Íþróttablaðið - 01.01.1979, Page 27
Eina takmarkið er
að bæta árangurinn
— sagði Jóhann Kjartansson, badmintonmaður
Jóhann Kjartansson
Badmintonmaður ársins
er 19 ára gamall og hefur
á síðustu árum skipað sér
í fremstu röð badminton-
manna hér á landi. Jó-
hann, sem er sonur
Kjartans Magnússonar
læknis, sem var kunnur
handknattleiksmaður á
yngri árum, sagði í sam-
tali við íþróttablaðið að
hann hefði verið 8 ára, er
hann fór að fara með
föður sínum á badmin-
tonæfingar og hefði hann
frá þeim tíma stundað
þessa íþrótt. Jóhann er
nemandi á menntabraut
við Flensborgarskóla og
áætlar að Ijúka stúdents-
prófi um næstu jól.
Hann segir okkur að hann
hafi verið 10 ára, er hann fyrst
tók þátt í keppni, en 14-15 ára
hafi hann byrjað að ná ár-
angri, eins og hann sjálfur
segir hógværlega, en við hjá
íþróttablaðinu köllum það að
skara fram úr. Jóhann lék fyrst
í meistaraflokki 15 ára gamall
og 16 ára varð hann fyrst ís-
landsmeistari í tvíliðaleik á
mótinu, sem þá var haldið á
Akranesi, er hann og Sigurður
Haraldsson sigruðu Harald
Kornelíusson og Steinar
Petersen í hörkukeppni.
Urðu úrslit leikjanna 15-13,
11-15 og 15-13 og segir Jó-
hann að það sé eftirminnileg-
asta keppni hans fram til
þessa. 1977 komst Jóhann í
úrslit í einliðaleik á íslands-
mótinu, en tapaði þá fyrir
Sigurði Haraldssyni, en þeir
urðu aftur íslandsmeistarar í
tvíliðaleik. 1978 hirti svo Jó-
hann þrennuna í Islandsmót-
inu, er hann sigraði í einliða-
leik, tvíliðaleik og tvenndar-
leik. Fer því ekki á milli mála
að Jóhann hefur glæsilega
unnið til þess sæmdarheitis,
Badmintonmaður ársins.
Jóhann segist æfa 5-6 sinn-
um í viku, yfirleitt 2 klukku-
stundir í senn undir hand-
leiðslu Garðars Alfonssonar,
sem hann segir eiga mestan
heiðurinn af árangri sínum.
Æft er í hinu nýja og glæsilega
húsi TBR, þar sem Jóhann
segir að aðstaðan sé mjög góð,
enda eina húsið hérlendis,
sem byggt sé sérstaklega fyrir
badmintoníþróttina. Til við-
bótar við æfingarnar koma
svo keppnir, sem oft eru
haldnar um helgar þannig að
Jóhann Kjartansson
27