Bændablaðið - 04.06.2020, Qupperneq 54
Bændablaðið | Fimmtudagur 4. júní 202054
Eftir að hætt var að framleiða
Land Rover Defender, þenn-
an hefðbundna jeppa sem allir
Íslendingar kannast við og eiga
minningar um, kom eyða og
spurningarmerki um framtíð
Land Rover. Hvort söngur Helga
Björns og Reiðmanna vindanna
um „Land Rover-ferðina“ hafi
haft áhrif eða flýtt fyrir hönnun
á nýjum Defender skal ósagt,
en bíllinn er kominn og verður
frumsýndur laugardaginn 6. júní
hjá BL.
Fékk bílinn lánaðan í smástund
Eftir stutta og snarpa samningalotu
við Karl, sölustjóra Land Rover
bíla í BL, náði ég að fá örstuttan
prufurúnt á bílnum á fáförnum
vegum í nágrenni Reykjavíkur.
Veðrið síðastliðinn föstudags-
morgun var ekki til að hrópa húrra
fyrir gagnvart myndatöku, en varð
að duga.
Eins og um var samið var farið
eins stutt og hægt var, en þessi stutti
akstur var nóg til þess að finna að
þarna er bíll sem lofar góðu, mun
stærri og rýmri að innan en ég hafði
gert mér í huga, krafturinn fínn,
fjöðrunin á malarveginum sem ég
ók át holurnar.
Defender greinilega
hannaður frá grunni, ekkert
sem minnir á þann gamla
Eftir að hafa gengið í kringum bíl-
inn, skoðað hann innan og utan, sýn-
ist mér þessi bíll stefna í að vera
draumabíll þeirra sem ætla að ferð-
ast innanlands í sumar, kemur með
festingabogum á toppinn. Fínt fyrir
það sem kallað er „tengdamömmu-
box“. Þá er krókur til að draga hjól-
hýsið, fullbúið varadekk og mikið
pláss fyrir aftan aftursætin.
Greinilegt að ég þarf að prófa
þennan bíl aftur og betur. Þar sem
að ekki er búið að frumsýna bílinn
vantar mig töluvert af tæknilegum
upplýsingum um bílinn. Þrátt fyrir
að ég telji mig kláran að fá menn
til að tala af sér tókst mér ekki að
fá Karl sölustjóra til að missa út úr
sér verðið á bílnum (verð að bíða
eftir frumsýningardeginum, næst-
komandi laugardag 6. júní).
VÉLABÁSINN
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
Fyrir nokkru síðan sá ég inni í
sýningarsal hjá Kletti Multi One
liðlétting sem eingöngu gengur
fyrir rafmagni. Multi One lið-
léttingar sem ég hef séð hingað til
hafa verið með dísilvél, en margir
nota þessar smávélar inni á fóð-
urgöngum og jafnvel víðar inni
þar sem skepnur eru.
Dísilvélum fylgir mengun og við
framleiðslu á kjöti og mjólkurvöru
ætti í alla staði að vera umhverfi-
svænna fyrir búskapinn að nota
rafmagnsknúinn liðlétting.
Fékk aðeins að prófa
Vinnu minnar vegna átti ég leið í
næsta hús við Klett og hringdi í
Ívar Atlam sölumann á Multi One
vélunum í Kletti, og spurði hann
hvort hann gæti ekki komið með
vélina út svo ég gæti fengið að sjá
hana vinna. Ívar kom með vélina
og tók af fyrsta vörubrettið, en svo
var það mitt að klára. Ósköp var
ég klaufskur við þetta þar sem að
liðstýringin var akkúrat öfug miðað
við það sem ég hef prófað.
Næsta bretti var betra og ég þarf
ekkert að skammast mín fyrir það
þriðja, en eftir að ég hafði lokið
affermingu prófaði ég eins margar
stillingar í ímyndaðri vinnu og ég
gat. Niðurstaðan var sú að þetta
tæki getur unnið nokkuð hratt, lyft-
igeta fín, hávaði sáralítill. Hægt er
að keyra að næsta rafmagnstengli
til að hlaða vélina þar sem vélin er
með innbyggða hleðslustöð.
Helstu mál, þyngd og geta
Lyftigeta er að hámarki 1800 kg.
(þá með því að setja þyngdarklossa
aftan á vélina). H-laga skotbóma
með sjálfvirka afréttingu. Mesta
lyftihæð 2,90 m.
Drifbúnaður er vökvadrifinn
4X4 og kemst vélin í 12 km á
klukkustund, spólvörn, driflæs-
ingar.
Vökvadæla dælir 35 lítrum á
mínútu, togkraftur er 2050 kg.
Hjólbarðar eru á 12 tommu
felgum, heildarþyngd er 1.565 kg.
Breidd 128 cm.
Verðið á vélinni er frá 4.500.000,
nánari upplýsingar er hægt að nálgast
á vefsíðunni www.klettur.is.
Multi ONe EZ7 rafmagnsliðléttingur. Myndir / HLJ Öflugir rafgeymar. Þægilegur stjórnbúnaður.
Lyftigeta er að hámarki 1800 kg.
Land Rover Defender Verður frumsýndurlaugardaginn 6. júní
Á myndum virkar Defender minni en hann er í raun. Myndir / HLJ
Fullbúið varadekk og afturljósin sjást mjög vel.
Allt nýtt fyrir manni og ótrúlega mikið pláss.
Bæði þegar
maður bakkar
og fyrstu
metra áfram
er myndavélin
að sýna næsta
nágrenni vel.