 til
15 sentímetrar að lengd. Smáblöðin
1,5 til 4 sentímetrar að lengd og 0,8
til 2 að breidd. Blómin um einn
sentímetri að lengd, fjólublá yfir
í að vera bláhvít, nokkur saman í
axi. Aldinið ílangur, flatur og eilítið
hærður belgur, 2 til 3 sentímetrar að
lengd með 2 til 8 fræjum.
Uppruni og útbreiðsla
G. glabra er upprunnin í suðvestur-
hluta Asíu, austanverðri Evrópu og
löndunum við Miðjarðarhafið, allt
frá Spáni og austur að norðvestur-
hluta Kína. Í dag er tegundinni skipt,
af sumum, í þrjú afbrigði. Spænskt
og ítalskt G. glabra var. typical, rúss-
nesk G. glabra var. glandulifera og
það sem finnst í fyrrum Persíu og í
Tyrklandi G. glabra var. violacea.
Tegundin G. uralensis finnst í
Mið-Asíu, Norðvestur- og Austur-
Kína en tegundin G. inflata er
einungis þekkt villt í Xinjiang
Uygur-héraði í norðaustanverðu
Kína. Allar þrjár tegundir eru not-
aðar til lakkrísgerðar í Kína.
Nafnaspeki
Enska orðið liquorice kemur úr
gamalli frönsku licoresse en mun
upprunalega vera komið úr grísku
γλυκόριζα, glykorrhiza, sem þýðir
sætrót, γλυκύς, glukus, sæt og ρίζα,
rhiza, sem þýðir rót.
Sætrót, lakkrísrót og lakkrís eiga
sér mörg og ólík heiti í löndum
heims. Á afríksku kallast plantan
drop en irq as-sus, irqu as-sus, irqu
al-sus, sous og sus á arabísku og gān
cǎo, gam chou, guangguo–gancao,
kan tsau, xi-bei og yang gan cao á
kínversku. Í Albaníu segja menn
gliciriza e shogët og glicirizë en
shush og shush kireah á hebresku
og Japanir nankin-kanzō, rikorisu,
kanzō og kanzo.
Þjóðverjar kalla plöntuna og
afurð hennar gemeines süssholz,
kahles süssholz, lacrisse, lakritz,
lakritzeholz, lakritzenwurzel,
lakritzpflanze, lakrizenwurzel,
spanisches süssholz, süsscholz og
süsswurz.
Fjöld indverskra heita eru of
mörg til að telja upp hér en þar á
meðal eru jesthimadhu, mauddh,
etthimadhiram, iradimadhuram,
athimadhuram, yastimadhu, og asl-
us-sus.
Svíar segja äkta lakrits, lakrits,
lakritsrot, lakritsväxt og sötlakrits,
Norðmenn lakrisplante og lakrisrot
og Danir glat lakrids, lakrids, lakrids
rod, lakridsrod og lakridsplante.
Heitið lakkrís er þekkt í íslensku
frá 18. öld og er komið úr dönsku.
Einnig þekkjast heiti eins og lakkrís-
rót, apótekaralakkrís og sætrót sem
er nafnið sem ég hef valið að nota
um plöntuna.
Löng nytjasaga
Sætrót á sér langa nytjasögu og var
henni, vegna öflugs rótarkerfisins,
plantað við bakka fljótanna Tígris
og Efrat í Mesópótamíu, Ebró á
Spáni og Pó á Ítalíu til að draga
úr skemmdum vegna flóða fyrr á
tímum.
Plantan er nefnd í fornum rituð-
um heimildum frá Indlandi, Babýlon
og Assyríu. Sætrót var meðal þess
sem fannst við fornleifarannsókn-
HELSTU NYTJAJURTIR HEIMSINS
Sætrót er 50 sinnum sætari en sykur
Vilmundur Hansen
vilmundur@bondi.is
Sælgætið sem selt er sem lakkrís í dag á lítið skylt við sætrót sem lakkrís
var upphaflega unninn úr.
Sætviðarrót. Efni í rótinni er 50 sinnum sætara en sykur af sömu þyngd.
Á Spáni, Ítalíu og Frakklandi er hægt að fá ferska lakkrísrót hjá götusölum
sem grafa ræturnar upp, skola þær og selja til að draga úr andremmu.
Lakkríste er vinsæll götudrykkur í Egyptalandi.
Þurrkað lakkrísrótarduft.