Íþróttablaðið - 01.01.1979, Qupperneq 21
liðið í þriðja eða fjórða sinn.
Reynslan verður sem betur fer
allt önnur. Mótið er gífurlega
jafnt, liðin reita stig hvert af
öðru, og það má aldrei slaka
hið minnsta á til þess að ekki
fari illa. Því reynir maður að
búa sig undir leiki af enn meiri
kostgæfni en nokkru sinni
fyrr, og bíður spenntur eftir
leikjunum, sérstaklega ef
maður hefur tapað fyrir við-
komandi liði í næstu umferð á
undan. Það sem mér þykir
ekki síður jákvætt við þetta
fyrirkomulag er það hver þró-
unin hefur orðið í 1. deildinni.
Þar ríkir gífurleg samkeppni
um að komast í 1. deild, og
liðin sem þar leika leggja
mikla áherzlu á að sigra í
deildinni, og fá þar af leiðandi
til sín góða leikmenn og góða
þjálfara. Árangurinn hefur
svo orðið sá þar, að beztu liðin
í 1. deild gefa úrvalsdeildar-
liðunum lítið sem ekkert eftir,
svo sem dæmin sanna.
— Nú hefur farið fremur
lítið fyrir íslenzka landsliðinu í
körfuknattleik að undan-
förnu, — hefur það nægjanleg
verkefni?
— Það er sá þáttur í körfu-
knattleiksstarfinu sem ég er
óánægðastur með, og það
veldur mér raunar áhyggjum
hvað lítið er gert fyrir lands-
liðið. Vitanlega er það eins í
körfuknattleiknum og öðrum
íþróttagreinum, að landsliðið
er rjómi íþróttarinnar, og það
þarf þauðsynlega að sjá því
fyrir verkefnum, ekki sízt til
þess að viðhalda áhuga al-
mennings. Skipulag úrvals-
deildarinnar er þannig að
milli umferða er tveggja vikna
hlé, og hefði því það hlé verið
kjörinn tími til þess að þjálfa
landslilið og halda landsleiki.
Jón í baráttu við nafna sinn
Jörundsson í leik KR og ÍR
Aðstaða til þess að þjálfa
landsliðið er jafnvel betri nú
en nokkru sinni fyrr, þar sem
við höfum hóp erlendra leik-
manna, sem gott væri að
þjálfa landslið með því að
leika á móti. En því miður
hefur ekki tekist að útvega
landsliðinu leiki. Ég held að
það sé búið að ákveða tvo
landsleiki í vetur, og munu
þeir báðir fara fram erlendis. I
vor fer svo fram Evrópu-
keppnin, og þar ættum við að
eiga möguleika á að komast í
B-riðil. Síðast þegar við tókum
þátt í þessari keppni munaði
ekki nema 3 stigum að við
kæmumst í þann riðil, og ekki
er vafi á því, að við eigum nú
betra landslið en við höfðum
þá. En allt um það, ég tel það
mjög slæmt að fá ekki lands-
leiki hér heima í vetur, þar