Íþróttablaðið - 01.01.1979, Qupperneq 23
Skúli
Óskarsson
I hófi íþróttafréttamanna
þar sem Skúli Óskarsson var
sæmdur titlinum „Iþrótta-
maður ársins 1978“ lýsti for-
maður samtakanna, Bjarni
Felixsson, kjöri hans m.a. á
eftirfarandi hátt:
„Það verður vart komið tölu
á öll þau íslandsmet sem Skúli
hefur sett á ferli sínum til
þessa, og þau eiga áreiðanlega
eftir að verða fleiri. Hins vegar
Framhald á bls. 65
Stefnan sett á heims-
meistaratitilinn og met
Skúli Óskarsson, UÍA,
var að þessu sinni valinn
„Lyftingamaður ársins“,
og er það í fyrsta sinn sem
hann hlýtur þann titil.
Glæsileg afrek Skúla í
Evrópumótinu og heims-
meistaramótinu í kraft-
lyftingum á árinu 1978,
færðu honum einnig titil-
inn „íþróttamaður ársins
1978“ og þann fagra
verðlaunagrip sem því
sæmdarheiti fylgir. Er
Skúli jafnframt fyrsti
lyftingamaðurinn sem
kjörinn er „íþróttamaður
ársins“.
Skúli Óskarsson er þrítugur
og er verkamaður að atvinnu.
Hann er fæddur og uppalinn á
Fáskrúðsfirði, og byrjaði að
æfa íþrótt sína þar eystra við
mjög frumstæðar aðstæður.
Árangurinn lét þó ekki á sér
standa, þar sem hann vann
sigur á lyftingamóti sem fram
fór í Reykjavík, aðeins mán-
uði eftir að hann hóf æfingar.
Síðan hefur framaferill Skúla í
lyftingum verið stöðugur og
náði hann hámarki á heims-
meistaramótinu sem fram fór í
Finnlandi s.l. haust. Þar mun-
aði ekki nema hársbreidd að
Skúli setti heimsmet í einni
grein kraftþrautarinnar, hné-
beygjulyftu. Reyndi hann þá
að lyfta 300,5 kg og tókst það.
Tveir dómarar af þremur
dæmdu hins vegar lyftuna
ógilda, þótt erfitt væri að sjá á
hvaða forsendum það var
gert.
23