Íþróttablaðið - 01.01.1979, Blaðsíða 7
úrslitum sem fengust á heims-
meistarakeppninni í Danmörku.
Það lá því í hlutarins eðli að við
ramman reip yrði að draga í
starfi.
Vitað var, að félögin sem
höfðu „fórnað“ tveimur árum
fyrir landsliðið myndu á engan
hátt sætta sig við að leikmenn
yrðu eins langan tíma við lands-
liðsæfingar og áður. Búast mátti
við harðri gagnrýni frá íþrótta-
fréttariturum þar sem þeir töldu
sig hafa þagað of lengi yfir þeim
„ranga“ undirbúningi sem
landsliðið fékk fyrir heims-
meistarakeppnina að þeirra mati.
Með þessar staðreyndir í huga
hófst starf vetrarins og samið var
um landsleiki vetrarins og lögð
drög að samningum til næstu 2
ára við margar sterkustu hand-
knattleiksþjóðir heims. Það ligg-
ur þó í augum uppi að of seint er
að semja um landsleiki á sama ári
og þeir eru leiknir. Á þann hátt
fást ekki æskielgustu leikdagar og
í þessu sambandi má nefna leik-
ina við erkifjendurna Dani, sem
komu upp á mjög óheppilegum
tíma, þar sem kjarni íslenzka
landsliðsins var að koma frá erf-
iðum Evrópuleikjum beint í
landsleikina. Úrslitin voru því
eins og við mátti búast tvö töp
fylgdu í kjölfarið. í stöðunni
hefði auðvitað verið réttast að
aflýsa leikjunum, en til þess að
H.S.Í. og önnur sérsambönd
þrífist verða að koma inn aurar,
þannig að útilokað var að tala um
að þessir leikir færu ekki fram.
Fjárhagur H.S.Í. eins og flestra
annarra sérsambanda og íþrótta-
félaga stendur mjög höllum fæti
og ef ekkert verður að gert í
þessum málum þá fyrst og fremst
að hálfu hins opinbera er fyrir-
sjáanlegt að leggja verður niður
Hálfdán Helgason sf.
Umb. of lioHdverzlun
^^^^l5rautoitH>lti^^M8493og22510^^
Heitt Jubilee súkkulaði
og súkkulaðivélar
tryggja hámarks gæði.
Einnig
fyrirliggjandi:
Pizzaofnar,
pizzabotnar,
ogannaö
til pizzageröar.
7