Bændablaðið - 04.06.2020, Page 48
Bændablaðið | Fimmtudagur 4. júní 202048
Sífellt fleiri eru að átta sig á því að
aðgerða er þörf í loftslagsmálum.
Það þarf að minnka kolefnislosun
og auka kolefnisbindingu. Það er
ekki nóg að gera annaðhvort, hér
þarf að vinna á mörgum vígstöðv-
um á sama tíma. Flestir geta breytt
einhverju í hegðun sinni varðandi
innkaup, samgöngur o.fl., losað
minna og/eða bundið meira, til
dæmis með gróðri. Margir eiga,
eða hafa umráð yfir landsvæðum
sem eru lítið nýtt, uppskerulítil,
eða jafnvel að blása upp.
Gróðurfarið sem sést á mynd 1
er forstig að algerri auðn og verði
ekkert að gert má ætla að þarna verði
hvorki gróður né jarðvegur í náinni
framtíð. Um aðferðir til úrbóta má
lengi deila, en við höfum hvorki
mikið fjármagn né tíma, svo að fljót-
virkar og ódýrar aðgerðir verða að
sitja fyrir.
Plöntuval
Ljóst er, að þegar landnámsmenn
hófu búsetu hér á landi náði gróður
og jarðvegsþekja mun lengra inn á
hálendið, þar sem nú er auðn. Þó
að þær neikvæðu breytingar séu
ekki eingöngu af mannavöldum,
þá stöndum við í mikilli skuld við
landið. Að auka útbreiðslu birkis er
gott mál, en ekki er ráðlegt að reyna
að endurheimta nákvæmlega það
gróðurfar sem var hér við landnám.
Það er einfaldlega ekki raunhæft
vegna þess að nýjar tegundir ber-
ast hingað, ná útbreiðslu og aðrar
gefa eftir. Náttúran er síbreytileg. Þá
kemur upp spurningin hvort er ekki
betra að miða við forsögulegan
tíma þegar hér uxu afkastameiri
trjátegundir sem ekki lifa hér nú,
eða eru nýlega innfluttar.
Val á plöntum til skógræktar og
landgræðslu er vandaverk og þarf
að vera í stöðugri endurskoðun
miðað við vöxt hverrar tegund-
ar. Það fer líka eftir markmiðum
ræktunarfólks, aðstæðum, kostn-
aði, kolefnisbindingu, o.fl. Taka
ætti tillit til þess hvaða tegundir
hafa þrifist best á hverjum stað, en
einnig þarf að prófa nýjar tegundir
og samvinnu tegunda. Aðalatriði
er að nota plöntutegundir og
aðferðir sem skila góðum árangri
við að binda kolefni, skapa verð-
mæti fyrir ræktunarfólk og mynda
jafnframt gróður og jarðvegsþekju
í stað þess sem tapast hefur.
Sé tekið mið af legu Íslands,
ættu hér að vaxa miklir barrskógar
og væri hér eflaust fjölbreyttari
gróður, ef landið væri ekki svona
langt frá meginlöndunum í austri
og vestri. Við ættum þess vegna
að varast „þjóðernishreinsanir“
hvað varðar plöntuval. Á fyrri
hlýviðrisskeiðum hafa vaxið hér
plöntur og trjátegundir sem nú
lifa ekki á landinu, en finnast í
jarðlögum. En eru þær ekki líka
íslenskar, jafnvel íslenskari en þær
sem vaxa hér nú? Varhugavert er
að láta fegurðarsjónarmið ráða
plöntuvali því að það er afstætt,
það sem einum finnst fallegt,
finnst öðrum ljótt. Hér þarf að
velja þær plöntur sem vaxa, binda
kolefni, geta fjölgað sér sjálfar og
gera gagn í umhverfi sínu.
Mikil kolefnislosun á sér
stað úr framræstu landi. Séu slík
svæði lítið nýtt er aðallega um
þrjá kosti að velja. Í fyrsta lagi
að gera ekkert til úrbóta, sem
er ekki góður kostur og þýðir
áframhaldandi losun. Í öðru lagi
að hækka jarðvatnsstöðu til að
LANDSSAMTÖK SKÓGAREIGENDA
hamlar hjálpinni
Mynd 1 er tekin á landsvæði sem hefur verið friðað fyrir beit frá árinu 2002. Þarna var ekki að sjá jákvæðar breytingar
þrátt fyrir 18 ára friðun. Hér er „íslenski staðargróðurinn“ að hopa fyrir eyðingaröflunum, sem er ekki viðunandi
ástand. Þarna er t.d. þjóðarblómið í vanda sem það ræður ekki við. Það þarf verulega aðstoð til að samfelld gróð-
urþekja myndist.
Mynd 2 var tekin á Hólasandi þar sem nánast allur gróður og jarðvegur
var horfinn. Þarna sést hvernig lerki getur vaxið upp úr ónýtu landi og
jafnvel skapað verðmæti fyrir næstu kynslóðir. Er hægt að horfa framhjá
svona tækifærum? Svæðið er norðan Mývatnssveitar, í töluverðri hæð yfir
sjávarmáli.
Mynd 3. Hjá vasahnífnum fremst á myndinni má sjá birkiplöntu sem er
jafngömul plöntunum í lúpínubreiðunni hjá bílnum. Stærðarmunurinn er svo
margfaldur að það er ekki hægt annað en nýta sér þessa aðferð.
Mynd 4. Þarna er 16 ára skjólbelti þar sem flestar plöntur eru illa farnar af
kali, nema þar sem lúpína er þeim til hjálpar, þar vaxa víðiplönturnar eins
og ekkert hafi í skorist. Er ekki rétt að nýta svona aðstoð við ræktunina?
Á mynd 5 sést hluti af þeim 250 hekturum sem við þurfum að græða upp af okkar landareign skv. gæðastýringu
í sauðfjárrækt. Þetta markmið næst augljóslega ekki nema með því að nota lúpínu. Tilbúinn áburður og grasfræ
duga ekki. Á þá aðferð er komin margra ára reynsla. Rofabörðin sýna að mikill jarðvegur er farinn.
Mynd 6 er tekin í minna en 100 metra hæð yfir sjávarmáli. Það er því ekki
hægt að segja að gróðurfarið eigi að vera svona á þessum stað. En bara
af því að við erum vön að sjá þetta eins og það er, sættum við okkur við
ástandið. Sem er auðvitað neyðarástand og landsvæði á borð við þetta þyrftu
að vera í gjörgæslu. Hér gæti lífrænn úrgangur virkað samhliða sáningum.
Sjálfgræðsla er útilokuð, þó að beit væri aflétt.
Björn Halldórsson við skógræktina í Valþjófsdal.